Í þá tíð… Anita Hill og árdagar þolendauppreisnarinnar

Anita Hill lét í sér heyra þegar fyrr­ver­andi yfir­maður hennar var til­nefndur til emb­ættis hæsta­rétt­ar­dóm­ara í Banda­ríkj­unum árið 1991. Hún sak­aði hann um kyn­ferð­is­lega áreitni og málið vakti mikla athygli. Hann var engu að síður skip­aður í emb­ætti.

Anita Hill steig fram þegar Clarence Thomas hafði verið tilnefndur til embættis hæstaréttardómara og sakaði hann um kynferðislegt áreiti. Mál þeirra endurómar enn í dag, aldarfjórðungi seinna.
Anita Hill steig fram þegar Clarence Thomas hafði verið til­nefndur til emb­ættis hæsta­rétt­ar­dóm­ara og sak­aði hann um kyn­ferð­is­legt áreiti. Mál þeirra end­ur­ómar enn í dag, ald­ar­fjórð­ungi seinna.

Síðustu miss­eri hafa orðið margs konar straum­hvörf þegar kemur að því að opna umræðu um kyn­ferð­is­of­beldi, og kerf­is­bundnu kynja­mis­rétti í stærra sam­hengi. Skemmst er að minn­ast #metoo vit­und­ar­vakn­ing­ar­innar sem hófst í kjöl­far opin­ber­unar sví­virði­legrar hegð­unar kvik­mynda­mó­gúls­ins Harveys Weinstein.

Sagan geymir hins vegar fjöld­ann allan af hug­rökkum konum sem hafa boðið feðra­veld­inu birg­inn og neitað að láta þagga niður í sér.

Anita Hill er ein af þeim. Hún er banda­rískur lög­maður sem steig fram árið 1991 eftir að Clarence Thomas hafði verið til­nefndur til emb­ættis hæsta­rétt­ar­dóm­ara.

Uppgangur Clarence Thomas

Hill réði sig til starfa hjá mann­rétt­inda­skrif­stofu mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins, 25 ára gömul, sem lög­fræði­ráð­gjafi Clarence Thomas og færði sig með honum ári seinna þegar Thomas tók við starfi for­manns nefndar um jafn­rétti á vinnu­stöðum (Equal Employ­ment Opportunity Commission).

Eftir að hafa starfað sem aðstoð­ar­maður Thomas í um það bil ár, hætti hún og sneri sér að kennslu.

Thomas kleif hins vegar met­orða­stig­ann. Hann var fram­ar­lega í flokki þeldökkra íhalds­manna og átti vísan stuðn­ing helstu for­víg­is­manna Repúblikana­flokks­ins. Árið 1990 til­nefndi George H W Bush Banda­ríkja­for­seti hann til stöðu dóm­ara við áfrýj­un­ar­dóm­stól en ári síðar vænk­að­ist hagur hans enn, þegar Thurgood Marshall ákvað að stíga til hliðar sem hæsta­rétt­ar­dóm­ari.

Marshall var fyrsti blökku­mað­ur­inn til að sitja í hæsta­rétti, en hann átti að baki langan feril sem bar­áttu­maður fyrir mann­rétt­indum og var með frjáls­lynd­ari dóm­urum við rétt­inn. Þannig hefði hlut­fallið milli íhalds­manna og frjáls­lyndra farið enn lengra til hægri með Thomas.

Við­brögðin við til­nefn­ingu Thomas létu ekki á sér standa þar sem hin ýmsu sam­tök lýstu yfir óánægju sinni. Þar voru helst mann­rétt­inda­sam­tök eins og NCAAP auk sam­taka sem börð­ust fyrir rétt­indum blökku­manna og kvenna. Þá voru lög­manna­sam­tök Banda­ríkj­anna mót­fallin til­nefn­ing­unni þar eð Thomas hafði aðeins verið alrík­is­dóm­ari í tvö ár fyrir þetta.

Fátt virt­ist þó benda til ann­ars en að skip­unin myndi svífa í gegnum öld­unga­deild þings­ins án mik­illa vand­kvæða.

Ásakanirnar koma fram

Í stað­fest­ing­ar­við­tal­inu við dóms­mála­nefnd öld­unga­deild­ar­innar kom fátt eitt fram, en nefndin var hins vegar klofin í afstöðu sinni. Sjö voru fylgj­andi og sjö á móti. Áður en öld­unga­deildin greiddi atkvæði um stað­fest­ingu Thomas í emb­ætti bár­ust hins vegar fregnir um að und­ir­maður hans, Anita Hill, hafi sakað hann um kyn­ferð­is­lega áreitni.

Við það var mál­inu vísað aftur til dóms­mála­nefnd­ar­innar og Anita Hill, sem þarna var orðin laga­pró­fessor við Uni­versity of Oklahoma, fékk að bera vitni um ásak­anir sínar.

Vitna­leiðsl­urnar vöktu gríð­ar­mikla athygli um land allt og víðar, enda var sýnt beint frá þeim í sjón­varpi. Hill bar að Thomas hafi farið á fjörur við hana, en þegar hún hafi hafnað honum hafi hann engu að síður haldið áfram að áreita hana með því að ræða end­ur­tekið opin­skátt um kyn­líf, klám og eigin kyn­getu og kyn­færi.

Eins og búast mátti við, þvertók Thomas alger­lega fyrir að hafa gert nokkuð óvið­eig­andi. Hann sagði að þetta væri aug­ljós­lega skipu­lögð her­ferð vinstri­manna gegn sér; þeir gætu ekki sætt sig við að þeldökkur íhalds­maður tæki sæti í hæsta­rétti. Ásak­an­irnar voru að hans mati eins konar sirkus. „Og frá mínum sjón­ar­hóli, sem svartur Banda­ríkja­maður, er þetta hátækni­af­taka fyrir uppi­vöðslu­sama svarta menn.“ („high-tech lynching for uppity blacks.“)

Hann veitt­ist að Hill í vitn­is­burði sínum. Sagðist hafa ætlað að hjálpa henni á frama­braut­inni, en hún hafi hvort sem er ekki verið störfum sínum vaxin.

Málið var ýmis­konar hefð­bundnum vand­kvæðum bundið, enda stóð þarna orð á móti orði. Hill var gagn­rýnd fyrir að hafa beðið með að opin­bera ásak­anir sínar í áraraðir, að hafa ekki hætt að vinna fyrir Thomas eftir að hann fór að áreita hana og einnig að hafa átt í sam­skiptum við Thomas eftir að hún hætti hjá honum.

Varðandi það, sagð­ist Hill hafa á þeim tíma von­ast til að áreitið hætti og því haldið áfram að vinna hjá Thomas eins lengi og raun bar vitni. Hún hafi svo fundið sig knúna til þess að stíga fram á þessum tíma­punkti, í ljósi þess að Thomas stefndi hrað­byri að sæti í æðsta lagi dóms­valds­ins.

Fjórar aðrar konur, einnig fyrr­ver­andi und­ir­menn Thomas, voru reiðu­búnar til að bera vitni um svip­aða hegðun hans í þeirra garð, en þær voru ekki kall­aðar til, meðal ann­ars vegna þess að þær hafi hætt í ósætti við Thomas á sínum tíma og hafi því ekki verið hlut­laus vitni.

Að loknum vitna­leiðslum var skipan Thomas stað­fest með 52 atkvæðum gegn 48, sem var tæp­asti meiri­hluti í stað­fest­ingu hæsta­rétt­ar­dóm­ara frá því á 19. öld.

Eftirleikurinn og #metoo

Þrátt fyrir að Clarence Thomas hafi fengið sitt í gegn má engu að síður sega að Anita Hill hafi valdið straum­hvörfum. Í kjöl­far máls­ins varð mikil vit­und­ar­vakn­ing í banda­rísku sam­fé­lagi um kyn­ferð­is­lega áreitni á vinnu­stöðum og til­kynn­ingum um slíkt fjölg­aði mikið á árunum sem fylgdu. Þá varð mikil aukn­ing í þátt­töku kvenna í stjórn­málum og kven­þing­mönnum fjölg­aði.

Málið varði einnig til þess að vekja umræður um hvort mann­rétt­inda­bar­áttan hafi sann­ar­lega skilað umbótum í raun og veru.

Clarence Thomas situr ann­ars enn í hæsta­rétti, og hefur allar götur frá skipan sinni raðað sér í hóp hinna íhalds­söm­ustu í dómnum. Hann hefur stillt sér upp gegn málum sem snúa að t.d. tak­mörkun byssu­eignar, jákvæðri mis­munun og fóst­ur­eyð­ingum og sem stuðn­ings­maður hefð­bund­inna íhalds­mála í lík­ingu við rétt­indi ríkj­anna gagn­vart alrík­inu og stöðu kristni umfram önnur trú­ar­brögð.

Hann situr enn fastur við sinn keip að ásak­anir Anitu Hill hafi verið runnar undan rifjum vinstri­manna.

Nú hefur málið enn og aftur kom­ist í hámæli í tengslum við brot Harveys Weinstein og ann­arra í #metoo upp­ris­unni, sem varpar enn og aftur ljósi á hvernig karlar í valda­stöðum mis­nota afstöðu sína til að brjóta á fólki og treysta á að skáka í skjóli áhrifa sinna.

Hill sagði í við­tali í síð­ustu viku að upp­ljóstr­an­irnar hafi vakið upp rétt­mætar spurn­ingar um hvort sam­fé­lag­inu hafi sann­ar­lega fleytt fram í jafn­rétt­is­málum, þegar þetta sé veru­leik­inn sem konur búa við, bæði í starfi og einka­lífi. Yfirvöld og framá­fólk í atvinnu­líf­inu þurfi nú að stíga fram og segja hvað standi til að gera til að ráða bót á þessu meini.

Hún segir þó að í dag megi greina ýmis bata­merki í umræð­unni. Meðal ann­ars að konur séu síður gagn­rýndar fyrir að stíga of seint fram.

Enn sé þó nokkuð verk óunnið.

„Það hefur orðið vit­und­ar­vakn­ing, en það hefur verið mis­brestur á því að menn hafi verið kall­aðir til ábyrgðar … Hvernig eigum við að sjá til þess að opin­berir ein­stak­lingar séu dregnir til ábyrgðar?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íþátíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár