Ríkið býðst til að setja 650 milljónir í að mæta vanda sauðfjárbænda

Í til­lögum stjórn­valda vegna erf­ið­leika sauð­fjár­bænda er lagt til að ríkið greiði um 650 millj­óna fram­lag til að mæta stöðu þeirra. Á móti vill ríkið að ráð­ist verði í aðgerðir til að draga úr fram­leiðslu og að búvöru­samn­ingar verði teknir upp.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ber ábyrgð á tillögunum.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, ber ábyrgð á til­lög­unum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tillögur stjórn­valda vegna yfir­stand­andi erf­ið­leika í sauð­fjár­rækt munu kosta rík­is­sjóð um 650 millj­ónir króna, komi þær til fram­kvæmda. Samkvæmt þeim verður gripið til umfangs­mik­illa aðgerða til að draga úr fram­leiðslu kinda­kjöts og fækka um leið fé um 20 pró­sent. Þeir bændur sem hætta sauð­fjár­fram­leiðslu munu geta haldið 90 pró­sent af greiðslum sam­kvæmt sauð­fjár­samn­ingi í fimm ár og gripið verður til sér­tækra aðgerða til að draga úr yfir­vof­andi kjara­skerð­ingu bænda. Á móti verður þess kraf­ist að búvöru­samn­ingur sauð­fjár­bænda, sem var und­ir­rit­aður í fyrra og gildir til tíu ára, verði end­ur­skoð­aður.

[links]Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, lagði fram minn­is­blað um til­lög­urnar í rík­is­stjórn­ar­fundi 18. ágúst síð­ast­lið­inn. Sama dag voru þær kynntar á hita­fundi í atvinnu­vega­nefnd Alþingis. Í kjöl­farið ákvað rík­is­stjórnin að fela full­trúum þriggja ráðu­neyta að útfæra hug­mynd­irnar frekar, meðal ann­ars í sam­ráði við for­ystu Bænda­sam­taka Íslands og Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda. Til­lög­urnar voru svo birtar opin­ber­lega í dag.

Meta tap sitt á 1,9 milljarða

Kjarninn greindi frá meg­in­uppi­stöð­unum í til­lög­unum í frétta­skýr­ingu í síð­ustu viku. Þar kom fram að þau útgjöld sem ríkið ætl­aði að leggja út í til að mæta bráða­vanda sauð­fjár­bænda vegna þess að afurð­ar­stöðvar hafa til­kynnt þeim að verð fyrir lamba­kjöt muni lækka um 35 pró­sent. Sú lækkun kemur ofan á tíu pró­sent lækkun sem átti sér stað í fyrra. Ástæðan er offram­leiðsla. Mun meira er fram­leitt en eft­ir­spurn er eftir. Umfangið er talið vera um 1.200 tonn. Þetta leiðir til þess að laun sauð­fjár­bænda stefna í að verða 56 pró­sent lægri á þessu ári en í fyrra og nán­ast öll sauð­fjárbú verða rekin með tapi. Sömu sögu er að segja með afurð­ar­stöðvar.

[adspot]Nú liggur fyrir að ríkið ætlar sér að setja 650 millj­ónir króna í aðgerðir sem eiga að mæta bráða­vand­anum og vinna að lausnum sem eiga að tryggja að þessi staða komi ekki upp aftur. Til­lög­urnar þarf að sam­þykkja á auka­að­al­fundi Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda þar sem skil­yrði stjórn­valda fyrir fjár­út­lát­unum kalla á breyt­ingar á búvöru­samn­ingi.

Þau útgjöld sem sam­þykkt hefur verið að ráð­ast í verða þó ekki nálægt þeim 1,9 millj­arði króna sem Lands­sam­tök sauð­fjár­bænda hafa sagt að þurfti til að bæta sauð­fjár­bændum upp tap þeirra vegna fram­leiðslu árs­ins 2017. Ekkert er um end­ur­upp­töku útflutn­ings­skyldu í til­lög­unum, en háværar kröfur hafa verið um að slík verði tekin aftur upp. Útflutn­ings­skyldan var aflögð 2009 eftir að ríkið keypti hana af bændum.

Fé verði fækkað um 20 prósent

Verði til­lög­urnar sam­þykktar þá verður ráð­ist í umfangs­miklar aðgerðir til að draga úr fram­leiðslu á kinda­kjöti. Mark­miðið með þeim aðgerðum er að fé verði fækkað um 20 pró­sent með því að gefa bændum kost á því að hætta sauð­fjár­fram­leiðslu en halda 90 pró­sent greiðslum sam­kvæmt sauð­fjár­samn­ingi í fimm ár, 2018-2022. Fé er í dag um 450 þús­und. Val verður um hvort greiðslan yrði greidd í formi ein­greiðslu eða með jöfnum greiðslum á fimm ára tíma­bili. Þá segir í til­lög­unum að þeir eigi kost á greiðslu slát­ur­á­lags „sem taka ákvörðun um fækkun að lág­marki um 50 kindur haustið 2017. Þeir sem ákveða að nýta sér þessi úrræði geri um það samn­inga. Mat­væla­stofnun verði falið að ann­ast gerð þeirra. Þeir sem kjósa að hætta á árinu 2018 geta gert sams­konar samn­inga en eiga þá kost á 70 pró­sent greiðslum skv. fram­an­greindu í þrjú ár, 2019-2021. Skal sú ákvörðun liggja fyrir eigi síðar en 1. júlí 2018.“

Rík­is­sjóður er til­bú­inn að greiða fjögur þús­und króna slát­ur­á­lag á ær sem koma til slátr­unar í haust og það fram­lag yrði fjár­magnað með fram­lagi á fjár­auka­lögum. Kostn­aður rík­is­sjóðs við það yrði um 250 millj­ónir króna. Ekki verður greitt þetta álag eftir að kom­andi slát­ur­tíð lýkur. „Styrkur verði greiddur að hámarki fyrir 62.500 ær. Verði óskað eftir slát­ur­á­lagi á fleiri ær gildi reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Þó skuli þeir njóta for­gangs sem taka ákvörðun um að hætta sauð­fjár­bú­skap alfarið.“

Þeir fram­leið­endur sem gera samn­inga um að hætta skuld­binda sig til að taka ekki upp sauð­fjár­fram­leiðslu að nýju á gild­is­tíma núver­andi sauð­fjár­samn­ings. Þeir sem gera samn­inga um fækkun skuld­binda sig til að auka ekki fram­leiðslu sína á gild­is­tíma núver­andi sauð­fjár­samn­ings. Kvöðin verði bundin við fram­leið­anda og tengda aðila.

Sérstakir styrkir til bænda í dreifbýli

Þá á einnig að ráð­ast í aðgerðir til að draga úr yfir­vof­andi kjara­skerð­ingu sauð­fjár­bænda. Þær fela m.a. í sér greiðslur upp á sam­tals 250 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði til allra þeirra bænda sem eru með fleiri en 150 vetr­ar­fóðr­aðar kindur.

Auk þess verður ráð­ist í svæð­is­bund­inn stuðn­ing sem fer fyrst og frest til þeirra bænda sem eiga erfitt með að sækja atvinnu utan bús­ins vegna fjar­lægðar frá þétt­býli. Rík­is­sjóður leggur 150 millj­ónir króna í þetta verk­efni sam­kvæmt til­lög­unum.

Allar ofan­greindar greiðslur, sam­tals 650 millj­ónir króna, koma til við­bótar bein­greiðslum úr rík­is­sjóði til sauð­fjár­bænda, sem sam­þykktar voru með und­ir­ritun og stað­fest­ingu búvöru­samn­ings í fyrra. Þær eiga að skila sauð­fjár­bændum 47 millj­örðum króna á tíu ára tíma­bili, eða um 4,7 millj­örðum króna að með­al­tali á ári. Auk þess fengu sauð­fjár­bændur 100 millj­ónir króna á fjár­auka­lögum árs­ins 2016 í mark­aðs­mál sem átti að nota til að koma í veg fyrir verð­lækkun á lamba­kjöti hér­lend­is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár