Í þá tíð… Sjö sérvalin undur og stórmerki

Hin sjö undur ver­aldar er hug­tak sem nær allir þekkja og hefur tíma­lausa skírskotun, þó fæstir geti nefnt þau öll. En hvernig var raðað á þennan lista og hvers vegna hefur hann lifað svo lengi óbreyttur.

Heim­ur­inn geymir undur mörg, stór og smá. Að telja þau til væri ógern­ingur, og hvers konar gagn­ger flokkun eftir und­ur­sam­leg­heitum væri frá­leitt fram­tak enda alltaf háð hug­lægu mati höf­undar.

Eða það hefði maður altjent haldið, en hins vegar er til einn slíkur listi sem er hægt að rekja nokkru aftur fyrir Krists burð og lifir enn góðu lífi í almennu tali, jafn­vel þó nútíma­menn hafi ekki séð nema eitt þeirra atriða sem þar eru talin. Það er vit­an­lega list­inn yfir hin sjö undur ver­aldar (eða forn­aldar).

Hvernig kom sá listi til og hvernig stendur á því að hann lifir enn?

Hellenar komu, sigruðu, sáu og skrifuðu

Þegar Alex­ander mikli lagði upp í her­för sína, þar sem hann lagði undir sig svæði sem teygði sig allt frá Tyrk­landi nútím­ans suður til Egypta­lands og austur til Indlands, hafði hann í för með sér menn­ingu og siði Grikkja, eða Hellena. Áhrifin voru hins vegar ekki síður á hinn veg­inn þar sem hellenískir ferða­langar sem fylgdu í spor Alex­and­ers komust í kynni við marga und­ur­sam­lega staði sem höfðu áður verið þeim huldir.

Nokkrir þeirra færðu upp­lifun sína í rit, les­endum sínum til upp­lýs­ingar, og töldu upp það mark­verð­asta sem þeir sáu á ferðum sínum. Þeir listar sem oft­ast er vísað í eru frá annarri öld f.kr. og eru ann­ars vegar eftir Fílon frá Býsans og hins vegar eftir skáldið Antipatros (lat. Antipa­ter) frá Sídon, en einnig hafa varð­veist rit frá sagn­fræð­ing­unum Heródótusi og Dío­dórusi , land­fræð­ingnum Strabó og fleirum.

Raunar er ekki alls kostar rétt að þessir grísku höf­undar hafi talið upp „undur“, heldur tala þeir um „staði sem áhuga­vert væri að sjá. Segja mætti að þeir hafi verið eins konar TripA­dvisor-ar síns tíma. Munurinn liggur í að fyrst var notað orðið theamata, sem síðar umbreytt­ist í thaumata, sem útleggst sann­ar­lega sem undur.

Allt er breyt­ingum háð. Líka list­inn

Nú er ráð að telja upp undrin sjö sem eru almennt talin í þessum hópi.

Það eru:

Píramíd­arnir við Giza. Reistir um 2.500 f.kr. og standa enn, einir af undr­unum sjö.

Hengi­garð­arnir í Babýlon. Stölluð stór­bygg­ing með glæsi­legum gróðri. Taldir hafa verið byggðir á valda­tíma Nebúka­desar II um 600 f.kr. en þrátt fyrir allt finnst ekk­ert um garð­ana í varð­veittum ritum frá þessum tíma og engar merki um þá hafa fund­ist við forn­leifa­upp­gröft.

Seifs­styttan í Ólympíu. Um 13 metra há stytta af Seifi úr fíla­beini, gulli og tré; skreytt alls konar eðal­steinum smíðuð um 435 f.kr. Eyði­lagð­ist senni­lega á 5. eða 6. öld e.kr.

Artem­is­ar­hofið í Efesos. Bygging hofs­ins hófst um 550 f.kr. og var það sjálfur Krösus kon­ungur sem kost­aði það til að byrja með, en það þótti ein­stak­lega glæsi­legt, 115m langt og 13m hátt og ein­stak­lega fag­ur­lega skreytt, enda mælti fyrr­nefndur Antipatros sér­stak­lega með því í upp­taln­ingu sinni á sínum tíma.

Mauso­leus­ar­hofið í Halik­arnassos. Byggt um 350 f.kr. 45m hátt. Eyði­lagð­ist í jarð­skjálfta 1496 e.kr.

Kólossus - Risinn á Ródos. Gríð­ar­stór 32m há brons­stytta af sólguð­inum Heíos sem gnæfði yfir inn­sigl­ing­unni að Ródos. Var reist árin 294-282 f.kr. en féll í jarð­skjálfta tæpum 60 árum síðar. Þar lágu leifar ris­ans í 800 ár þar til hann var hlut­aður í sundur og bronsið flutt burt á 900 úlföldum og selt.

Vitinn í Faros við Alex­andríu í Egypta­landi. Ptolema­íos II. af Egypta­landi lauk bygg­ingu hans, um 280 f.kr. en hann hrundi senni­lega í jarð­skjálfta á 14. öld. Vitinn var ekki á lista Antipatrosar (hann taldi veggi Babýlons í stað­inn) og raunar ekki tal­inn í hópi hinna sjö undra ver­aldar fyrr en á 6. öld e.kr. og nú er hann þar ennþá.

Flestir draga þessir staðir dám af upp­runa list­ans góða, þ.e. þeir eru grískir að upp­runa, en það ber einnig vitni um heims­sýn Hellena. Þeirra heimur var Mið­jarð­ar­hafið og löndin sem Alex­ander lagði undir sig.

Glöggir les­endur hafa líka vafa­laust séð að undrin sjö voru aðeins til á sama tíma (ef þau voru sann­ar­lega öll til - sjá Hengi­garð­arnir) í um 60 ár, á meðan Kólossus vaktaði Ródos.Aðrir merki­legir staðir/bygg­ingar/lista­verk sem voru einnig talin í þessum hópi voru t.d. Hring­leika­húsið í Róm, Musteri Salómons kon­ungs í Jer­úsalem og sumir áttu sann­ar­lega heima á þessum lista, en Hellenar/Evr­ópu­búar þekktu hrein­lega ekki til þeirra, eins og til dæmis Kína­m­úr­inn.

Loks má geta þess að þeir Strabó og Heródótus minn­ast á Völ­und­ar­húsið í Egypta­landi, sem var að sögn gríð­ar­stórt graf­hýsi, stað­sett á bökkum Nílar, um sjö dag­leiðum sunnan við Píramídana og er, hið minnsta, frá 1.800 f.kr. Stærð þess og íburður, ef sög­urnar eru sannar, voru jafn­vel stór­feng­legri en píramíd­arnir sjálfir í Giza. Nýlegur upp­gröftur bendir til þess að leifar völ­und­ar­húss­ins hafi fund­ist, en ekki hefur verið ráð­ist í meiri­háttar rann­sóknir á staðnum.

Fróðlegt væri að reyna að keyra í gegn ein­hvers­konar alþjóð­legt fram­tak til að ná sátt um sjö nútímaundur heims­ins, en það er næsta víst að það myndi valda um það bil sjö meiri­háttar stríðs­á­tökum og við vitum öll að Boaty McBoatface myndi vinna net­kosn­ing­una.

(Heim­ildir: Vís­inda­vef­ur­inn, Britannica, Wikipedia ofl.)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íþátíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár