Mánaðarlegum launagreiðslum til stórmeistara verður hætt

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra ætlar að leggja fram frum­varp í voru sem mun gera það að verkum að stór­meist­arar í skák fá ekki lengur mán­að­ar­legar launa­greiðslur úr launa­sjóði. Þess í stað munu þeir fá greiðslur að fyr­ir­mynd lista­manna­launa.

Lilja Alfreðsdóttir er mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir er mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, mun í mars leggja fram frum­varp sem felur í sér breyt­ingar á lögum um launa­sjóðs stór­meist­ara í skák. Breyt­ingin gerir ráð fyrir því að í stað launa­greiðslna til stór­meist­ara í skák komi til greiðslur að fyr­ir­mynd lista­manna­launa. Þetta kemur fram á þing­mála­skrárík­is­stjórn­ar­innar sem gerð var opin­ber í dag.

Íslenska ríkið hefur greitt stór­meist­urum í skák mán­að­ar­leg laun frá því að sér­stök lög þess efnis voru sam­þykkt árið 1989. Svavar Gestsson, þáver­andi mennta­mála­ráð­herra, lagði frum­varpið fram.

Samkvæmt reglu­gerð greið­ast laun stór­meist­ara mán­að­ar­lega og taka mið af launum lekt­ora við Háskóla Íslands. Samkvæmt launa­töflum akademískra starfs­manna frá því í júní 2017 eru lág­marks­laun lekt­ora 489.779 krónur á mán­uði og hámarks­laun þeirra geta numið 876.592 krónum á mán­uði.

Í reglu­gerð mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að þeir sem njóti launa úr sjóðnum „skulu ekki vera fast­ráðnir til þess að gegna öðru starfi sem telst meira en þriðj­ungur úr stöðu­gildi meðan þeir fá greidd laun. Stór­meist­ari skal gera stjórn sjóðs­ins grein fyrir starfs­hlut­falli í öðrum störfum.“

Þurfa að skila af sér 70 tíma vinnuskyldu

Rétt til úthlut­unar úr Launa­sjóði stór­meist­ara eiga skák­menn sem öðl­ast hafa stór­meist­ara­titil alþjóða­skák­sam­bands­ins FIDE og „helga sig skák­list­inni“. Stór­meist­ar­arnir sem hafa þegið laun úr þurfa þó að inna af hendi kennslu við fram­halds­deild Skák­skóla Íslands eða sinna öðrum verk­efnum á vegum skól­ans eftir því sem stjórn Skák­skól­ans ákveður.

Í reglu­gerð ráðu­neyt­is­ins segir: „Vinnu­skylda stór­meist­ara við kennslu og fræðslu­störf, skal ákvarð­ast af stjórn Skák­skól­ans í sam­ráði við við­kom­andi stór­meist­ara. Hún skal vera að lág­marki 70 tímar árlega auk und­ir­bún­ings og getur verið fólgin í öðrum þáttum en beinni kennslu svo sem nám­skeiða­haldi, fjöltefli, fyr­ir­lestrum og aðstoð við und­ir­bún­ing full­trúa Íslands fyrir keppni. Stór­meist­ara ber að hafa sam­ráð við stjórn Skák­skól­ans ef þátt­taka í móti kemur í veg fyrir að kennslu­skyldu sé sinnt. Skipu­leggja aðilar þá hvernig bætt sé úr því. Stór­meist­ara sem nýtur launa úr sjóðnum ber að tefla fyrir Íslands hönd þegar Skák­sam­band Íslands velur hann til keppni og á Skák­þingi Íslands nema lög­mæt for­föll hamli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár