Skúli vill þriðja sætið hjá Samfylkingunni

Skúli Helgason sæk­ist eftir þriðja sæti á fram­boðs­lista Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem fram fara í maí. Hjálmar Sveins­son sat í því sæti list­ans árið 2014.

Skúli Helgason hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sæti í flokksvali Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar sem fram fer í febr­úar. Hann sat í fimmta sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í kosn­ing­unum 2014. Skúli hefur verið for­maður skóla- og frí­stunda­ráðs á því kjör­tíma­bili sem nú fer brátt að ljúka.

Full­trúa­ráð Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík sam­þykkti á laug­ar­dag að valið yrði á fram­boðs­lista fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í vor með flokksvali. Það mun fara fram 10. febr­ú­ar. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, hefur þegar gefið það út að hann ætli að bjóða sig fram að nýju og mun nær örugg­lega leiða lista flokks­ins.

Heiða Björg Hilm­is­dótt­ir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og borg­ar­full­trúi, hafði áður til­kynnt að hún sæk­ist eftir stuðn­ingi í 2. sæti fram­boðs­lista flokks­ins. Hún var í sjötta sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í kosn­ing­unum árið 2014 og náði ekki kjöri sem aðal­maður í borg­ar­stjórn. Heiða Björg kom hins vegar inn í borg­ar­stjórn þegar Björk Vil­helms­dótt­ir, sem var í 2. sæti á lista flokks­ins í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um, ákvað að hætta í stjórn­málum haustið 2015.

Búist er við því að Hjálmar Sveins­son, sem sat í þriðja sæti list­ans 2014, bjóði sig aftur fram og muni sækj­ast eftir sæti ofar­lega á lista. Þá hefur borg­ar­full­trú­inn Kristín Soffía Jóns­dóttir einnig gefið það út að hún sé að velta áfram­hald­andi fram­boði fyrir sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár