Þagnarmúrinn heldur áfram að molna - Flugfreyjur segja sögu sína

Flug­freyjur á Íslandi hafa safnað und­ir­skriftum tæp­lega sex hund­ruð félags­manna, þar sem þær hafna kyn­ferð­is­legri áreitni og mis­munun. Hér koma sögur þeirra.

Flug­freyjur á Íslandi hafa nú safnað und­ir­skriftum tæp­lega sex hund­ruð félags­manna, þar sem þær hafna kyn­ferð­is­legri áreitni og mis­munun og skora á karl­kyns sam­verka­menn að taka ábyrgð.

Í áskorun sem þær sendu frá sér í dag segja þær að kyn­ferð­is­of­beldi, áreitni og kyn­bundin mis­munun eigi sér stað í flug­stétt­inni, rétt eins og ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu. Þó margir jafn­rétt­is­sigrar hafi unn­ist með mik­illi þraut­seigju og vinnu starfs­systra þeirra séu miklar leyfar af kynja­mis­rétti, stétta­skipt­ingu og hlut­gerv­ingu flug­freyja enn til staðar sem óprút­tnir aðilar not­færa sér til að lít­il­lækka, mis­nota og áreita konur innan stétt­ar­innar.

Þær nota myllu­merkið #lend­ing til að vísa í reynslu sína og sögur.

[links]

„Óþarfi er að taka fram að allir karlar ger­ast ekki sekir um áreitni eða mis­munun – en hins vegar verða nær allar konur fyrir því á starfs­ferli sínum og það er alger­lega óásætt­an­legt. Við krefj­umst þess að karl­kyns sam­verka­menn okkar taki ábyrgð; að fyr­ir­tækin og stétt­ar­fé­lagið taki af festu á mál­inu og komi sér upp eða skerpi á verk­ferlum og við­bragðs­á­ætlun. Við eigum ekki að þurfa að þegja lengur né leiða ástandið hjá okkur. Við verð­skuldum að okkur sé trúað og sýndur stuðn­ingur.

Fyrst og fremst á mis­rétt­inu að linna. Við krefj­umst þess að fá að vinna vinn­una okkar án áreitni, ofbeldis eða mis­mun­unar. Við stöndum saman og höfum hátt.

Þolendur fella karla ekki undir grun með nafn­lausum frá­sögnum.

Gerendur fella aðra karla undir grun með hegðun sinni.

Þar liggur ábyrgðin,“ segir í áskor­un­inni.

[adspot]

Þær senda einnig frá sér 28 nafn­lausar sögur þar sem þær lýsa reynslu sinni í starfi. Sögurnar sýna þann raun­veru­leika sem flug­freyjur þurfa að búa við í störfum sínu.

Þúsundir kvenna hafa skrifað undir áskoranir

Metoo-bylt­ingin heldur áfram en þús­undir kvenna á Íslandi hafa nú skrifað undir áskorun þess efnis að kyn­ferð­is­leg áreitni og ofbeldi verði stöðvuð í eitt skipti fyrir öll.

Hátt í 40 konur úr hinum ýmsu geirum íslensks sam­fé­lags komu fram á #Metoo við­burðum víða um land í gær þar sem lesnar voru frá­sagnir íslenskra kvenna í tengslum við þessa áhrifa­miklu bylt­ingu. Við­burð­irnir fóru fram í Borg­ar­leik­hús­inu, Sam­komu­hús­inu á Akur­eyri og á Seyð­is­firði.

Flug­mað­ur­inn spyr hvort ég eigi börn, ég svar­aði neit­andi. Þá spyr hann hvort ég eigi kærasta og ég svar­aði ját­andi. Þá segir flug­mað­ur­inn „er kær­asti þinn með ónýtt typpi?“ Ég var nið­ur­brot­inn og sár eftir ummæli hans. Ég og mað­ur­inn minn vorum búin að reyna eign­ast barn í nokkur ár en ekki tek­ist það. Núna eigum við þrjú dásam­leg börn, en ég gleymi aldrei þessum flug­manni og dóna­skapnum og nið­ur­læg­ing­unni sem hann beitti mér í vinn­unni.

Hægt er að lesa allar 28 sög­urnar hér.

Áskorunin í fullri lengd:

„Í skugga valds­ins #METOO #höf­um­hátt
 #lend­ing

Kyn­ferð­is­of­beldi, áreitni og kyn­bundin mis­munun á sér stað í flug­stétt­inni, rétt eins og ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu. Þó margir jafn­rétt­is­sigrar hafa unn­ist með mik­illi þraut­seigju og vinnu starfs­systra okkar eru miklar leyfar af kynja­mis­rétti, stétta­skipt­ingu og hlut­gerv­ingu flug­freyja enn til staðar sem óprútt­tnir aðilar not­færa sér til að lít­il­lækka, mis­nota og áreita konur innan stétt­ar­innar. Með­fylgj­andi verða nafn­lausar frá­sagnir kvenna sem lýsa reynslu sinni.

Óþarfi er að taka fram að allir karlar ger­ast ekki sekir um áreitni eða mis­munun – en hins vegar verða nær allar konur fyrir því á starfs­ferli sínum og það er alger­lega óásætt­an­legt. Við krefj­umst þess að karl­kyns sam­verka­menn okkar taki ábyrgð; að fyr­ir­tækin og stétt­ar­fé­lagið taki af festu á mál­inu og komi sér upp eða skerpi á verk­ferlum og við­bragðs­á­ætlun. Við eigum ekki að þurfa að þegja lengur né leiða ástandið hjá okkur. Við verð­skuldum að okkur sé trúað og sýndur stuðn­ingur.

Fyrst og fremst á mis­rétt­inu að linna.
 Við krefj­umst þess að fá að vinna vinn­una okkar án áreitni, ofbeldis eða mis­mun­unar. Við stöndum saman og höfum hátt.

Þolendur fella karla ekki undir grun með nafn­lausum frá­sögnum.

Gerendur fella aðra karla undir grun með hegðun sinni.

Þar liggur ábyrgðin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár