Núvitundardagbókin mín

Anna Margrét byrj­aði að stunda Núvit­und­ar­hug­leiðslu og æfingar fyrir um 12 ár síðan. Áður hafði hún haft mik­inn áhuga á búdd­hisma og hug­leiðslu, ásamt því að stunda hesta­mennsku, fjall­göngur og lang­hlaup.

Anna Margrét hefur unnið sem sál­fræð­ingur og ráð­gjafi í ýmsum stofn­unum og stofum. Áhugi hennar á að skrifa þessa bók kom í kjöl­far mik­illa eft­ir­spurnar frá skjól­stæð­ingum og ein­stak­linga sem höfðu leitað til hennar til með­ferðar og á ýmis nám­skeið sem hún hefur haldið síð­ustu ár þ.á. núvit­und og hug­leiðslu nám­skeið.

Núvit­undar dag­bók­ina hefur Anna Margrét unnið út frá ára­langri reynslu af tækninú­vit­undar í lífi og starfi. Dagbókin bíður upp á aðferðir til að skipu­leggja­dag­inn, mán­uð­inn og árið, ásamt því að aðstoða við að vinna úr hugs­unum, til­finn­ingum og erf­iðri sjálfs­mynd.

Til þess að koma bók­inni í útgáfu hefur Anna Margrét ákveðið að setja bók­ina í hóp­fjár­mögnun hjá Karolina Fund og er hægt að heita á verk­efnið hennar þar.

Hvernig hefur Núvit­und­ar­að­ferðin nýst þér?

„Í minni vinnu hefur það verið nokkuð þekkt að ég fer djúpt í vinnu með ein­stak­linga. Ég hef sér­hæft mig mikið í að vinna með áfallastreitu og áfalla­vinnu. Ég hef frá 2005 unnið mikið með ein­stak­linga sem hafa verið á slæmum stað í líf­inu s.s. hafa leiðst út í afbrot eða neyslu. Einnig lifs-krísur og allt upp í stjórn­enda og leið­toga þjálfun.

Bak­grunn­ur­inn minn er rétt­arsál­fræði, klínísk sál­fræði og vinnu- og skipu­lags­sál­fræði. Ég hef í gegnum árin leit­ast eftir því að kom­ast á hvert sér­nám­skeiðið eftir öðru um Mind­ful­ness, sem og notað þá aðferð í gegnum lífið síð­ustu 12 ár.

Ég hef unnið nokkuð á Indlandi síð­ustu 7 ár, þá með ferða­mennsku og sér­hæft mig í ferðum til afdrepa (e.retr­eats). Ég nota þar hótel sem eru byggð á grund­velli mann­rétt­inda og sam­hæf­ast CSR staðli.“

Hvers vegna tel­urðu að þú hafir heill­ast svona að Núvitund?

„Það hefur verið mér að leið­ar­ljósi í líf­inu að gera eitt­hvað sem skiptir máli til lengri tíma litið. Langtíma hugs­unin kemur með að vera sam­kvæmur sér núna. Oft getur það reynst mörgum erfitt að takast á við allt í líf­inu eins og það kemur með öllum þeim hraða og vænt­ingum sem við teljum lífið eigi að hafa.

En, það er eins og hug­takið Less is More segi meira en langur texti. En til að ná þeim skiln­ingi krefst æfingar á athygli og að dvelja í sér. Ég tel að það sé aldrei nein töfra­lausn á neinu, aðeins vinna og vilji sem ég tel ég nálgist mjög vel fyrir les­and­ann í bók­inni minni.“

Hvernig er núvit­und­ar­dag­bókin upp­byggð?

„Dagbókin er byggð upp á þann veg að hún er sem ferða­lag í gegnum árið. Árið byrjar á inn­gangi á Núvitund og er leitt not­and­ann í gegnum Núvit­undar hug­leiðslu æfingar og hvað það þýðir að nota yfir­hugs­un­ina (e. metacognition). Farið er í tækni­legar æfingar fyrir tengsl lík­ama og hugar þar sem ég tel lyk­il­at­riði að vera til staðar í sjálfum sér og lík­ama sínum. Bókin er skipt upp eftir mán­uðum og þemu fyrir hvern mánuð. Farið er í t.d. Mindful eat­ing - Með­vit­und um matar­æði, Mindful Leaders­hip - Leið­toga­hæfni með Núvitund, að skilja og aðgreina á milli líðan, til­finn­inga og hugs­unar, hvernig hægt sé að vinna með streitu og álag. Punktar um áföll og úrvinnslu og hvernig það hefur áhrif á líðan, betri svefn og jafn­vægi. Má meðal ann­ars nefna að einn mán­uð­ur­inn er helg­aður að vinna með betri sam­skipti og vera með­vit­aður um sín sam­skipti. Jafn­framt er dag­bókin sett upp sem skipu­lags dag­bók til að halda utan um dag­inn, plön og sett mark­mið fram undan með tækni Núvit­undar að leið­ar­ljósi. Ég legg mikla áherslu á bætta heilsu, heil­brigði, skýr­leika og mátt eigin hugs­ana.“

Hverjum myndi bókin henta helst?

„Ég tel bók­ina vera fyrir alla þá sem vilja ná betri yfir­sýn og jafn­vægi í lífi og starfi. Bókin er skipt eftir mán­uðum og er ákveðin þema fyrir hvern mánuð sem leiðir les­and­ann/not­and­ann í gegnum árið til betri heilsu og jafn­vægi.

Þegar ég fyrst byrj­aði að læra um Núvitund í gegnum Ástralíu var lítið þekkt um þessa aðferð á Íslandi, en áhugi minn á búdd­hisma liggur frá ung­lings aldri. Þegar ég var 25 ára var ég mjög dug­leg við að stunda þau fræði og vann mikið með varn­ar­hætti, sjálf­saga, sam­kennd og sam­líðan og hefur áhugi minn ein­ungis auk­ist síðan þá. Ég get tví­mæla­laust sagt að vinna með sjálfan sig gefur auk­inn skiln­ing á öðrum og þroska til að takast á við lífið.“

Þeir sem vilja styðja við verk­efnið og fá Núvit­und­ar­dag­bók geta gert það hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár