Í þá tíð… Grunnurinn að réttindahreyfingu lagður eftir hræðilega árás

Recy Taylor var nauðgað af hópi manna í Alabama á fimmta ára­tug síð­ustu aldar. Þrátt fyrir játn­ingar voru nauð­gar­arnir ekki sóttir til saka. Recy lést fyrir skömmu í hárri elli, en Oprah Winfrey rifj­aði upp mál hennar og hug­rekki nýverið í magn­aðri ræðu.

Recy Taylor var numinn á brott og nauðgað af hópi manna í Alabama árið 1944.
Recy Taylor var num­inn á brott og nauðgað af hópi manna í Alabama árið 1944. Mynd: Aðsend

Sjaldan hefur verið eins áhuga­vert (les. frústrer­andi og sorg­legt, en um leið hug­hreystandi) að fylgj­ast með þjóð­fé­lags­um­ræð­unni í Banda­ríkj­unum eins og einmitt núna. Á meðan hat­urs­orð­ræða grass­erar allt upp í efstu lög sam­fé­lags­ins og almennt óþol fólks fyrir skoð­unum sem eru á skjön við þeirra eigin heims­mynd virð­ist vera að aukast, er ekki laust við að örli á skímu við sjón­deild­ar­hring.

Síðustu miss­eri hafa komið fram fjöl­mörg sorg­leg og erfið mál sem tengj­ast kerf­is­bundnu ofbeldi og mis­rétti sem hafa sært fram lang­þráða og nauð­syn­lega, en jafn­framt erf­iða, umræðu og upp­gjör. Fremst má ann­ars vegar telja hreyf­ing­una sem kennd er við #BlackLivesMatter sem tók á kerf­is­lægum for­dómum og ofbeldi lög­reglu gagn­vart blökku­fólki, og hins vegar #MeeToo bylt­ing­una gegn kúgun, mis­rétti og ofbeldi gegn konum og stúlkum, sem stendur enn sem hæst.

#MeeToo á upp­tök sín í afhjúp­unum innan kvik­mynda­geirans og það var einmitt á þeim vett­vangi sem við­fangs­efni þessa pistils kom fram, í brenni­punkti milli þessa tveggja mála­flokka.

Í inn­blás­inni þakk­ar­ræðu sinni á Golden Globe hátíð­inni um síð­ustu helgi minnt­ist Oprah Winfrey á mál Recy Taylor, blökku­konu frá Alabama sem var rænt og nauðgað af hópi hvítra manna árið 1944. Þrátt fyrir hót­anir lét hún ekki þagga niður í sér heldur barð­ist fyrir því að menn­irnir sem brutu á henni skyldu fá að svara til saka.

Samfélag skilgreint af misrétti og fordómum

Oft er talað um þræla­hald, og tregð­una við að afnema þann hryll­ing, sem erfða­synd Banda­ríkj­anna. Þræla­hald var ekki afnumið með lögum fyrr en árið 1865, langt á eftir ríkjum Evrópu. Í nokkur ár eftir að borg­ara­stríð­inu lauk var lögum um borg­ara­rétt­indi þeldökkra, til jafns við hvíta, fram­fylgt með her­valdi í Suð­ur­ríkj­unum.

Árið 1877 urðu hins vegar vatna­skil þar sem Suð­ur­ríkin fengu svo gott sem frítt spil til að reka hrein­rækt­aða aðskiln­að­ar­stefnu með lögum.

Upp frá þessu og fram til árs­ins 1954 er talað um tíma „Jim Crow-laga“ í Suð­ur­ríkj­unum. Þá var fært í lög að mis­muna mætti gegn blökku­fólki, meðal ann­ars með því að tak­marka kosn­inga­rétt þeirra, og aðgang að ýmis­konar aðstöðu og þjón­ustu. Frægt er að þeldökkir máttu ekki sitja fremst í stræt­is­vögnum og mis­mun­andi sal­erni og drykkj­ar­brunnar voru fyrir hvíta og dökka.

Fyrir utan lögin sem stað­festu mis­réttið, voru ýmis konar sam­fé­lags­legar hömlur til staðar til að halda yfir­burðum hvítra í horf­inu. Samtök eins og KKK óðu uppi með ógn­unum, ofbeldi og aftökum án dóms og laga, sem voru til þess fallin að troða niður vonir þeldökkra um að sækja sér tæki­færi í atvinnu­lífi, menntun eða sam­fé­lag­inu almennt.

Eins og oft vill verða í aðstæðum sem þessum, voru það komur og stúlkur sem máttu þola hvað mest órétt­læti og mis­munun. Kyn­ferð­is­of­beldi er ákveð­inn fasti þegar kemur að kúgun á þjóð­fé­lags­hópum og það gilti sann­ar­lega um blökku­konur á Jim Crow-árunum þegar kom að því að und­ir­strika yfir­ráð hvítra karla.

Numin á brott á leið heim úr kirkju

Þetta var veru­leik­inn sem Recy Taylor fædd­ist inn í og lifði við í Abbeville í Ala­bama­ríki. Hún var kjarna­kona sem gekk sex systk­inum sínum í móð­ur­stað aðeins sautján ára gömul, eftir að móðir þeirra lést. Dag einn í sept­em­ber árið 1944, þegar Recy var 24 ára gömul, var hún gang­andi á leið heim úr kirkju sam­ferða vin­konu sinni og syni hennar. Eig­in­maður Recy og ung dóttir þeirra biðu heima.

Þá er bíl ekið upp að hlið göngu­fólks­ins. Í bílnum voru sjö ungir menn, allir vopn­aðir, og fyrir þeim fór Herbert nokkur Lovett. Pilt­arnir sök­uðu Recy um að hafa ráð­ist á til­tek­inn mann með hnífi, ásökun sem var hreinn þvætt­ingur, ógn­uðu henni með byssu og neyddu hana inn í bíl­inn til þeirra.

Þeir óku henni á afvik­inn stað í nágrenn­inu þar sem þeir skip­uðu henni að afklæð­ast. Recy neit­aði og grát­bað um að fá að fara heim til dóttur sinnar og eig­in­manns. Pilt­arnir urðu ekki við því, heldur neyddu hana úr föt­unum og komu fram vilja sínum við hana. „Láttu eins og þú sért með mann­inum þínum eða ég sker þig á háls!“ skip­aði Lovett. Sex þeirra nauðg­uðu Recy, fyrr­nefndur Lovett, Hugo Wilson, Dillard York, Luther Lee, Joe Culpepper og Robert Gamble. Aðeins hinn 14 ára Billy Howerton, sem þekkti til Recy, tók ekki þátt.

Eftir ódæðið bundu þeir fyrir augun á Recy og köst­uðu henni út úr bílnum skammt frá. Hún hafði svarið og sárt við lagt að hún myndi ekki segja neinum frá því sem átti sér stað, en um leið og hún kom heim sagði hún manni sínum og fjöl­skyldu alla sög­una.

Lögregla og dómstólar brugðust þrátt fyrir játningar

Í sam­tali við lög­reglu gat Recy ekki sagt hverjir höfðu verið að verki, en hún lýsti bílnum svo vel að það fór ekki á milli mála um hvern var að ræða. Í kjöl­farið gat hún bent á nauð­gar­ana, en þeir sögðu að þó sam­ræði hafi átt sér stað hafi þau verið með hennar vilja og þeir hafi greitt henni fyrir.

Lög­reglu­stjór­inn fór ekki lengra með málið og yfir­heyrði menn­ina ekki einu sinni. Hins vegar vakti kæran mikil við­brögð í sveit­inni og fjöl­skyldan sætti árásum og öðrum ofsóknum. Meðal ann­ars var reynt að skemma mann­orð hannar og henni úthúðað sem laus­læt­is­drós.

Fréttir af mál­inu bár­ust víðar, meðal ann­ars til skrif­stofu NCAAP, rétt­inda­sam­taka þeldökkra, þar sem Rosa nokkur Parks var send af stað til að gæta hags­muna Recy. Parks varð síðar fræg fyrir að storka lögum þegar hún sett­ist fremst í stræt­is­vagn rúmum ára­tug síðar.

Lög­reglan brást ókvæða við aðkomu Parks að mál­inu. Þeir vildu enga „vand­ræða­gemsa“ í sveit­ina.

Mál var reyfað fyrir kvið­dómi (Grand Jury), en þá lá ekk­ert fyrir nema vitn­is­burður Recy. Kvið­dóm­ur­inn, sem var skip­aður ein­tómum hvítum körlum var fljótur að úrskurða að ekki skyldi ákært í mál­inu.

Í kjöl­farið lögðu Parks og félagar hennar í her­ferð til að þrýsta á um að eitt­hvað yrði gert í mál­inu. Hópar aðgerða­sinna, kven­rétt­inda­fé­lög, frægir lista­menn og fleiri lögð­ust á eitt og fengu það í gegn að árið eftir var annar kvið­dómur kall­aður til – sem fyrr, bara skip­aður hvítum körlum.

Að þessu sinni lágu fyrir vitn­is­burðir frá mönn­unum sem og þrugl og lygar frá lög­reglu­stjór­anum, sem voru bornar til baka af fjöl­mörgum íbúum Abbeville. Flestir pilt­arnir geng­ust, líkt og áður, við því að hafa haft sam­ræði við Recy, en það hafi verið með hennar sam­þykki… það er að segja þar til einn þeirra lét undan og ját­aði allt. Lýsingar hans voru í öllu í sam­ræmi við það sem Recy sagði hafa gerst, en eins frá­leitt og það hljómar, þrátt fyrir það taldi kvið­dóm­ur­inn að ekki lægju fyrir nægi­lega sterkar sann­anir til að hægt væri að ákæra og senda málið til dóm­ara.

Menn­irnir sjö sem numu Recy Taylor á brott, sví­virtu hana og nauðg­uðu, sluppu því allir og eng­inn þeirra þurfti nokkru sinni að svara til saka.

Fyrsti vísir að skipulagðri réttindabaráttu

Þrátt fyrir að svona hafi farið. Að rétt­lætið hafi verið fótum troðið í máli Recy Taylor, mark­aði málið ákveðin tíma­mót. Þarna var í fyrsta sinn komin skipu­lögð hreyf­ing á lands­vísu til að vinna að rétt­inda­málum þeldökkra, sem varð svo grunn­ur­inn að mann­rétt­inda­hreyf­ing­unni sem reis upp á sjötta ára­tugnum undir for­ystu fólks á borð við Rosu Parks og Martins Luther King.

Hvað Recy sjálfa áhrærir, þá bjó hún áfram í Abbeville í um tutt­ugu ár og mátti sífellt lifa í ótta um að henni eða hennar nán­ustu yrði gert mein. Hún flutti svo til Florida og þar sem hún bjó allt fram á efri ár þegar hana tók að bresta heilsu. Þá flutti hún aftur heim til að ætt­ingjar hennar gætu hugsað um hana í ell­inni.

Það var ekki fyrr en árið 2011 – eftir að gerð hafði verið heim­ild­ar­mynd um málið – sem yfir­völd í Alabama geng­ust við því að ákvörð­unin um að sækja nauð­gar­ana ekki til saka hafi verið „and­styggi­leg og ógeð­felld“.

Hún lést svo hinn 28. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, rétt fyrir 98 ára afmælið sitt, og tíu dögum áður en Oprah hélt nafni hennar og hug­rekki á lofti í fyrr­nefndri ræðu.

Mál Recy var alls ekk­ert eins­dæmi á Jim Crowe-árunum í Suð­ur­ríkj­unum, og jafn­vel eftir að lögum var breytt til að tryggja jafn­rétti kyn­þátta fyrir lögum héldu ofsóknir og ofbeldi, ekki síst gegn konum, áfram.

„Mörgum konum var nauðgað,“ sagði Recy í við­tali í fyrr­nefndri mynd. „En fólkið þarna, það var eins og þeim væri sama um hvað kom fyrir mig, og þeir gerðu ekk­ert í því. En ég gat ekki gert annað en segja sann­leik­ann um hvað þeir gerðu mér.“

Allt fram til okkar daga eru hópar sem vinna kerf­is­bundið að því að draga úr áhrifum þeldökkra og ann­arra minni­hluta­hópa, með laga­klækjum og stofn­ana­bundið mis­rétti er enn við lýði. Það sem vekur hins vegar von er að nú er unnið gegn þöggun, geng­ist við stað­reyndum, sem er grund­völl­ur­inn að fram­þróun í átt að jafn­rétti og rétt­læti. Recy og aðrar konur sem buðu vald­höfum og sam­fé­lag­inu byrg­inn til að standa fyrir sínu vörð­uðu þessa leið sem við erum á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íþátíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár