Í þá tíð… Sádi-Arabía og Wahhabíismi

Krón­prins Sádi-Arabíu vakti mikla athygli á dög­unum þegar hann tal­aði fyrir því að snúa landi sínu til meiri hóf­semi í trú­ar­málum. En sagan er merki­leg og önnur en margir gera sér grein fyrir.

Krón­prins Sádi-Arabíu vakti mikla athygli á dög­unum þegar hann tal­aði fyrir því að snúa landi sínu til meiri hóf­semi í trú­ar­málum. Bók­stafs­trú hefur verið rík í Sádi-Arabíu allt frá stofnun rík­is­ins, en í tæp 40 ár hafa þar­lendir tals­menn Wahhabíisma verið sér­lega ötulir við að breiða út sína íhalds­sömu sýn á íslam víða um heim með ráðum og dáð.

Það er ekki ofsögum sagt að krón­prins Sádi-Arabíu Mohammed bin Salman hafi vakið tölu­verða athygli í síð­ustu viku þegar hann lét hafa eftir sé að hann stefndi að því að útrýma öfga­öflum innan lands­ins og að því yrði snúið á braut umburð­ar­lyndis, sem lang­flestir múslimar segja hina raun­veru­legu und­ir­stöðu íslam.

Það er nokkuð frá­hvarf frá stefnu síð­ustu ára­tuga þar sem harð­línu­öfl bók­stafs­trú­ar­manna hafa ráðið ríkjum og haldið aftur af marg­vís­legum trú­ar­legum og félags­legum umbótum. Vissu­lega má segja að eitt og annað hafi áunn­ist síð­ustu ár; til dæmis var gefin út kon­ung­leg til­skipun í síð­asta mán­uði að frá og með næsta sumri verði konum leyft að aka bíl í Sádi-Arabíu og að und­ir­bún­ingur sé haf­inn að stofnun nýrrar borgar, eins konar frí­ríkis innan lands­ins, á strönd Rauða hafs­ins, þar sem færri trú­ar­legar hömlur munu ráða lífi fólks.

En hvar liggja rætur bók­stafs­trúar Wahhabíisma saman við til­vist rík­is­ins Sádi-Arabíu?

Gagnkvæmur ábati

Raunar hefur Sádi-Arabía alltaf verið sam­ofin bók­stafs­trú. Klerkur einn, Muhammed ibn Abd Al-Wahhab að nafni, hafði á fyrri hluta átj­ándu aldar valdið nokkru umróti fyrir kenn­ingar sínar þar sem hann kall­aði eftir aft­ur­hvarfi í iðkun íslam aftur til upp­runa­legu orða Múhameðs spá­manns. Al-Wahhab var frá bænum Uyaynah, ekki langt frá núver­andi höf­uð­borg Sádí-Arabíu og hafði meðal ann­ars stundað nám í hinni helgu borg Medina og svo kennslu á því svæði sem í dag eru Íran og Írak.

Eftir að hann sneri aftur heim á Arab­íu­skaga skar hann upp herör gegn hinum ýmsu ósiðum sem honum fannst hafa mengað íslam. Jarð­vegur er almennt ekki mjög frjó­samur í þessum heims­hluta, og að sama skapi var jarð­vegur fyrir orð hans og kenn­ingar ekki frjó­samur. Fór svo að hann var gerður brott­rækur frá heimabæ sínum árið 1744.

[adspot]

Hann leit­aði ásjár hjá ætt­ar­höfð­ingja að nafni Mohammad bin Saud, sem átti þá í bar­áttu við aðra ætt­bálka um yfir­ráð yfir hásléttum Arab­íu­skaga, og tókst með þeim banda­lag þar sem hvor um sig fékk það sem þeir leit­uðu að. Al-Wahhab fékk vernd í skiptum fyrir stuðn­ing sem veitti bin Saud ákveðið lög­mæti sem og trú­ar­legan og hug­mynda­fræði­legan grund­völl.

[box]Sam­starfið gekk vonum framar og á næstu árum og ára­tugum náði Saud ættin undir sig mest­öllum Arab­íu­skaga, þar á meðal hinum helgu borgum Mekka og Medina. Wahhabíisminn sem réði þar ríkjum var þá þegar mjög frá­brugð­inn því sem gerð­ist í ann­ars­staðar í hinum íslamska heimi. Útfærslan þar hefur verið kennd við nátt­úru­legar aðstæður, eyði­mörkin og ætt­bálka­menn­ingin fóstr­aði mun harð­ara og ein­angr­aðra íslam, en við­gekkst í fjöl­menn­ing­ar­legum borgum Mið-Aust­ur­landa, t.d. Kaíró og Bagdad.

Ottómana­veldið tyrk­neska brást við uppi­vöðslu­semi Sauda með því að senda egyp­skar her­deildir niður á skag­ann í byrjun nítj­ándu aldar, þegar Al-Wahhab var lát­inn, og upp­hófust þar mikil átök. Þeim lauk end­an­lega árið 1818 þegar Abd Allah ibn Saud, son­ar­son­ar­sonur og arf­taki Muhammads bin Saud, var tek­inn höndum og færður til Istanbúl þar sem hann var afhöfð­aður. Fjöldi Wahhabi-leið­toga voru líka teknir af lífi og Egyptar tóku að festa sig í sessi, en kenn­ingar Wahhabs lifðu enn í þorpum og meðal flökku­hópa þrátt fyrir það.

Annað ríki Saud ætt­ar­innar var stofnað fimm árum síðar þegar Turki, son­ar­sonur Muhammads bin Saud, rak Egypta burt úr innri hér­uð­unum, meðal ann­ars höf­uð­borg­inni Ríad. Hann gætti þess þó að styggja ekki Ottómana og var í raun eins konar léns­herra þeirra. Eftir nokkrar inn­an­húss­erjur í Saud-fjöl­skyld­unni, þar sem Turki var meðal ann­ars myrtur, tók Faisal, sonur Turkis við völdum og hélt þeim til dauða­dags árið 1865. Eftir það tók aftur við mik­ill upp­lausn­ar­tími þar sem valda­stóll­inn gekk manna á milli, sem end­aði með því að Ottómanar og umboða­menn þeirra tóku völdin og áhrif Sauda og Wahhabía dvín­uðu.

Saudar hörf­uðu til Kuwait þar sem þeir biðu færis, og það gafst einmitt í upp­hafi tutt­ug­ustu ald­ar­innar þegar hinn ungi Ibn Saud hélt með fámennan hóp fylg­is­manna til Ríad og velti ríkj­andi vald­hafa af stóli og tók völdin til ætt­ar­innar enn á ný.

Ibn Saud breiddi smám saman út áhrifa­svæði sitt á Arab­íu­skaga, en gætti þess að styggja Ottómana ekki um of, auk þess sem hann leit­að­ist eftir sam­vinnu við Breta. Á árunum í kringum fyrri heims­styrj­öld börð­ust fjöl­margar ættir og hópar um yfir­ráð í Arabíu og mið­aust­ur­löndum en miklu skipti að Ibn Saud náði Mekka og Medina enn og aftur undir ætt sína.

Hann herti sífellt á tökum og stækk­aði áhrifa­svæði ætt­ar­innar. Þrátt fyrir að hann legði áherslu á yfir­vald íslam, var bók­stafs­hyggja Wahhabía ekki eins áber­andi og á fyrri valda­skeiðum, þar sem meðal ann­ars var litið fram hjá banni við tón­list, og í hópi nán­ustu ráð­gjafa hans voru margir „útlend­ingar“.

Það var svo árið 1932 að völd Ibn Saud yfir Arab­íu­skaga voru stað­fest með stofnun kon­ungs­ríkis Sádi- Arabíu, en sex árum seinna voru völd ætt­ar­innar meit­luð í stein eftir að olíu­fyr­ir­tæki upp­götv­uðu stærstu olíu­lindir heims í Sádi-Arabíu. Þar með var efna­hags­leg og stjórn­mála­leg fram­tíð rík­is­ins tryggð, og ekki síður frelsi þess til að haga trú­ar­málum eftir eigin höfði og mögu­leikar á að breiða út „fagn­að­ar­er­indi“ Wahhabíisma.

Það var einmitt það sem Faisal, sonur Ibn Sauds, ein­setti sér þegar hann tók við völdum árið 1964, að breiða út íslam í krafti olíu­auðs­ins. Kenn­ingar Wahhabíia nutu þar góðs af því að koma frá Sádi-Arabíu, sem var heima­land borg­anna helgu, Mekka og Medina. Innan rík­is­ins örl­aði þó enn á hóf­semd­ar­á­herslum og fjöl­breytni, en árið 1979 breytt­ist allt.

Þreföld straumhvörf 1979

Árið 1979 var mikið örlagaár í Mið-Aust­ur­löndum, sem og öllum hinum íslamska heimi.

Fyrst má nefna bylt­ing­una í Íran þar sem sjítar veltu ver­ald­legum keis­ara úr sessi og lýstu yfir stofnun íslamska lýð­veld­is­ins. Með því var kom­inn beinn keppi­nautur við Sádi-Arabíu og súnníta um ver­ald­leg og trú­ar­leg áhrif í heims­hlut­anum.

Þessi nýja staða varð til þess að herða á við­leitni Sáda til að boða Wahhabíisma.

Annar afdrifa­ríkur atburður varð svo þegar öfga­menn tóku Stóru Moskuna í Mekka í her­kví í tvær vikur og deildu á for­víg­is­menn Sádi-Arabíu fyrir fylgi­spekt við Vest­ur­lönd og svik við íslam.

Þó að öfga­menn­irnir hafi verið reknir á braut, var það ein­ungis eftir að stjórn­völd sam­þykktu kröfur trú­ar­leið­toga um að styðja átak gegn frjáls­lyndi og fyrir ennþá ágeng­ari trú­boði Wahhabía um heim allan. Hundruð moska, skóla og trú­ar­mið­stöðva hafa verið stofn­aðar um heim allan síð­ustu ára­tugi með fjár­stuðn­ingi frá Sádi-Arabíu.

Loks var það undir lok árs 1979 að Sov­ét­ríkin gerðu inn­rás í Afganistan og stilltu þar upp komm­ún­ískri lepp­stjórn. Fljót­lega braust þar út upp­reisn Mujahedeen – heil­agra stríðs­manna íslams – sem voru aðal­lega styrktir af Banda­ríkj­unum og Sádi-Arabíu. Stríðið í Afganistan varð umfram allt til þess að skapa róm­an­tíska mynd af hern­aði fyrir íslam þar sem ungir menn víða að úr heim­inum lögðu land undir fót til að fórna sér fyrir mál­stað­inn gegn villu­trú.

Flókin staða eftir 11. september

Hið nána efna­hags­lega og póli­tíska sam­band milli Sádi-Arabíu og Vest­ur­landa, sér­stak­lega Banda­ríkj­anna komst í full­komið upp­nám eftir árás­irnar 11. sept­em­ber 2001. Hvernig stóð á því að þessi banda­lags­þjóð hafði alið af sér ekki færri en fimmtán af nítján hryðju­verka­mönn­unum sem rændu far­þega­vél­unum fjórum þennan örlaga­ríka dag (og raunar höf­uð­paur­inn sjálfan, Osama bin Laden, en það er kafli út af fyrir sig)?

Allt frá því, hefur umræðan um stuðn­ing Sádi-Arabíu við hryðju­verka­hópa verið hávær, en um leið er ljóst að yfir­völd í Ríad hafa sann­ar­lega barist gegn öfga­öflum og hryðju­verka­sam­tökum á ýmsan hátt.

Á aðra hönd­ina hafa hryðju­verka­menn og öfga­hópar, til dæmis ISIS, til­einkað sér óbil­girni og aft­ur­hald sem felst í kenn­ingum Wahhabíisma og jafn­vel notað náms­bækur frá Sádi-Arabíu þar sem farið er hörðum orðum um gyð­inga, kristna og þá sem snúa baki við íslam. Þá gengu um 2.500 Sádi-Arabar til liðs við ISIS og börð­ust með þeim.

Hins vegar hafa Sádi-Arabar, sér­stak­lega í ljósi árása öfga­manna á skot­mörk þar í landi, brugð­ist hart við þeim trú­ar­leitogum sem hafa hvatt til ofbeldis með beinum hætti, skipst á upp­lýs­ingum við vest­rænar leyni­þjón­ustur til að koma í veg fyrir hryðju­verk og þús­undir imama hafa verið reknir eða sendir í end­ur­menntun (sem að vísu er ekki beint vottuð sem umburð­ar­lynd­is­með­ferð) fyrir að neita að afneita öfga­hyggju.

William McCants, sér­fræð­ingur á sviði hryðju­verka, stjórn­mála og íslams, orð­aði það ansi vel í grein New York Times, sem höf­undur þess­arar greinar hefur stuðst við. Þegar kemur að harð­línu-íslam eru Sádar „bæði brennu­varg­arnir og slökkvi­liðið. […] Bæði tala þeir fyrir skað­legu afbrigði af íslam þar sem skarpar línur eru dregnar milli hóps hinna sann­trú­uðu og alla ann­arra, hvort sem um er að ræða múslima eða aðra trú­ar­hópa,“ sem virkar sem olía á eld ofstækis og ofbeldis, en um leið eru þeir „banda­menn í bar­átt­unni gegn hryðju­verkum.“

Það er ef til vill full­mikil ein­földun að skrifa alla þá sem segj­ast fremja hryðju­verk í nafni íslam, á reikn­ing Sáda og Wahhabíisma. Þar er margt annað sem kemur til, til dæmis íhlutun Banda­ríkj­anna og ann­arra Vest­ur­velda í mál­efni Mið-Aust­ur­landa. Wahhabíismi hefur hins vegar boðið upp á og styrkt hug­mynda­fræði­legan grund­völl fyrir óbil­girni og hatur í garð þeirra sem ekki hlíta ströng­ustu trú­ar­kenn­ingum íslams og rétt­lætt ofbeldi.

Það hillir kannski undir breyt­ingar í Sádi-Arabíu, þar sem Salman krón­prins hefur leit­ast við að tryggja völd sín. Hingað til hefur rík­inu verið stýrt af gömlum mönnum, en Salman er aðeins 32ja ára gam­all og hefur skiln­ing á að landið verður að bregð­ast við breyttum aðstæðum á alþjóða­vett­vangi, og ekki síst renna fleiri stoðum undir efna­hags­lífið þar sem olía hefur verið upp­haf og endir alls allt frá fyrstu árum rík­is­ins. Kyn­slóðin sem nú er að kom­ast á legg verður að fá tæki­færi til atvinnu, sem ekki eru til staðar núna.

Hins vegar er enn langt í land, þar sem í Sádi-Arabíu ríkir kúg­un­ar­stjórn. Frelsi ein­stak­linga og hópa, ekki síst kvenna, er fótum troðið dag hvern og villi­manns­legum refs­ingum og aftökum er beitt fyrir litlar sakir. Þá stendur Sádi-Arabía í hern­aði í nágranna­land­inu Jemen þar sem manns­líf virð­ast engu máli skipta og millj­ónir barna eru á ver­gangi vegna átak­anna.

Hundruð millj­óna múslima um allan heim lifa lífi sínu í sátt við guð sinn og annað fólk. Fróðlegt verður að sjá hvort víta­hringur valda, aft­ur­halds og ofstækis í Sádi-Arabíu muni líða undir lok á næstu árum.

Helstu heimildir:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íþátíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár