Í þá tíð… Villibarnið Viktor frá Aveyron

Fyrir rúmum 200 árum fannst drengur í skóg­lendi í Suður-Frakk­landi. Hann hafði greini­lega verið á eigin vegum frá fjög­urra eða fimm ára aldri og var alger­lega mál­laus. Læknir einn reyndi að kenna honum að tala og lifa í sam­fé­lagi manna.

Í gegnum ald­irnar hafa sögur farið af „villi­börnum“, börnum sem hafa alist upp ein á báti í óbyggðum, jafn­vel eftir að hafa verið alin upp af villi­dýrum. Þjóð­sögur þessar hafa lagt grunn­inn að mörgum skáld­verkum. Hver kann­ast til dæmis ekki við tví­burana Rómúlus og Remus, Móglí úr sögum Kiplings eða Tarzan, sjálfan kon­ung apanna, sem sveifl­aði sér ljós­lif­andi af síðum Edgar Rice Burroughs (og síðar með milli­lend­ingu hjá Siglu­fjarð­ar­prent­smiðju) yfir í vit­und les­enda.

Villi­barnið sem hittir fólk og drekkur í sig menn­ingu og, tjah… mennsku, á met­tíma er þekkt minni í bók­menntum og teng­ist oft vanga­veltum um mann­legt eðli. Hvort mað­ur­inn, í sínu nátt­úru­lega ástandi, sé eins og hvert annað dýr, eins og má til dæmis lesa úr kenn­ingum Hobbes, eða hvort hann sé meira í lík­ingu við „göf­uga villi­mann­inn, sem er ófær um illsku og spillist þá fyrst þegar hann kemst í snert­ingu við nútíma­menn­ingu.

Eitt fyrsta dæmi þess að „villi­barn“ væri hand­samað og reynt að koma því til manns, í fyllstu merk­ingu þeirra orða, átti sér stað fyrir rúmum 200 árum síðan. Það er sagan um Viktor frá Aveyron

Villibarnið handsamað

Í Aveyron í Suður-Frakk­landi undir lok átj­ándu aldar hafði gengið saga um að villi­drengur hefð­ist við í skógum hér­aðs­ins. Árið 1797 var dreng­ur­inn hand­samaður af veiði­mönnum sem gripu hann niður úr tré, en hann flúði fljótt aftur úr vist hjá ekkju einni. Þremur árum síðar komst hann aftur í hendur fólks eftir að hann gaf sig sjálfur fram við fólk; senni­leg­ast um 12 ára gam­all, klæða­laus, ómálga og örum settur um allan lík­amann, sem benti til þess að hann hefði lengi verið á eigin vegum í nátt­úr­unni.

Pilt­ur­inn var fyrstu mán­uð­ina í umsjá nátt­úru­fræð­ings­ins Pierre Joseph Bona­terre. Bona­terre þessi gerði ýmsar til­raunir með dreng­inn, meðal ann­ars leyfði hann honum að afklæð­ast og leika sér úti í snjónum án þess að hann léti kuld­ann nokkuð á sig fá, þvert á móti virt­ist hann kunna vel við sig þannig. Hann setti heldur ekk­ert fyrir sig að taka sjóð­heita kart­öflu út úr eld­stæði og stinga henni upp í sig. Hann brást ann­ars almennt illa við til­mælum og vildi til dæmis ekki láta baða sig, og átti til að taka æðisköst.

Ekkert var vitað um upp­runa drengs­ins, en eftir að aug­lýst hafði verið eftir mögu­legum aðstand­endum gáfu tveir menn sig fram, en synir þeirra beggja höfðu týnst í hinum róst­ur­sömu tímum í kjöl­far frönsku bylt­ing­ar­innar. Hvorugur vildi gang­ast við honum.

Einnig gengu sögur um að hann væri óskil­get­inn sonur emb­ætt­is­manns í hér­að­inu, sem hafði verið bor­inn út sökum þess að hann var mál­laus.

Piltur var síðar fluttur á heyrn­leys­ingja­stofnun þar sem gerðar voru fleiri athug­anir á honum, undir áhrifum Upp­lýs­ing­ar­innar og fyrr­nefndrar hug­myndar um göf­uga villi­mann­inn. Hvað væri það sem gerði mann að manni?

Lærifaðir kemur til sögunnar

Dreng­ur­inn tók ekki neinum fram­förum á stofn­un­inni og eftir að fræði­menn við stofn­un­ina brast þol­in­mæði til að sinna honum voru flestir á því að hann væri þroska­heftur. Þá kom að ungur læknir, Jean Marc Gaspard Itard sem hafði unnið við stofn­un­ina og tók pilt að sér. Hann tók hann heim og hóf að reyna að kenna honum tjá­skipti. Það var Itard sem gaf honum nafnið Victor, sig­ur­veg­ari.

Í bók sem Itard skrif­aði um ferlið segir að skyn­færi Victors hafi verið mjög óþroskuð. Hann brást til að mynda lítt við hljóðum og lykt. Hann virt­ist bara heyra það sem hann vildi heyra. Hann brást til dæmis ekk­ert við þótt hleypt væri af byssu fyrir aftan hann, en spratt upp um leið og hann heyrði ein­hvern brjóta skel upp­á­halds­hnet­unnar sinnar. Augnaráð Victors var reik­andi og hann virt­ist ófær um að ein­beita sér að nokkru og hann gat ekki tjáð sig nema með stunum og hríni. „Ef hann hefur ein­hvern­tíma lært orð eða hafið menntun,“ reit Icard, „er allt slíkt horfið úr minni hans eftir ein­angr­un­ina.“

Itard ályktaði út frá útgang­inum á pilti að hann hlyti að hafa verið á ver­gangi í um sjö ár, en þar sem hann var með skammt kom­inn á þroska­braut­inni var Icard bjart­sýnn um að honum myndi takast að „mennta“ dreng­inn með fimm mark­mið í fyr­ir­rúmi, gera hann jákvæðan fyrir sam­fé­lagi manna umfram ein­ver­una í skóg­inum, vekja skyn­færi hans með örvun, efla hug­mynda­heim hans þannig að hann finni í sér nýjar þrár og tengi við fleiri hluti í nærum­hverfi sínu, kenna honum að tala og loks að þjálfa huga hans til að ná mark­miðum.

Victor brást að mörgu leyti vel við kennsl­unni sem hann hlaut hjá Itard. Smátt og smátt fór hann að skilja nokkurn veg­inn það sem við hann var sagt og hann fékkst líka til að vilja fara í bað. Victor varð hins vegar lítið ágengt í mál­þroska og á þeim sex árum sem hann dvaldi hjá Itard náði hann aðeins að læra eitt og eitt orð, til dæmis „lait“ (mjólk).

Helstu fram­far­irnar urðu senni­leg­ast í mann­legum sam­skiptum þar sem Victor sýndi meðal ann­ars merki um hlut­tekn­ingu með öðrum.

Á endastöð

Eftir sex ár, þegar Victor var senni­lega um átján eða nítján ára gam­all var Itard viss um að vera kom­inn á enda­stöð. Þrátt fyrir að vera hvorki heyrn­ar­skertur né mál­laus var and­legt og sál­ar­legt atgerfi hans með þeim hætti. „Það yrði því til lít­ils að reyna að kenna honum að tala á hefð­bund­inn hátt, að láta hann end­ur­taka hljóð, þegar hann heyrði þau ekki í raun.“

Þrátt fyrir að hafa ekki náð til­ætl­uðum árangri með Victor, ollu rann­sóknir Itards tals­verðum straum­hvörfum og lögðu grunn­inn að menntun þroska­skertra ein­stak­linga.

Á síð­ari árum hafa margir fræði­menn reynt að greina ástand Victors, sem þykir minna um margt á ein­hverfu, geð­klofa eða ann­ars konar geð­kvilla, sem gæti allt hafa verið ástæða þess að hann var yfir­gef­inn úti í skógi fimm ára gam­all.

Victor flutti inn til Madame Guérin, ráðs­konu Itards, sem hafði gengið Victori í móð­ur­stað.

Hann lést úr lungna­bólgu á heim­ili fóst­ur­móður sinnar árið 1928, senni­lega um fer­tugt, án þess að hafa tekið nokkrum fram­förum í þroska.

Leik­stjór­inn François Truffaut gerði tíma þeirra Victors og Itards skil í mynd sinni, L'Enfant Sauvage (Villi­barnið), sem kom út árið 1970.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íþátíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár