Þær sem brutu þagnarmúrinn eru persóna ársins hjá TIME

Tíma­ritið TIME Magazine hefur valið per­sónu árs­ins frá árinu 1927 og þetta árið urðu kon­urnar sem greindu frá kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi opin­ber­lega fyrir val­inu.

Konurnar sem greindu frá reynslu sinni og rufu þagn­ar­múr­inn hafa verið valdar per­sóna árs­ins hjá tíma­rit­inu TIME.

Í til­kynn­ingu TIME segir að fólk sem brotið hefur þagn­ar­múr­inn varð­andi kyn­ferð­is­legt ofbeldi og áreitni sé af öllum kyn­þáttum, í öllum stéttum, sinni ýmiss konar störfum og búi víðs­vegar í heim­inum. Sam­eig­in­leg reiði þeirra hafi haft í för með sér gríð­ar­lega miklar og átak­an­legar afleið­ingar. Vegna áhrifa þessa fólks á árinu 2017 hafi það því hlotið tit­il­inn mann­eskja árs­ins.

Leiddi af sér byltingu

Myllu­merkið #metoo hefur verið mjög áber­andi á sam­fé­lags­miðlum und­an­farið. Ástæðan er fall og brot fram­leið­and­ans Harvey Weinstein. Hann hefur verið ásak­aður um að áreita fjölda kvenna en margar leikkonur hafa stigið fram og greint frá sinni reynslu af honum.

[links]

Harvey Weinstein er annar stofn­enda Miramax fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins en hann hefur fram­leitt stór­myndir á borð við Pulp Fiction, Clerks, The Crying Game og Sex, Lies and Vid­eotape. Hann hefur ásamt bróður sínum, Bob Weinstein, rekið fram­leiðslu­fyr­ir­tækið The Weinstein Company frá árinu 2005.

Í The New York Times kom fram að Weinstein hafi á þrjá­tíu ára ferli greitt skaða­bætur í að minnsta kosti átta aðskildum málum vegna marg­vís­legra brota tengdum kyn­ferð­is­áreitni.

[adspot]

Fjöldi brota­þola er gríð­ar­legur en lík­legt þykir að tugir kvenna hafi orðið fyrir barð­inu á honum. Meðal þeirra kvenna eru leikkon­urnar Ashley Judd og Rose MacGowan, ítölsk fyr­ir­sæta að nafni Ambra Batti­l­ana og tvær aðstoð­ar­konur Weinstein.

Leik­konan Alyssa Milano, sem er fræg fyrir leik sinn í þátt­unum Melrose Place, Who´s the Boss og Charmed, var áhrifa­valdur þess að #metoo náði slíkri útbreiðslu sem raun ber vitni eftir að hún hvatti á Twitter þann 15. októ­ber síð­ast­lið­inn konur að stíga fram og segja frá reynslu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár