Stjórnendur og innherjar í Högum seldu hlutabréf sín í félaginu

Bónus er stærsta verslunarkeðjan innan Haga.
Bónus er stærsta versl­un­ar­keðjan innan Haga. Mynd: Anton Brink

Helstu stjórn­endur smá­söluris­ans Haga og aðilar tengdir þeim hafa selt hluti sína í félag­inu á und­an­förnum vikum. Á meðal þeirra sem það hafa gert eru Guð­mundur Mart­eins­son, fram­kvæmda­stjóri Bónus, og eig­in­kona hans sem seldu bréf fyrir um 100 millj­ónir króna í síð­ustu viku. Eig­in­kona Finns Árna­sonar, for­stjóra Haga, seldi einnig hluti fyrir tæp­lega 50 millj­ónir króna í júlí og Kjartan Már Frið­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Banana ehf., dótt­ur­fyr­ir­tækis Haga, seldi allan hlut sinn í félag­inu í sama mán­uði. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þar er salan á hlut­unum sett í sam­hengi við komu Costco á íslenskan smá­sölu­markað, sem mun eiga sér stað á næsta ári og áhyggjur af því að sú inn­reið muni hafa nei­kvæð áhrif á hluta­bréfa­verð í Högum. Hvorki Guð­mundur né Finnur vildu ræða söl­una á hluta­bréf­unum við Frétta­blaðið.

30 prósent lægra vöruverð

Í jan­úar 2015 var stað­fest að Costco, sem er önnur stærsta smá­sölu­versl­un­ar­keðja í heimi, ætl­aði sér að opna risa­verslun í Garðabæ og að samn­ingar þess efnis væri langt komn­ir. Þá stóð til að versl­unin myndi opna á fyrri hluta árs­ins 2016 en síðar var sú dag­setn­ing færð aftur til nóv­em­ber­mán­að­ar. Nú stendur til að versl­unin opni á næsta ári.

Í skýrslu sem fyr­ir­tækið Zenter vann um komu Costco til Íslands í byrjun júní­mán­aðar sagði að inn­koma fyr­ir­tæk­is­ins myndi umbylta íslenska mark­aðn­um. Costco byði að jafn­aði upp á 30 pró­sent lægra vöru­verð en gengur og ger­ist hér­lendis og við­mið þess í álagn­ingu er að leggja ein­ungis 15 pró­sent ofan á vör­ur.

Í versl­unum Costco eru seldar allskyns vör­ur. Þar er meðal ann­ars boðið upp á mat­vöru, heim­il­is­tæki, raf­tæki, hús­gögn, dekk, föt, elds­neyti, skart­gripi og gler­augu. Því verða áhrif inn­komu fyr­ir­tæk­is­ins á íslenska smá­sölu nokkuð víð­tæk og ná yfir ansi marga und­ir­mark­aði henn­ar. Til að átta sig á stærð­argráðu fyr­ir­tæk­is­ins Costco þá má benda á að það veltir um það bil tíu sinnum meira en íslenska hag­kerfið á ári.

Fengu gefins hluti eftir að hafa selt hluti

Eftir að dótt­ur­fé­lag Arion banka tók yfir Haga og end­ur­skipu­lagði félagið í kjöl­far hruns­ins lét það fimm stjórn­endum Haga í té hluti í félag­inu án end­ur­gjalds og greiddi skatta af hlunn­ind­unum í tengslum við sam­komu­lag sem batt þá til starfa hjá félag­inu. Heild­ar­verð­mæti gjörn­ings­ins var um 340 millj­ónir króna. Var sam­komu­lagið gert í tengslum við sölu á 20 til 30 pró­senta hlut í Högum í Kaup­höll­inni til nýrra eig­enda, þegar félagið var skráð á markað fyrst félaga eftir banka­hrun.

Tveir stjórn­end­anna voru þeir Finnur Árnason og Guð­mundur Mart­eins­son sem fengu hvor 0,4 pró­senta hlut í félag­inu. Þeir Finnur og Árni áttu áður tals­vert hlutafé í Högum sem þeir seldu til félags­ins sjálfs á árunum 2008 til 2009 fyrir hund­ruð millj­óna króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

smásala

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár