665 milljónir fara í að mæta vanda sauðfjárbænda

Á fjár­auka­lögum er gert ráð fyrir að sauð­fjár­rækt fái 665 millj­ónir króna til að mæta mark­aðs­erf­ið­leikum í grein­inni. Greiðsl­urnar koma til við­bótar við bein­greiðslur úr rík­is­sjóði sam­kvæmt búvöru­samn­ingum, sem nema 4,7 millj­örðum að með­al­tali á ári.

Rík­is­stjórnin ætlar að veita 665 millj­ónum króna til að bregð­ast við mark­aðs­erf­ið­leikum í sauð­fjár­rækt. Þetta kemur fram í fjár­auka­lögum. Þar segir að þetta sé í sam­ræmi við áform rík­is­stjórn­ar­innar eins og þau birt­ist í stjórn­ar­sátt­mál­anum.

[links]Í fjár­auka­lögum segir að til að koma til móts við sauð­fjár­bændur í þeirri stöðu sem þeir eru sé lagt til að 300 millj­ónum króna verði varið í greiðslur til bænda sem mið­ast við fjölda kinda á vetr­ar­fóðrum. 200 millj­ónum króna verður varið í „svæð­is­bundin stuðn­ing til við­bótar við svæð­is­bund­inn stuðn­ing“. Þá munu 100 millj­ónir króna fara í að und­ir­byggja verk­efni á sviði kolefn­is­jöfn­unar, nýsköp­unar og mark­aðs­setn­ingar og 15 millj­ónum króna veður varið í úttekt á afurð­ar­stöðvakerf­inu sem verði grund­völlur við­ræðna stjórn­valda, slát­ur­leyf­is­hafa og bænda um breyt­ingar „til hags­bóta fyrir neyt­endur og bændur“. Ef nið­ur­staða úttekt­ar­innar leiðir í ljós að hægt sé að lækka slát­ur­kostnað og auka hag­ræð­ingu í grein­inni þá er opnað á þann mögu­leika að allt að 50 millj­ónum króna geti verið nýttar til að styðja við hag­ræð­ingu í slát­ur­húsum.

Allar ofan­greindar greiðsl­ur koma til við­bótar bein­greiðslum úr rík­is­sjóði til sauð­fjár­bænda, sem sam­þykktar voru með und­ir­ritun og stað­fest­ingu búvöru­samn­inga í fyrra. Þær eiga að skila sauð­fjár­bændum 47 millj­örðum króna á tíu ára tíma­bili, eða um 4,7 millj­örðum króna að með­al­tali á ári. Auk þess fengu sauð­fjár­­bændur 100 millj­­ónir króna á fjár­­auka­lögum árs­ins 2016 í mark­aðs­­mál sem átti að nota til að koma í veg fyrir verð­­lækkun á lamba­­kjöti hér­­­lend­­is.

Átti að endurskoða búvörusamning

Þann 18. ágúst síð­ast­lið­inn var lagt fram minn­is­blað á rík­is­stjórn­ar­fundi um til­lögur þáver­andi stjórn­valda vegna erf­ið­leika sauð­fjár­bænda. Sama dag voru þær kynntar á hita­fundi í atvinnu­vega­nefnd Alþing­is. Í kjöl­farið ákvað rík­is­stjórnin að fela full­trúum þriggja ráðu­neyta að útfæra hug­mynd­irnar frekar, meðal ann­ars í sam­ráði við for­ystu Bænda­sam­taka Íslands og Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda. Til­lög­urnar voru svo birtar opin­ber­lega 4. sept­em­ber, níu dögum áður en að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sprakk.

[adspot]Til­lög­urnar, sem Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra lagði fram, áttu að kosta rík­is­sjóð um 650 millj­ónir króna. Sam­kvæmt þeim átti að verða gripið til umfangs­mik­illa aðgerða sam­hliða við­bót­ar­fjár­fram­lag­inu. Til dæmis átti að draga úr fram­leiðslu kinda­kjöts og fækka um leið fé um 20 pró­sent. Þeir bændur sem hætta sauð­fjár­fram­leiðslu áttu að geta haldið 90 pró­sent af greiðslum sam­kvæmt sauð­fjár­samn­ingi í fimm ár og grípa átti til sér­tækra aðgerða til að draga úr yfir­vof­andi kjara­skerð­ingu bænda. Á móti átti að krefj­ast þess að búvöru­samn­ingur sauð­fjár­bænda, sem var und­ir­rit­aður í fyrra og gildir til tíu ára, yrði end­ur­skoð­að­ur.

Engin ofan­greindra skil­yrða eru sett fyrir fjár­fram­lag­inu á fjár­auka­lögum.

Mátu tap sitt á 1,9 millj­arða

Afurð­ar­stöðvar til­kynntu sauð­fjár­bændum í sumar að verð fyrir lamba­kjöt myndi lækka um 35 pró­sent í ár. Sú lækkun kemur ofan á tíu pró­sent lækkun sem átti sér stað í fyrra. Ástæðan er offram­leiðsla. Mun meira er fram­leitt en eft­ir­spurn er eft­ir. Umfangið var talið vera um 1.200 tonn. Þetta leiddi til þess að laun sauð­fjár­bænda stefndu í að verða 56 pró­sent lægri á þessu ári en í fyrra og nán­ast öll sauð­fjárbú yrðu rekin með tapi. Sömu sögu er að segja með afurð­ar­stöðv­ar.

Þau útgjöld sem fjár­auka­lög gera ráð fyrir að ráð­ist verði í verða ekki nálægt þeim 1,9 millj­­arði króna sem Lands­­sam­tök sauð­fjár­­bænda hafa sagt að þurfti til að bæta sauð­fjár­­bændum upp tap þeirra vegna fram­­leiðslu árs­ins 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landbúnaðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár