Ætla að mæta bráðavanda sauðfjárbænda með umtalsverðum útgjöldum

Tillögur um hvernig bráða­vanda sauð­fjár­bænda verði mætt verða lagðar fram í vik­unni. Í þeim fel­ast umtals­verð útgjöld fyrir rík­is­sjóð en líka krafa um breyt­ingar á kerfi sem leiðir sífellt af sér offram­leiðslu. Krafist verður upp­töku á búvöru­samn­ingi.

Stjórn­völd eru komin langt með að móta þær til­lögur sem lagðar verða fram til að mæta stöðu sauð­fjár­bænda. Til­lög­urnar verða lagðar fram í þess­ari viku, lík­lega á fimmtu­dag. Þær munu, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, snúa því að leysa þann bráða­vanda sem felst í tug­pró­senta kjara­skerð­ingu til bænda og fela í sér umtals­verð útgjöld fyrir rík­is­sjóð verði til­lög­urnar sam­þykktar.

Þau útgjöld verða þó ekki nálægt þeim 1,9 millj­arði króna sem Lands­sam­tök sauð­fjár­bænda hafa sagt að þurfti til að bæta sauð­fjár­bændum upp tap þeirra vegna fram­leiðslu árs­ins 2017. Auk þess munu stjórn­völd setja fram skýrar for­sendur fyrir þeim við­bót­ar­út­gjöldum. Þar skiptir mestu að sauð­fjár­bændur sam­þykki að tak­marka fram­leiðslu til fram­tíðar þannig að offram­leiðsla hætti. Það verður t.d. gert með því að stjórn­völd greiði auka­lega fyrir ær sem verði slátrað í stað lamba, og þannig verði um 450 þús­und kinda­stofn lands­ins grisjaður.

Þá verður þess kraf­ist að búvöru­samn­ingur sauð­fjár­bænda, sem gildir til tíu ára, var und­ir­rit­aður í fyrra og afgreiddur af Alþingi skömmu fyrir þing­kosn­ingar, verði tek­inn upp í ljósi þess að hann hefur inn­byggðan hvata til að auka fram­leiðslu, ekki til að draga úr henni. Skýr krafa verður að hálfu stjórn­valda að það muni eiga sér stað hag­ræð­ing í sauð­fjár­rækt. Ef hægt verður að ná sam­komu­lagi um hana þá eru stjórn­völd til­búin að mæta t.d. þeim bændum sem muni hætta.

Hug­myndum um að stjórn­völd kaupi ein­fald­lega kjöt­fjallið sem eftir mun standa vegna offram­leiðslu, eða að tekin verði aftur upp útflutn­ings­skylda, hefur verið hafnað með öllu af ráða­mönnum þjóð­ar­innar. Við­mæl­andi Kjarnans, sem stendur nærri við­ræð­unum, sagði: „Kerfið er galið. Það kallar alltaf eftir meira fjár­magni.“ Í stað þess að taka á kerfi sem skili slíku óhag­ræði þá hafi tíðkast að borga ein­fald­lega þegar bændur komi að hausti og kalli eftir auk­inni aðkomu rík­is­sjóðs. Það verði hins vegar ekki gert áfram.

Vilja útflutningsskyldu sem ríkið keypti fyrir nokkrum árum

Viðræður milli stjórn­valda og sauð­fjár­bænda um við­brögð við fyr­ir­sjá­an­legum vand­ræðum grein­ar­innar í haust hafa staðið yfir frá því í mars. Heim­ildir Kjarnans herma að upp­haf­leg krafa sauð­fjár­bænda hafi verið sú að útflutn­ings­skylda yrði sett aftur á til að mæta þeirri stöðu sem óum­flýj­an­legt væri að bændur myndu verða í. Auk þess var kallað eftir auknu fjár­magni í mark­aðs­mál. Þessar kröfur hafa líka verið teknar upp á vett­vangi atvinnu­vega­nefndar. Hluti nefnd­ar­manna, sem koma m.a. úr Sjálf­stæð­is­flokknum, hafa talað fyrir þeim.

Stjórn­völd hafa hafnað báðum þessum leiðum. Við­mæl­endur sem eru nálægt við­ræð­unum segja að það sé mat ráða­manna að mark­aðs­mál sauð­fjár­bænda séu í ákveðnum ólestri. Mörg hund­ruð millj­ónir króna af því fé sem komið hefur úr rík­is­sjóði í formi bein­greiðslna til bænda hafi verið sett í mark­aðs­mál án þess að það hafi skilað við­un­andi árangri. Auk þess fengu sauð­fjár­bændur 100 millj­ónir króna á fjár­auka­lögum árs­ins 2016 í mark­aðs­mál sem átti að nota til að koma í veg fyrir verð­lækkun á lamba­kjöti hér­lendis.

Útflutn­ings­skylda var afnumin hér­lendis fyrir tæpum ára­tug. Í henni fólst að sauð­fjár­bændur skuld­bundu sig til að selja hluta af fram­leiðslu sinni á erlenda mark­aði og fengu sér­stak­lega greitt frá rík­inu fyrir það. Verð­mið­inn sem greiddur var fyrir afnám hennar er tæpur hálfur millj­arður króna á núvirði.

Það hefur líka haft áhrif á við­ræð­urnar að stjórn­völd telja tals­menn sauð­fjár­bænda ekki hafa getað lagt fram nægi­lega góðar hag­tölur til að und­ir­byggja kröfur sínar. Þannig hafi umfang þess vanda sem þarf að taka á – offram­leiðsla á lamba­kjöti – breyst ítrekað. Fyrst hafi verið talað um að offram­leiðslan hafi verið á milli tvö til þrjú þús­und tonn en nú sé komið í ljós að birgða­vand­inn verði svip­aður og und­an­farin ár, eða um 1.200 tonn.

Afurðaverð lækkað um tugi prósenta

Vandinn nú er m.a. til­komin vegna þess að ekki hefur verið hægt að selja lamba­kjöt til Noregs. Þar er ekki lengur eft­ir­spurn eftir íslensku lamba­kjöti, en þangað áttu að fara um 600 tonn. Þá hefur við­skipta­bann Rússa á íslenskar afurðir vegna stuðn­ings Íslend­inga við efna­hags­þving­anir Evr­ópu­sam­bandið á landið út af stöð­unni á Krím­skaga líka haft áhrif.

Ráðamenn líta þó fyrst og síð­ast þannig á málið að um kerf­is­vanda sé að ræða. Afurða­verð til bænda var lækkað um tíu pró­sent árið 2016 og nú sé það lækkað um 35 pró­sent í við­bót. Það skapi sann­ar­lega bráða­vanda sem þurfi að takast á við en ekki sé hægt að gera það nema að fyrir liggi vilji til að breyta kerf­inu þannig að þessi staða hætti að koma upp. Það geri ekk­ert gagn að borga bara þá upp­hæð sem beðið sé um árlega umfram skipu­lagðar greiðslur sam­kvæmt búvöru­samn­ingi ef ekki verði ráð­ist í breyt­ingar á kerf­inu á móti.

Tíu ára búvörusamningur undirritaður í fyrra

Þær breyt­ingar sem mest áhersla er lögð á að koma í gegn eru meðal ann­ars fækkun afurða­stöðva, sem séu of margar og reknar í miklu tapi. Engin vit­ræn ástæða sé fyrir því að sam­eina þær ekki í hag­ræð­ing­ar­skyni. Grisja þurfi stofn­inn og fækka býlum sem stundi sauð­fjár­rækt. Og taka þurfi upp búvöru­samn­ing­inn sem und­ir­rit­aður var í fyrra af Sigurði Inga Jóhanns­syni og Bjarna Bene­dikts­syni, fyrir hönd rík­is­ins, og sam­þykktur á Alþingi skömmu fyrir kosn­ingar. Hann gildir til tíu ára og hefur inn­byggðan hvata til auk­innar fram­leiðslu. Vanda­málið við samn­ing­inn er hins vegar sá að ein­ungis bændur geta breytt honum. Þ.e. þeir verða að sam­þykkja allar breyt­ingar í atkvæða­greiðslu. Þannig er breyt­ing­ar­valdið alfarið hjá öðrum samn­ings­að­ilum.

Takist að ná saman um hag­ræð­ingu og breyt­ingar á búvöru­samn­ingi eru stjórn­völd til­búin að mæta þeim bráða­vanda sem sauð­fjár­bændur standa frammi fyrir, og þeir meta sjálfir sem 56 pró­sent launa­lækkun milli ára. Þriggja manna nefnd frá for­sæt­is­ráðu­neyti, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyti mun kynna til­lögur þar um í þess­ari viku, lík­lega á fimmtu­dag. Þær verða fyrst kynntar í rík­is­stjórn og fara þaðan til sauð­fjár­bænda sem þurfa að taka afstöðu til þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár