Vörusala Haga dróst saman um 5,6 milljarða á milli ára

Umtals­verður sam­dráttur varð í vöru­sölu Haga, stærsta smá­sala lands­ins, á fyrstu níu mán­uðum upp­gjörsárs félags­ins. Kostn­aður við rekstur lækk­aði hins vegar á móti, meðal ann­ars vegna styrk­ingu krón­unnar. Hluta­bréf í Högum lækk­uðu um 33,8 pró­sent í fyrra.

Bónus er stærsta matvöruverslanakeðja landsins. Og krúnudjásn Haga.
Bónus er stærsta mat­vöru­versl­ana­keðja lands­ins. Og krúnu­djásn Haga. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vörusala Haga dróst saman um tvo millj­arða króna á þriðja árs­fjórð­ungi síð­asta árs, miðað við sama árs­fjórð­ung árið 2016. Á fyrstu níu mán­uðum upp­gjörsárs félags­ins dróst hún saman um tæp­lega 5,6 millj­arða króna. Félaginu gekk á sama tíma vel að draga úr kostn­aði. Þar skipti styrk­ing krón­unnar umtals­verðu máli. Framlegð, mun­ur­inn á vöru­sölu og kostn­að­ar­verði seldra vara, Haga minnk­aði því ekki um sömu tölur. Hún dróst saman um 636 millj­ónir króna á þriðja árs­fjórð­ungi í sam­an­burði við sama árs­fjórð­ung árið 2016. Á fyrstu níu mán­uðum upp­gjörsárs­ins var sam­drátt­ur­inn í fram­legð tæp­lega 1,5 millj­arðar króna.

[links]Ofan­greint hafði umtals­verð áhrif á afkomu Haga fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) á níu mán­aða tíma­bil­inu, en EBITDA-hlut­fallið fór úr 7,7 pró­sent í sex pró­sent á milli ára. Hagnaður tíma­bils­ins eftir skatta var 1,9 millj­arðar króna, sem er 1,2 millj­arði krónum minni hagn­aður en á sama tíma­bili á árinu 2016.

Þetta kemur fram í árs­hluta­upp­gjöri Haga sem birt var í gær. Reikn­ing­ur­inn er fyrir tíma­bilið 1. mars 2017 til 30. nóv­em­ber 2017.

Miklar breytingar eftir innreið Costco

Hagar hafa gengið í gegnum miklar breyt­ingar á und­an­förnu ári og aukin sam­keppni, með inn­reið Costco á mark­að­inn í maí 2017, hafði víð­tæk áhrif á starf­semi þessa stærsta smá­sala á Íslandi. Hagar sendu frá sér tvær afkomu­við­var­anir á síð­asta ári vegna þess sölu­sam­dráttar sem átt hafði sér stað hjá félag­inu á fyrstu mán­uð­unum eftir að Costco hóf starf­semi.

Enda lækk­uðu hluta­bréf í Högum til að mynda um 33,8 pró­sent á síð­asta ári. Lækk­un­ar­hrinan hefur gert það að verkum að mark­aðsvirði Haga hefur farið úr 64,6 millj­örðum króna dag­inn áður en að Costco opn­aði, í 41,6 millj­arða króna í dag.

Stærsta ástæða þess er sú að Costco hefur tek­ist að ná umtals­verðri mark­aðs­hlut­deild í dag­vöru og gert það að verkum að verð hefur lækkað hjá öðrum stórum leik­endum á þeim mark­aði, meðal ann­ars Högum. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna upp­gjörs þriðja árs­fjórð­ungar segir að verð­hjöðnun muni áfram hafa áhrif á rekstur félags­ins. „Framlegð félags­ins er nær óbreytt milli ára og því ljóst að verð­lækk­anir skila sér í lægra vöru­verði til hags­bóta fyrir við­skipta­vini félags­ins.“

Búið að aðlaga félagið að breyttum veruleika

Hagar hófu und­ir­bún­ing fyrir þau umskipti sem urðu á íslenskum smá­sölu­mark­aði tölu­vert áður en að Costco opn­aði. Þannig var ákveðið að leggja af starf­semi Deb­en­hams í Smára­lind, Outlet-verslun á Korpu­torgi, Úti­lífs­verslun í Glæsibæ, mat­vöru­hluta Hagkaups í Holta­görðum, efri hæð Hagkaups í Kringl­unni og ýmsar tísku­versl­anir í Smára­lind og Kringl­unni.

[adspot]Þessar breyt­ingar spila hlut­verk í því að sala á vörum dróst saman á fyrstu níu mán­uðum upp­gjörs­tíma­bils Haga. Heild­ar­sölu­sam­dráttur var 9,4 pró­sent á tíma­bil­inu, miðað við saman tíma­bil árið áður, en 5,2 pró­sent ef frá er talin aflagða starf­semin.

Það breytir því ekki að í mat­vöru­versl­ana­hluta sam­stæð­unnar var sölu­sam­dráttur 5,1 pró­sent þegar búið er að leið­rétta fyrir þeim versl­unum sem var lokað.

Samhliða því að loka alls kyns versl­unum var ráð­ist í breyt­ingar á öðrum. Þannig var verslun Bónus í Smára­torgi stækkuð og end­ur­bætt verslun Hagkaups opnuð á 1. hæð í Kringl­unni. Þá opn­aði fyrir skemmstu ný ZARA verslun á tveimur hæðum í Smára­lind.

Í til­kynn­ingu Haga til Kaup­hallar í gær­kvöldi segir enn fremur að tekin hafi verið ákvörðun um að flytja versl­anir Bónus í Faxafeni og Mos­fellsbæ. „Versl­unin í Faxafeni mun flytja í Skeifuna 11 seinni hluta árs en þar eru að hefj­ast fram­kvæmdir við að end­ur­byggja þann hluta eign­ar­innar sem skemmd­ist í bruna árið 2014. Þá hefur verið skrifað undir kaup­samn­ing um fast­eign við Háholt 17-19 í Mos­fellsbæ og mun verslun Bónus flytja þangað á haust­mán­uðum.“

Von á niðurstöðu um Olís

Hagar urðu fyrir áfalli í fyrra­sumar þegar Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafn­aði sam­runa þess við Lyfju. Hagar til­kynntu um það í lok apríl 2017 að félagið ætl­aði að kaupa Olís á 9,1 millj­arða króna. Þau kaup bíða einnig sam­þykkis Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Vænta má nið­ur­stöðu eft­ir­lits­ins um mán­aða­mótin febr­úar/mars.

Helstu eig­endur Haga eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

smásala

Fréttirsmásala

Stjórn­endur og inn­herjar í Högum seldu hluta­bréf sín í félag­inu

Helstu stjórn­endur smá­söluris­ans Haga og aðilar tengdir þeim hafa selt hluti sína í félag­inu á und­an­förnum vikum. Á meðal þeirra sem það hafa gert eru Guð­mundur Mart­eins­son, fram­kvæmda­stjóri Bónus, og eig­in­kona hans sem seldu bréf fyrir um 100 millj­ónir króna í síð­ustu viku. Eig­in­kona Finns Árna­sonar, for­stjóra Haga, seldi einnig hluti fyrir tæp­lega 50 millj­ónir króna í júlí og Kjartan...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár