Í þá tíð… Fyrsti raðmorðinginn eða fórnarlamb samsæris

Aðals­mað­ur­inn Gilles de Rais var stríðs­hetja í Hundrað ára stríð­inu og barð­ist meðal ann­ars við hlið Jóhönnu af Örk. Hann var hins vegar sak­felldur fyrir morð á 140 börnum, en á seinni tímum hefur örlað á nokkrum vafa á sekt hans.

Af ein­hverri ástæðu vekja frá­sagnir af illsku upp ein­kenni­legar kenndir í fólki – ill­virki eru á ein­hvern ill­skýr­an­legan hátt heill­andi og for­vitni­leg. Þetta er ekki alfarið seinni tíma fyr­ir­bæri, heldur hafa óþokkar og níð­ingar fangað hugi manna í margar aldir.

Ein slík frá­sögn er sagan af franska aðals­mann­inum Gilles de Rais, sem fædd­ist árið 1405 inn í auð­uga ætt á Bretagneskaga. Eftir að hafa gegnt lyk­il­hlut­verki í liði Frakka í hund­rað ára stríð­inu voru bornar á hann sakir um að hafa rænt, mis­notað og myrt tugum barna. Fyrir það var hann sak­felldur og tek­inn af lífi, síðan þá hefur nafn hans verið sam­tvinnað glæp­unum sem hann var sak­felldur fyrir, en síð­ustu ára­tugi hafa margir gengið fram fyrir skjöldu til að hreinsa mann­orð de Rais.

Ættarlaukur á framabraut

Gilles de Rais missti for­eldra sína ungur að aldri, en var fóstr­aður af afa sínum. Fimmtán ára gam­all gekk de Rais að eiga aðals­mey eina af enn betri og rík­ari ættum, sem var níu árum eldri.

Þetta voru ann­ars sér­stak­lega við­sjár­verðir tímar í sögu Bretagne og Frakk­lands alls. Hið svo­kall­aða Hundrað ára stríð hafði staðið linnu­lítið milli Englands og Frakk­lands frá árinu 1337, í fyrstu vegna deilna um til­kall til frönsku krún­unnar.

Piltur gat sér snemma gott orð fyrir her­kænsku og víg­fimi, en stökk fram í sviðs­ljósið aðeins sextán ára að aldri þegar hann lék lyk­il­hlut­verk í að frelsa Greifann af Bretagne úr haldi óvild­ar­manns í hér­að­inu. Upp úr því fékk hann boð um sæti við hirð rík­is­arfans (síðar Karls VII) og frá árinu 1427 var hann stjórn­andi við her kon­ungs. Þar vann hann sér ýmis­legt til frægðar, en hann þótti fífl­djarfur og ótta­laus á velli – sem telst jafnan til kosta allt fram að því augna­bliki að það gerir það bara alls ekki.

Á vígvelli með Jóhönnu af Örk

Allt virt­ist hins vegar ætla að ganga upp hjá de Rais, meira að segja þegar rík­is­arf­inn skip­aði hann árið 1429 til­sjón­ar­mann með tán­ings­stúlku frá Orléans sem hafði fengið manna­for­ráð í hernum, Jóhönnu nokk­urri, síðar kenndri við Örk, og var við hlið hennar þegar lið undir for­ystu Jóhönnu vann merka sigra gegn Eng­lend­ingum, meðal ann­ars við Orléans.

De Rais var gerður að Mar­skálki í franska hernum, sem var mesti heiður sem hægt var að ná innan hers­ins.

Eftir herþjónustu

Eftir að Jóhanna af Örk og var brennd á báli fyrir villu­trú árið 1431 fór de Rais að draga sig í hlé í hern­aði og hann varði mestum tíma heima í kast­ala sínum, Chateau Tiffauges, við að sólunda ætt­ar­auðnum í alls kyns prjál, upp­á­komur, tón­list og rit­verk. Meðal ann­ars lét hann reisa stærð­ar­innar kapellu, en leidd­ist líka út í fikt við dul­speki, gull­gerð og fjöl­kynngi.

Um þetta leyti fór að bera á sögum um brott­hvörf tuga barna í hér­að­inu í kring. De Rais var hins vegar ekki tek­inn höndum fyrr en árið 1440 eftir að hann hafði rænt presti nokkrum, í ótengdu máli.

Dómurinn var ekki að taka á honum með neinum silki­hönskum heldur ákærði hann í fjöl­mörgum liðum, meðal ann­ars fyrir villu­trú, barn­a­níð og morð á 140 börnum.

De Rais ját­aði svo á sig þá glæpi sem hann var sak­aður um en á bak við játn­ing­una lá hótun um sví­virði­legar pynt­ingar, og, það sem de Rais kveið ekki síður, bann­fær­ingu.

Skemmst frá að segja var de Rais sak­felldur og tek­inn af lífi – hann var hengdur og brenndur sam­tímis – í októ­ber það sama ár í borg­inni Nantes, og við tóku 550 ár þar sem fáir voru til að bera brigður á dóm­inn, þrátt fyrir að svo hafi viljað til að dóm­ar­arnir sem kváðu upp dóm­inn hafi verið svo vel í sveit settir að eftir dauða de Rais féllu allar hans eignir þeim í skaut.

Auk­in­heldur voru engin sönn­un­ar­gögn í mál­inu sem hönd á festi, engin alvöru vitni, engin lík og ekki neitt.

Þegar komið var fram á tíunda ára­tug síð­ustu aldar var nokkur ferða­manna­iðn­aður tengdur kast­ala de Rais og meintum glæpum hans. Ferða­mála­yf­ir­völd í Bretagne vildu koma sögu hans á prent til að vekja enn frek­ari athygli, en rak í rogastans þegar höf­und­ur­inn sem þau réðu skil­aði af sér bók þar sem sak­leysi de Rais var haldið fram.

Upp úr því spratt nokkur umræða og í fram­hald­inu var skip­aður eins konar gerð­ar­dómur, sem komst árið 1992 að þeirri nið­ur­stöðu að de Rais hafi ekki verið sekur – eða alltjent að þær sann­anir sem fyrir lágu hafi ekki átt að nægja til að sak­fella hann. Þarna hafi annað og fleira legið að baki, einna helst andúð kirkj­unnar manna á honum og upp­á­tækjum hans, og ekki síst græðgi dóm­ar­anna í að kom­ast yfir eignir hans.

Í þessu sam­hengi er oft vísað í „játn­ing­arnar“ sem rann­sókn­ar­rétt­ur­inn fékk upp úr fólki og hversu áreið­an­legar þær þykja í dag.

Vanga­veltur af þessu tagi gagn­ast de Rais sjálfum vit­an­lega ekki nokkuð og hann á enga afkom­endur sem tala máli hans, en það er með þetta eins og mörg önnur óhuggu­leg mál. Það liggur svo skrambi áhuga­verð saga þarna að baki.

Greinin birt­ist fyrst í Mannlífi 12. októ­ber 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íþátíð

Mest lesið undanfarið ár