H&M með næstum fjórðungsmarkaðshlutdeild nú þegar

H&M er á leið til lands­ins. Það eru stór­tíð­indi fyrir íslenska verslun.

H&M er á leið til lands­ins, eins og Morg­un­blaðið greindi frá í dag. Reg­inn hf. og dótt­ur­fé­lag þess, Eign­ar­halds­fé­lagið Smára­lind ehf., hafa und­ir­ritað leigu­samn­inga við dótt­ur­fé­lag H&M Henn­es & Mauritz AB (publ.) um hús­næði und­ir tvær versl­an­ir und­ir merkj­um H&M.

Samn­ing­arn­ir ná til tveggja stað­setn­inga. Ann­ars veg­ar versl­un­ar í Smára­lind og hins veg­ar í miðbæ Reykja­vík­ur (á Hafn­ar­torgi). Versl­an­irn­ar munu opna á ár­un­um 2017 og 2018, að því er fram kom í Morg­un­blað­inu.

[adspot]

Þrátt fyrir að H&M, sem er ein stærsta fata­versl­un­ar­keðja heims­ins, hafi aldrei rekið verslun hér á landi, þá hafa rann­sóknir sýnt að mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins í fatainn­kaupum Íslend­inga er mikil og stöðug.

Kjarninn fjall­aði um stöð­una eins og hún birt­ist hjá not­endum heim­il­is­fjár­mála­hug­bún­að­ar­ins Meniga, fyrir árið 2013. Tæp 37 pró­sent not­enda Meniga versl­aði í H&M. Tekju­hærri hópar versla mun oftar en þeir tekju­lægri. Þannig versl­uðu 26 pró­sent tekju­lægsta hóps­ins í H&M í sam­an­burði við 47 pró­sent þeirra tekju­hæstu.

Lít­ill sem eng­inn munur var á með­al­upp­hæð sem keypt var fyrir í hvert sinn eftir tekju­hóp­um, en hún var rúmar 15 þús­und krónur. Sama má segja um heild­ar­upp­hæð sem þeir vörðu í H&M á árinu 2013, en hún nam að með­al­tali 32 þús­und krónum.

Sé litið til heild­ar­innar þá var mark­aðs­hlut­deild H&M 22 pró­sent í fatainn­kaupum Íslend­inga, þrátt fyrir að engin verslun hafi til þess verið stað­sett á land­inu. Líklegt verður að telj­ast að inn­reið H&M hingað til lands geti haft veru­leg áhrif á verslun hér á landi, sé mið tekið af þessum tölum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

smásala

Fréttirsmásala

Stjórn­endur og inn­herjar í Högum seldu hluta­bréf sín í félag­inu

Helstu stjórn­endur smá­söluris­ans Haga og aðilar tengdir þeim hafa selt hluti sína í félag­inu á und­an­förnum vikum. Á meðal þeirra sem það hafa gert eru Guð­mundur Mart­eins­son, fram­kvæmda­stjóri Bónus, og eig­in­kona hans sem seldu bréf fyrir um 100 millj­ónir króna í síð­ustu viku. Eig­in­kona Finns Árna­sonar, for­stjóra Haga, seldi einnig hluti fyrir tæp­lega 50 millj­ónir króna í júlí og Kjartan...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár