Í þá tíð… Þegar „Púðurtunna Evrópu“ sprakk

Eftir fjög­urra alda veru í Evrópu stóð veldi hinna tyrk­nesku Ottómana á brauð­fótum. Deilur þjóð­ar­brota á Balkanskaga eftir brott­rekstur Tyrkja í upp­hafi ald­ar­innar, höfðu var­an­leg áhrif á valda­hlut­föll í Evrópu.

Þjóðarbrot á Balkanskaga hafa borist á banaspjót um langa hríð með miklum afleiðingum fyrir alla Evrópu.
Þjóð­ar­brot á Balkanskaga hafa borist á bana­spjót um langa hríð með miklum afleið­ingum fyrir alla Evrópu. Mynd: Topical Press Agency / Getty Images

Balkanskagi er stór­merki­legur fyrir margra hluta sakir. Þar er meðal ann­ars að finna fal­legt lands­lag, ríka menn­ing­ar­arf­leifð og fjöl­breytt mann­líf þar sem þjóð­ar­brotum og trú­ar­hópum ægir saman.

Þessi fjöl­breytni hefur einnig haft sína ókosti en hún var einmitt ein ástæðan á bak við ófrið­inn sem geis­aði í fyrrum ríkjum Júgóslavíu á tíunda ára­tug síð­ustu aldar og jafn­vel í dag er ástand þar við­sjár­vert, sér­stak­lega í Bosníu Her­segóvínu þar sem langt í frá er gróið um heilt milli þjóð­ar­brota.

Raunar er hug­takið Balkan-væð­ing (e. Balkanization) notað um það þegar ríki eða svæði skipt­ist upp í minni ein­ingar sem troða svo illsakir hvor við aðra.

Balkanskagi var um aldir undir yfir­ráðum Ottómana­veld­is­ins tyrk­neska, sem réði einnig ríkjum í Mið-Aust­ur­löndum og Norður-Afríku. Það var á valda­tíð Suleimans um mið­bik sext­ándu aldar sem veldi Ottómana stóð sem hæst og þeir höfðu lagt undir sig land­svæði þar sem í dag eru Grikk­land, Búlgaría, Ung­verja­land, Makedónía, Rúmenía, Serbía, Albanía og Svart­fjalla­land.

Með upp­risu þjóð­ern­is­hyggju á nítj­ándu öld, og sífellt veik­ara Ottómana­veldi fór ástandið á Balkanskaga að snú­ast til verri vegar og í upp­hafi 20. aldar var ljóst að í óefni stefndi. Það var um það leyti sem fyrst var farið að tala um Balkanskaga sem „Púð­ur­tunnu Evrópu“, í þeim skiln­ingi að ef allt færi þar upp í háa­loft, myndi sá hvellur finn­ast um ger­valla álf­una.

Það er mikið til í þeirri kenn­ingu að morðið á Franz Ferdin­and og hans frú í Sarajevo árið 1914 hafi hrundið fyrri heims­styrj­öld­inni af stað, og það hafi lagt grunn­inn að þeirri seinni, en í raun má rekja aðdrag­and­ann að því nokkur ár aftar í tím­ann þegar Fyrsta Balkan­stríðið braust út.

Af litlum neista…

Stór­veldin voru farin að líta Balkanskaga hýru auga fyrir alda­mótin þar sem hinir tyrk­nesku Ottómanar voru veikir fyrir. Aust­ur­ríki-Ung­verja­land inn­lim­aði Bosníu og Her­segóvínu árið 1908 og hvöttu Búlgaríu einnig til að lýsa yfir sjálf­stæði. Þetta ærði Serba, sem sjálfir höfðu brot­ist til sjálf­stæðis árið 1882 og fannst þeir eiga til­kall til Bosníu, sem og Rússa, sem voru dyggir stuðn­ings­menn Serba. Valda­jafn­vægið sem hafði tryggt sæmi­legan frið í álf­unni í rúm 40 ár hafði nú riðl­ast svo að ekki varð aftur snúið.

Árið 1912 hvöttu Rússar Serba, Búlgara, Grikki og Svart­fell­inga til að taka höndum saman og reka Tyrki frá Suð-Austur-Evrópu. Það var og nið­ur­staðan. Þau litu fram hjá deilu­málum sín á milli og stökktu Tyrkjum á flótta og innan mán­aðar höfðu Ottómanar misst ítök sín á Balkanskaga eftir nær fjög­urra alda valda­tíð.

Eftir atið flykkt­ust evr­ópsku veldin að til að skipta sér af mála­lokum með það að mark­miði að tryggja sér ítök í því tíma­rúmi sem mynd­að­ist með brott­hvarfi Tyrkja. Sátt­mál­inn eftir stríðs­lok fól í sér að Makedóníu var skipt upp milli hinna fjög­urra sig­ur­sælu ríkja, en Búlgurum fannst þeir samt bera skarðan hlut frá borði miðað við Grikki og Serba. Þeir gerðu því árás á Grikk­land og Serbíu, ein­ungis mán­uði eftir að vopna­hlé var lýst yfir, en mættu harðri mót­spyrnu og gagnárásum frá Serbíu, Grikk­landi, Tyrk­landi og Rúmeníu, sem kallað er seinna Balkan­stríðið, og end­uðu með því að missa enn meira land­svæði.

Þegar þarna var komið var Balkanskagi á suðu­punkti. Aust­ur­rík­is­menn voru orðnir afar tor­tryggnir í garð Serba og Rússa og því mátti lítið út af bera til að allt færi í hund og kött.

Það var í þessu spennu­hlaðna ástandi sem serbneskur aðskiln­að­ar­sinni í Bosníu á tán­ings­aldri, Gavrilo Princip að nafni, stökk að bíla­lest Franz Ferdin­ands, rík­is­arfa Aust­ur­ríkis-Ung­verja­lands og hleypti af tveimur skotum sem end­ur­óma um Evrópu enn þann dag í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íþátíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár