Fjölmenni og samstaða á #Metoo viðburðum

Fjöl­menni er nú á #Metoo við­burði í Borg­ar­leik­hús­inu. Við­burðir eru haldir um allt land þar sem minnst er á mik­il­vægi bylt­ing­ar­innar.

Hátt í 40 konur úr hinum ýmsu geirum íslensks sam­fé­lags koma fram á #Metoo við­burðum víða um land í dag þar sem lesnar verða frá­sagnir íslenskra kvenna í tengslum við þessa áhrifa­miklu bylt­ingu. Við­burð­irnir fara fram í Borg­ar­leik­hús­inu, Sam­komu­hús­inu á Akureyri og á Seyð­is­firði.

Á Nýja sviði Borg­ar­leik­húss­ins stígur meðal ann­ars Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á stokk ásamt konum úr heimi leik­lista, íþrótta og stjórn­mála.

Við­burð­ur­inn hófst klukkan fjögur og er hægt að horfa á hann í beinni útsend­ingu á vef Vísis. Hann stendur enn yfir og hafa áhrifa­miklar sögur verið lesnar upp sem íslenskar konur hafa deilt með íslensku sam­fé­lagi að und­an­förnu.

Meðal þeirra sem koma fram í Borg­ar­leik­hús­inu eru auk Katrínar þær Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir fyrrum borg­ar­stjóri, leikkon­urnar Krist­björg Kjeld, Halldóra Geir­harðs­dóttir og Ilmur Krist­jáns­dóttir, tón­list­ar­konan Hildur, Kolbrún Bene­dikts­dóttir sak­sókn­ari, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir alþing­is­kona, Hrafn­hildur Lúth­ers­dóttir ólymp­íu­fari, Björk Eiðs­dóttir rit­stjóri, Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir rit­stjóri og fleiri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár