Segir ríkisstjórn þjóðernisíhaldsins í kortunum

Þor­steinn Víglunds­son segir að stjórn­mála­á­tökin muni ekki snú­ast um hefð­bundna hægri og vinstri stefnu, heldur t.d. um stöðu Íslands í alþjóð­legu sam­starfi. Fram­tíð­inni verði slegið á frest í rík­is­stjórn­inni sem sé í burð­ar­liðnum.

Þorsteinn Víglundsson, starfandi félags- og jafnréttismálaráðherra.
Þor­steinn Víglunds­son, starf­andi félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar og starf­andi félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, segir að það sem sam­eini Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk, sem nú reyna að mynda rík­is­stjórn, sé sterkt þjóð­ern­isí­hald. Flokk­arnir eigi auð­veld með að sam­ein­ast um það sem þeir vilja ekki gera. Engin þeirra vilji gera breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi og land­bún­aði né kanna upp­töku ann­ars gjald­mið­ils þrátt fyrir að krónan kosti heim­ili og fyr­ir­tæki í land­inu að minnsta kosti 200 millj­arða króna á ári í við­bót­ar­kostnað. „Flokk­arnir geta auð­veld­lega slegið skjald­borg um óbreytt ástand. Að fram­tíð­inni verði slegið á frest um sinn.“Þetta kemur fram í grein sem Þor­steinn skrifar í Frétta­blaðið í dag.

Þar segir Þor­steinn enn fremur að sú rík­is­stjórn sem sé í burð­ar­liðnum sé skýrt merki um að átaka­línur íslenskra stjórn­mála séu að breyt­ast. Að sam­starfs­flokk­anna lengst til vinstri og hægri í hinu póli­tíska lit­rófi marki enda­lok hefð­bund­inna stjórn­mála­á­taka og að þau fær­ist yfir á aðrar víddir en áður.„Að átökin muni ekki snú­ast um hefð­bundna hægri og vinstri stefnu heldur fremur um stöðu Íslands í alþjóð­legu sam­starfi og vilj­ann til að ráð­ast í nauð­syn­legar umbætur á íslensku sam­fé­lagi til að tryggja að við verðum þátt­tak­endur en ekki áhorf­endur í þeim miklu breyt­ingum og tæki­færum sem fylgja munu fjórðu iðn­bylt­ing­unni.

Ágreiningur um fjármögnun

Þor­steinn telur að það hversu vel gangi í við­ræð­unum megi rekja til þriggja þátta. „Í fyrsta lagi snýst stjórn­ar­mynd­unin fyrst og fremst um for­gangs­röðun ríkis- útgjalda. Í öðru lagi hafa öll helstu ágrein­ings­efni verið lögð til hliðar. Í þriðja lagi er rétt að hafa í huga að þó svo langt sé á milli VG og Sjálf­stæð­is­flokks á hinum klass­íska hægri/vinstri ás stjórn­mál­anna, þá er mun styttra á milli flokk­anna þegar horft er til for­sjár­hyggju eða frjáls­lyndis ann­ars vegar og alþjóða­hyggju eða ein­angr­un­ar­hyggju hins vegar.“

Það eigi ekki að koma á óvart að flokk­arnir þrír nái saman um for­gangs­röðun rík­is­út­gjalda. Allir flokkar sem buðu fram til síð­ustu þing­kosn­inga hafi lagt meg­in­á­herslu á heil­brigðis-, mennta- og inn­viða­mál. Ágrein­ing­ur­inn snú­ist fyrst og fremst um hvernig eigi að fjár­magna útgjöldin. „Þó helstu ágrein­ings­efni séu lögð til hliðar við upp­haf stjórn­ar­sam­starfs er lík­legt að þau brjót­ist fram síðar. Viðhorf flokk­anna til umhverf­is­mála og atvinnu­upp­bygg­ingar hafa t.d. verið mjög ólík. Afstaða til inn­flytj­enda­mála sömu­leiðis. Ný ramma­á­ætlun verður eitt af fyrstu við­fangs­efnum nýrrar rík­is­stjórnar og þar hafa VG og Sjálf­stæð­is­flokkur lengi eldað grátt silfur saman. Að sama skapi ein­angr­að­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í afstöðu sinni til breyt­inga á útlend­inga­lögum við lok síð­asta þings. Það þurfa margir þing­menn að kyngja sann­fær­ingu sinni ef ekki má ræða ágrein­ings­efnin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár