Bilið á milli ríkra og fátækra muni fara vaxandi

Mið­stjórn ASÍ hefur ályktað um fjár­laga­frum­varpið 2018 en í þeirri ályktun segir að lestur fjár­laga­frum­varps nýrrar rík­is­stjórnar gefi lítið til­efni til bjart­sýni.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands.
Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands.

Að óbreyttu fjár­laga­frum­varpi nýrrar rík­is­stjórnar mun bilið á milli ríkra og fátækra í sam­fé­lag­inu enn fara vax­andi. Þetta kemur fram í ályktun mið­stjórnar ASÍ um fjár­laga­frum­varið fyrir árið 2018 sem send var fjöl­miðlum í dag.

Í rann­sókn hag­deildar ASÍ á þróun skatt­byrði launa­fólks síð­ast­liðin 20 ár kemur fram að skatt­byrði launa­fólks hafi auk­ist og þeim mun meira eftir því sem tekj­urnar séu lægri. „Það eru því mikil von­brigði að ekki sé brugð­ist við þess­ari þróun í fjár­laga­frum­varp­inu heldur þvert á móti haldið áfram á sömu braut með því að lækka útgjöld til barna­bóta, vaxta­bóta og hús­næð­is­bóta. Tekju­ó­jöfn­uður mun halda áfram að aukast þar sem dregið er enn frekar úr jöfn­un­ar­hlut­verki skatt­kerf­is­ins,“ segir í álykt­un­inni.

Segir enn fremur í álykt­un­inni að Alþýðu­sam­bandið hafi það að leið­ar­ljósi að hefja sam­starf við nýjar rík­is­stjórnir á jákvæðum nótum. Þróun þess sam­starfs mót­ist síðan af þeim áherslum og aðgerðum sem komið er í fram­kvæmd. „Þetta á að sjálf­sögðu einnig við um þessa rík­is­stjórn. Þannig styður ASÍ áform nýrrar rík­is­stjórnar um efl­ingu mennta­kerf­is­ins og opin­bera heil­brigð­is­kerf­is­ins, m.a. með auknum fjár­veit­ingum og áherslu­breyt­ingum.“

Lestur fjár­laga­frum­varps nýrrar rík­is­stjórnar gefi hins vegar lítið til­efni til bjart­sýni.

Því þrátt fyrir að aukin fram­lög til heil­brigð­is­kerf­is­ins séu vissu­lega til bóta þá dugi þau með engu móti til að mæta þeirri miklu fjár­þörf sem til staðar er. „Greiðslu­þátt­taka sjúk­linga er allt of mikil og enn er gert ráð fyrir því að fram­lög til einka­rekst­urs í heil­brigð­is­kerf­inu auk­ist umtals­vert meira en til opin­beru þjón­ust­unnar.“

Jafn­framt mót­mælir ASÍ harð­lega vilja­leysi rík­is­stjórn­ar­innar til að auka jöfnuð og end­ur­reisa rétt­indi launa­fólks. Þetta birt­ist meðal ann­ars í veik­ingu á barna- og vaxta­bóta­kerf­inu og virð­inga­leysi fyrir afkomu­trygg­ingu launa­fólks í atvinnu­leys­is­trygg­ingum, ábyrgða­sjóði launa og fæð­ing­ar­or­lofi. Gríð­ar­legur hús­næð­is­vandi þeirra tekju­lægstu sé ekki tek­inn alvar­lega og sá hluti mennta­kerf­is­ins sem þjónar launa­fólki með litla form­lega menntun er van­ræktur. Þá sjá­ist engin merki um að efna eigi lof­orð um efl­ing verk- og starfs­náms.

Mið­stjórn ASÍ kallar eftir þeim áherslum í fjár­lögum sem boð­aðar eru í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar um sam­ráð og sam­starf við aðila vinnu­mark­að­ar­ins um efna­hags­legan og sam­fé­lags­legan stöð­ug­leika. Ljóst megi vera að þetta fjár­laga­frum­varp dugi ekki til þess að leggja grunn að slíku sam­starfi. Mið­stjórn lýsir jafn­framt von­brigðum sínum með að rík­is­stjórnin ætli ekki að hafa neitt frum­kvæði að bættum lífs­kjörum og auknu afkomu­ör­yggi félags­manna ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár