Aron Leví Beck býður sig fram gegn Skúla Helgasyni

Aron Leví Beck, for­maður Hall­veigar félags ungra jafn­að­ar­manna í Reykja­vík, gefur kost á sér í 3. sæti í flokksvali Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Aron Leví Beck, for­maður Hall­veigar félags ungra jafn­að­ar­manna í Reykja­vík, gefur kost á sér í 3. sæti í flokksvali Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Fyrir hefur borg­ar­full­trú­inn Skúli Helgason boðið sig fram í 3. sætið.

Flokksval mun fara fram 10. febr­­ú­­ar. Dagur B. Egg­erts­­son, borg­­ar­­stjóri í Reykja­vík, hefur þegar gefið það út að hann ætli að bjóða sig fram að nýju og mun nær örugg­­lega leiða lista flokks­ins.

Heiða Björg Hilm­­is­dótt­ir, vara­­for­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­innar og borg­­ar­­full­­trúi, hafði áður til­­kynnt að hún sæk­ist eftir stuðn­­ingi í 2. sæti fram­­boðs­lista flokks­ins. Hún var í sjötta sæti á fram­­boðs­lista flokks­ins í kosn­­ing­unum árið 2014 og náði ekki kjöri sem aðal­­­maður í borg­­ar­­stjórn. Heiða Björg kom hins vegar inn í borg­­ar­­stjórn þegar Björk Vil­helms­dótt­ir, sem var í 2. sæti á lista flokks­ins í síð­­­ustu borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­um, ákvað að hætta í stjórn­­­málum haustið 2015.

Búist er við því að Hjálmar Sveins­­son, sem sat í þriðja sæti list­ans 2014, bjóði sig aftur fram og muni sækj­­ast eftir sæti ofar­­lega á lista. Þá hefur borg­­ar­­full­­trú­inn Kristín Soffía Jóns­dóttir einnig gefið það út að hún sé að velta áfram­hald­andi fram­­boði fyrir sér.

Í til­kynn­ingu frá Aroni kemur fram að hann hygg­ist berj­ast fyrir bættri stöðu ungs fólks í borg­inni með því meðal ann­ars að flýta upp­bygg­ingu á þétt­ing­ar­reitum, þar á meðal í Örfirisey. Hann er fylgj­andi upp­bygg­ingu Borg­ar­línu og segir leik­skóla­mál eiga að vera for­gangs­at­riði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár