Enn önnur netbyltingin skekur heimsbyggðina

Eftir að leikkonur í Hollywood stigu fram og greindu frá kyn­ferð­is­áreiti af hendi valda­mik­ils fram­leið­anda þar í bæ hafa sam­fé­lags­miðlar verið und­ir­lagðir af frá­sögnum kvenna hvaðanæva að undir myllu­merk­inu #metoo.

Hundruðir þúsunda kvenna hafa skrifað undir myllumerkinu #metoo og lýst kynferðisáreiti eða -ofbeldi af einhverju tagi.
Hund­ruðir þús­unda kvenna hafa skrifað undir myllu­merk­inu #metoo og lýst kyn­ferð­is­áreiti eða -ofbeldi af ein­hverju tagi.

Þögg­un­ar­menn­ing og leynd­ar­hyggja eru hug­tök sem hafa verið í deigl­unni síð­ustu mán­uði. Ástæðan er ekki sú að umræða sé þögguð sér­stak­lega mikið niður núna heldur eru hlutir að koma upp á yfir­borðið sem alltaf hafa verið til staðar en fyrst núna er fólk að stíga fram og tala um þá. 

Hreyf­ingar spretta út frá ein­stökum atvikum og sam­ein­ast fólk bak við myllu­merki á sam­fé­lags­miðlum. Þar má nefna sem dæmi #freethenipple, #höf­um­hátt, #metoo, #þöggun, #éger­ekkitabú og #kæra­Eygló. Allar þessar bylt­ingar eiga það sam­eig­in­legt að ein­angrað til­vik hrindi af stað atburða­rás sem leiðir af sér sam­stöðu þús­unda kvenna og karl­manna. 

Nú pósta konur víðs­vegar um heim sögur af kyn­ferð­is­áreiti og -ofbeldi undir myllu­merk­inu #metoo. Flestar konur þekkja það að búa í heimi þar sem áreiti er talið óhjá­kvæmi­legur hluti af til­ver­unni og í gegnum þær þús­undir frá­sagna sem nú ganga á sam­fé­lags­miðlum opin­ber­ast hversu algengt þetta er.

Stjórn­málin ná ekki að takast á við þessi vanda­mál því breyt­ing­arnar verða þegar fólk lætur í sér heyra. Í krafti fjöld­ans stíga konur fram undir myllu­merkjum og greina frá reynslu sinni og upp­lif­unum en oft er um að ræða þöggun gegn kyn­ferð­is­brotum eða minni­hluta­hópum.

#metoo á rætur sínar að rekja til ársins 2006

Kyn­ferð­is­legt áreiti og kyn­bundið ofbeldi er veru­leiki sem fjöldi kvenna þarf að takast á við. Dóms­kerfið og stjórn­málin hafa ekki náð að vernda þolendur og þau sam­fé­lags­norm sem við­gang­ast ýta undir skömm og þöggun.

Eins og fyrr segir er myllu­merkið #metoo mjög áber­andi á sam­fé­lags­miðlum um þessar mundir. Ástæðan er fall og brot fram­leið­and­ans Harvey Weinstein. Hann hefur verið ásak­aður um að áreita fjölda kvenna en margar leikkonur hafa stigið fram og greint frá sinni reynslu af honum.

Leik­konan Alyssa Milano, sem er fræg fyrir leik sinn í þátt­unum Melrose Place, Who´s the Boss og Charmed, var áhrifa­valdur þess að #metoo náði slíkri útbreiðslu sem raun ber vitni eftir að hún hvatti á Twitter þann 15. októ­ber síð­ast­lið­inn konur að stíga fram og segja frá reynslu sinni.

Myllu­merkið á upp­runa sinn í gras­rót­ar­sam­tökum árið 2006 þegar aðgerðasinn­inn Tarana Burke bjó það til á sam­fé­lags­miðl­inum MySpace. Hug­myndin var sú að tengja saman svartar konur sem orðið höfðu fyrir kyn­ferð­is­of­beldi og að nota sam­kennd til að styrkja konur og efla þær.

Mótmælin gáfu öðrum rödd

Leynd, spill­ing og vald­níðsla eru hug­tök sem ein­kenna orð­ræðu síð­ustu miss­era. Kerfið bregst hvað eftir annað en í krafti fjöld­ans þorir fólk að tjá sig um obeldi eða áreiti sem það hefði ann­ars aldrei gert. 

Fjöldi myllu­merkja sem fá útbreiðslu eykst ár frá ári en að baki þeim eru þús­undir mann­eskja sem tjá sig, mót­mæla og greina frá veru­leika sínum sem áður þótti ekki við­eig­andi að tala um. Þegar fólk stígur fram þá gefur það öðrum rödd og snjó­bolta­á­hrifin sem fylgja í kjöl­farið eru óneit­an­leg.

Gríð­ar­leg fjöl­miðlaum­fjöllun ein­kenndi síð­ast­liðið sumar eftir að upp komst að dæmdur kyn­ferð­is­af­brota­maður, Robert Downey, hefði fengið upp­reist æru á síð­asta ári. Róbert Downey hlaut þriggja ára fang­els­is­dóm árið 2008 fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fjórum barn­ungum stúlkum.

Eljan skilaði breytingum

Í kjöl­farið mót­mælti fólk á net­inu undir myllu­merk­inu #höf­um­hátt og létu við­brögðin ekki á sér standa. Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál úrskurð­aði þann 11. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að dóms­mála­ráðu­neyt­inu bæri að gefa upp allar þær upp­lýs­ingar sem tengd­ust máli Roberts. Í fram­hald­inu var upp­lýst að faðir Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra hefði verið einn með­mæl­anda fyrir því að Hjalti Sig­ur­jón Hauks­son, dæmdur barn­a­níð­ing­ur, fengi upp­reist æru. Sig­ríður And­er­sen dóms­mála­ráð­herra við­ur­kenndi að hafa upp­lýst Bjarna um aðkomu föður hans í júlí. Björt fram­tíð sleit rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu í kjöl­farið eins og títt­nefnt er orðið.

En hverju hefur myllu­merkið #höf­um­hátt áorkað? Það sam­ein­aði fólk í mót­mælum sem á end­anum felldi heila rík­is­stjórn eftir að þolendur kyn­ferð­is­of­beldis mót­mæltu þeirri leynd sem fylgdi gögnum varð­andi upp­reist æru. Ljóst þykir að elja þeirra hafði þau áhrif að almenn­ingur vakn­aði og stjórn­sýslan í leið­inni.

Kallað var eftir betra kerfi og enda­lokum þögg­unar. Fólk tjáði sig og krafa þess sner­ist um aukna virð­ingu fyrir fólki. Að skila megi skömminni þangað sem hún eigi heima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár