Hugmynd að plakatahönnun sem stolið var frá Póllandi

Verið er að safna fyrir alm­an­aki með rjóm­anum af þeim list­rænu kvik­myndapla­kötum sem gerð hafa verið fyrir Svarta Sunnu­daga í Bíó Paradís.

Þríeykið Hug­leikur Dagsson og Sig­ur­jón­arnir tveir, Kjart­ans­son og Sig­urðs­son (Sjón) stofn­uðu költ og klassík hóp­inn Svarta Sunnu­daga sem sýnir sér­valdar kvik­myndir í Bíó Paradís á sunnu­dags­kvöldum alla vetur (haust fram á vor). Frá upp­hafi hafa ólíkir lista­menn fengið að spreyta sig á því að gera plaköt fyrir kvik­mynda­sýn­ingar Svartra Sunnu­daga. Snemma í haust kvikn­aði sú hug­mynd að tími væri til kom­inn að gefa út alm­anak með rjóm­anum af þessum list­rænu kvik­myndapla­kötum, en um er að ræða mjög eigu­legan grip sem kemur til með að sóma sér vel á heim­ilum alls kvik­mynda­á­huga­fólks. Því standa Svartir Sunnu­dagar nú fyrir söfnun á Karolina Fund fyrir alm­an­ak­inu.

Hvaðan kom hug­myndin að því að stofna költ og klassík hóp­inn Svartir sunnu­dagar?

„Hún fædd­ist í spjalli milli Sig­ur­jón­anna (Kjart­ans­son og Sjón) tveggja á facebook síð­unni Költ- og gríð­ar­lega und­ar­legar kvik­myndir. Síðan hafði annar þeirra sam­band við mig hvað varðar að byrja að sýna þessar blessuðu gríð­ar­lega und­ar­legu kvik­myndir í Bíó Paradís. Ég stökk á tæki­færið að fá að skipta mér af slíku því svona hefur alltaf vantað í íslenska bíó­menn­ingu. Í dag er ég byrj­aður að húð­skamma fólk sem hefur ekki mætt á Svarta Sunnu­daga.“

Af hverju nafnið "Svartir sunnu­dagar"? Hefur það eitt­hvað að gera með þema kvik­mynd­anna, eða bara stuðlar það svona vel?

„Stuðlar eru alltaf góðir þegar maður þarf að selja eitt­hvað. Eins og þegar við vorum með Forboðin Febrúar, eða nýju Prump í Paradís kvöldin. Hug­myndin kemur frá Költ kvik­mynd­inni Black Sunday sem heitir reyndar upp­runa­lega La maschera del demonio sem við sýndum snemma á fyrsta sýn­ing­ar­ár­inu.“

Hvað kom til að þið ákváðuðu að fá með ykkur í lið lista­menn til að gera plaköt fyrir kvik­mynda­sýn­ingar Svartra sunnu­daga?

„Ég stal hug­mynd­inni frá Póllandi enda hefur það verið siður þar lengi vel að láta inn­lenda lista­menn sjá um plakata­hönnun, hvort sem kvik­mynd sé költ eður ei. Auk þess er ég mikið fyrir fan art af öllu tagi. Alltaf gaman að sjá fólk túlka sínar upp­á­halds kvik­myndir, en það er líka mjög gaman að láta ein­hvern sem hefur ekki einu sinni heyrt um við­kom­andi kvik­mynd mynd­skreyta aug­lýs­ing­una.“

Er þetta jóla­gjöfin í ár?

„Ö, já. Í fyrsta lagi eru daga­töl nauð­syn­leg og praktísk. Í öðru lagi erum við að tala um 12 ein­stök plaköt eftir helstu vis­úal lista­menn lands­ins sem einnig repres­enta helstu költ­ara kvik­mynda­sög­unnar. Og í þriðja lagi ertu að styrkja Bíó Paradís, sem er mik­il­væg­asta menn­ing­ar­stofnun mið­bæj­ar­ins.“

Alm­an­akið kostar aðeins 3.000 kr og hóp­fjár­mögnun stendur yfir á karolina­fund.is. Fólki stendur auk þess til boða að tryggja sér klippikort eða árskort í Bíó Paradís - og tryggja sér þar með Almanak Svartra Sunnu­daga 2018 í kaup­bæti.

Hægt er að skoða verk­efnið nánar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár