Í þá tíð… Örþrifaráð Rudolfs Hess

Rudolf Hess er ein af for­vitni­leg­ustu per­són­unum í þeim hild­ar­leik sem Síðari heims­styrj­öldin var. Hann var lengi nán­asti sam­starfs­maður Adolfs Hitler en dag einn flaug hann, óum­beð­inn og í leyni, til Bret­lands til að semja um frið. Það gekk ekki upp.

Rudolf Hess var einn af fyrstu fylgjendum Adolfs Hitlers og var hans hægri hönd allt fram á stríðsárin.
Rudolf Hess var einn af fyrstu fylgj­endum Adolfs Hitlers og var hans hægri hönd allt fram á stríðs­árin.

Þegar komið var fram á árið 1941 var Þýska­land í góðum málum, frá sínum eigin bæj­ar­dyrum séð, flestir aðrir íbúar meg­in­lands Evrópu, ekki svo mikið. Á hálfu öðru ári hafði Þriðja ríkið undir for­ystu Adolfs Hitlers lagt undir sig, inn­limað eða leppað meira eða minna alla álf­una. Þeir sem stóðu utan garðs Nasista voru annað hvort stuðn­ings­menn hans; Ítalía, Spánn, Slóvakía, Balk­an­löndin og fleiri, eða hlut­lausu ríkin Svíþjóð og Sviss.

Þjóð­verjar gátu ein­beitt sér að því að sækja linnu­laust til vest­urs þar eð Hitler hafði samið við Sov­ét­ríkin og Stalín um grið milli ríkj­anna og þau skiptu Póllandi á milli sín á fyrstu vikum styrj­ald­ar­innar.

Á vor­mán­uðum voru Þjóð­verjar hins vegar komnir á fullt með und­ir­bún­ing fyrir inn­rás í Sov­ét­ríkin. Einn af nán­ustu sam­starfs­mönnum Hitlers, Rudolf Hess, hafði áhyggjur af því að Þýska­land gæti ekki staðið í stríði á tvennum víg­stöðvum og lagði því ein­sam­all upp í djarfa ferð. En hver var þessi Rudolf Hess og hvað gekk honum til?

Kaupmannssonur frá Alexandríu hittir Hitler

Rudolf Hess fædd­ist í Alex­andríu í Egypta­landi árið 1894, sonur vel­meg­andi kaup­manns af bæverskum ættum, og ól þar mann­inn þar til að hann var sendur til náms í Þýska­landi og Sviss á ung­lings­árum. Hann gegndi her­þjón­ustu fyrir Þýska­land í fyrra stríði og hlaut meðal ann­ars Járn­kross­inn fyrir frammi­stöðu sína þar.

Eftir stríð skráði hann sig í nám en eftir að hann heyrði Hitler fyrst gaspra úr ræðu­stól árið 1920 heill­að­ist hann strax af honum, enda aðhyllt­ust þeir báðir hug­mynda­fræði Rýt­ings­stung­unnar, þ.e. að Þýska­land hafi ekki tapað heims­styrj­öld­inni í hern­aði, heldur vegna svika inn­an­lands, aðal­lega af höndum komm­ún­ista og gyð­inga.

Hess gekk strax í Flokk þjóð­ern­issós­í­alista, Nas­ista­flokk­inn, og hóf fljót­lega að vinna að því að skipu­leggja flokks­starfið og fjár­afl­anir á meðan með­limum fjölg­aði ört. Hess var líka við hlið Hitlers í Bjór­kjallaraupp­reisn­inni svoköll­uðu árið 1923 þar sem Nasistar og aðrir jað­ar­hópar af hægri kant­inum, reyndu að ná völdum í Bæj­ara­landi og koma á nýrri stjórn undir stjórn Ludend­orffs hers­höfð­ingja.

Valda­ránstil­raunin rann út í sand­inn eftir hörð átök við lög­reglu í Munchen og Hitler, Hess og fleiri voru dæmdir til fang­els­is­vistar.

Eins og alkunna er, reit Hitler bók sína, Mein Kampf, á meðan hann sat inni í Lands­berg­fang­els­inu, en Hess aðstoð­aði hann ötul­lega við skrift­irnar. Eftir árs­vist bak við rimla var þeim félögum sleppt og þá hófst upp­gangur þeirra Nasista fyrir alvöru.

Næstráðandi Foringjans

Flestum er vel kunn sagan bak við valda­töku Nasista, en á árunum fram til 1933 var Hess nán­asti sam­starfs­maður Hitlers, einka­rit­ari og trún­að­ar­vinur. Árið 1932 var Hess gerður að stjórn­anda innra starfs flokks­ins.

Eftir valda­tök­una ári seinna var Rudolf Hess næstur Hitler að völdum og sem ráð­herra bar hann ábyrgð á fjöl­mörgum mála­flokkum. Má segja að allar laga­setn­ingar hafi farið um hans borð, fyrir utan þau mál sem sneru að hernum, lög­reglu og utan­rík­is­málum.

Hess skipu­lagði hóp­fund­ina frægu sem haldnir voru í Nürnberg og var í raun stað­geng­ill for­ingj­ans í margs konar erindum, til dæmis í samn­inga­við­ræðum við helstu iðn­jöfra Þýska­lands.

Hann tók einnig virkan þátt í að setja saman lög sem drógu úr rétt­indum gyð­inga í Þýska­landi og fylgdi for­dæmi Hitlers í einu og öllu. Rétt áður en heims­styrj­öldin síð­ari braust út með inn­rás Þýska­lands í Pólland haustið 1939 hafði Hitler skipað Hess sem annan í röð arf­taka sinna, á eftir Hermanni Göring.

Upp­gangur Hess innan stjórn­ar­innar og raða flokks­ins hafði fyrst og fremst stafað af elju hans og fölskvalausri tryggð við Hitler, en ekki klækjum eða inn­an­flokkspóli­tík. Á fyrstu árum heims­styrj­ald­ar­innar var aug­ljós­lega lang­mest áhersla á stríðs­rekst­ur­inn í störfum flokks­ins, en þau mál voru, sem fyrr segir, að miklu leyti utan hans verk­sviðs, sem leiddi til þess að hann seig stöðugt neðar í valda­stig­anum. Meira að segja fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður hans, Martin Bormann, skaut honum aftur fyrir sig í gogg­un­ar­röð­inni.

Örþrifaráð á örlagastundu

Til að sanna sig á ný setti Hess saman ævin­týra­lega og ótrú­lega langsótta áætlun. Hinn tíunda maí 1941 flaug hann af stað frá Augsburg áleiðis til Bret­lands þar sem hann ætl­aði að koma á friði milli Bret­lands og Þýska­lands, svo Þriðja Ríkið gæti ein­beitt sér að því að valta yfir Sov­ét­ríkin.

Hess, sem var fær flug­maður, átti nokkrar flug­vélar og var búinn að láta sér­út­búa eina Messerschmidt Bf 110 fyrir sig, með stærri elds­neyti­stönkum en venju­lega.

Áætlunin var að hitta á mann einn, Her­tog­ann af Hamilton, sem Hess skild­ist (rang­lega) að væri for­víg­is­maður eins stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna og andsnú­inn hern­aði við Þýska­land. Í gegnum hann hugð­ist Hess kom­ast í sam­band við stjórn­völd og bjóða Bretum grið gegn því að Þýska­land fengi að athafna sig óáreitt á meg­in­land­inu og end­ur­nýjuð yfir­ráð yfir sumum þeirra nýlenda sem það missti eftir fyrra stríð.

Hann beið eftir hag­stæðri veð­ur­spá og lét svo til skarar skríða. Hann tók fyrst stefn­una á Bonn en hélt svo áfram í átt að strönd Norð­ur­sjós og sveigði þar austur til að forð­ast rat­sjár Bretanna. Þegar fór að skyggja tók hann stefnu yfir Norð­ur­sjó í att til Bret­lands og flaug lágt, í um 5.000 fetum lengst af en svo allt niður í 50 fet, um 15 metra, þegar hann kom að aust­ur­strönd Englands. Hann tók svo stefn­una norður til Skotlands þar sem hann ætl­aði að koma að dval­ar­stað Hamiltons. Hess var við það að verða elds­neyt­is­laus um klukkan 23 en þá hækk­aði hann flugið og stökk út í fall­hlíf.

Hess fannst fljót­lega, skammt suður af Glasgow, þar sem plóg­maður einn kom að honum þar sem hann var að baks­ast við að kom­ast úr fall­hlíf­inni, nokkuð meiddur á fæti. Hess gaf um rangt nafn og kvaðst vilja hitta Her­tog­ann af Hamilton. Hess var hand­tek­inn og færður á her­stöð þar sem gert var að sárum hans.

Hamilton kom dag­inn eftir til að hitta Hess, sem var glaður með heim­sókn­ina og kynnti sig með réttu nafni og til­kynnti um ástæðu komu sinnar.

Hess var fluttur til Lundúna og svo á herra­garð í Surrey. Þar voru aðstæður ekki sem verstar miðað við stríðs­fanga, en Hess undi hag sínum afar illa. Hann kvart­aði undan heilsu­leysi og grun­aði verð­ina um að reyna að eitra fyrir sér. Andlegu ástandi hans fór hrak­andi og reyndi hann í tvígang að svipta sig lífi, meðal ann­ars með því að henda sér niður stiga með þeim afleið­ingum að hann lær­brotn­aði. Hann varði síð­ustu þremur árunum í haldi Breta á sjúkra­húsi. Hann fékk aldrei áheyrn hjá breskum ráða­mönnum, enda var ljóst að hann hefði ekk­ert umboð frá For­ingj­anum til að semja um neitt.

Heima í Þýska­landi þurftu Nasistar að gæta þess hvernig sagt yrði frá þessu óvænta upp­á­tæki Hess. Von­brigði Hitlers voru gríð­ar­leg og sagði Albert Speer meðal ann­ars frá því í ævi­sögu sinni að þessi per­sónu­legu svik trún­að­ar­vinar hafi verið mikið áfall fyrir For­ingj­ann.

Að skipan Hitlers var Hess útmál­aður sem geð­sjúk­lingur sem hafi lagt upp í ferð­ina á eigin vegum, án vit­undar For­ingj­ans. Það var þó þvert á ráð­legg­ingar manna eins og Göbbels og Görings sem vildu ekki að það spyrð­ist út að slíkir ein­stak­lingar gætu kom­ist til svo hárra met­orða innan Nas­ista­flokks­ins.

Dómur og refsing

Hess var fluttur til Þýska­lands í stríðs­lok þar sem hann skildi dreg­inn fyrir dóm ásamt öðrum eft­ir­lif­andi for­svars­mönnum Nasista. Við rétt­ar­höldin bar Hess við minnis­leysi, en hann var sak­felldur – þó ekki fyrir glæpi gegn mann­kyni – og dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi.

Hess, Speer, Dönitz mar­skálkur og fjórir aðrir nas­istar voru settir til afplán­unar í Spandau fang­els­inu í Vestur-Berlín. Hess kunni afar illa við sig þar og kvart­aði löngum yfir heilsu­leysi og var viss um að verið væri að eitra fyrir sér.

Einn af öðrum fengu sam­fangar Hess frelsi, þeir síð­ustu árið 1966, en ára­löng bar­átta hans til að fá dóm­inn styttan var árang­urs­laus, aðal­lega vegna mót­stöðu Sov­ét­manna.

Þannig sat Hess einn í 600 klefa fang­elsi allt til dauða­dags árið 1987. Hann hafði oft reynt að svipta sig lífi en tókst svo loks áætl­un­ar­verkið á fal­legum sum­ar­degi, 93ja ára gam­all. Hann hafði farið út í garð­skála til að lesa, en hengdi sig í raf­magns­snúru sem hann batt við storm­járn í glugga.

Spandau-fang­elsið var rifið eftir dauða Hess til að koma í veg fyrir að það yrði að ein­hvers­konar helgi­stað fyrir nýnas­ista.

Hess var jarð­aður í fjöl­skyldu­graf­reitnum og, viti menn, hann varð að nokk­urs­konar helgi­stað nýnas­ista, sem féll illa í kramið hjá bæj­ar­yf­ir­völdum í Wunsiedel, þannig að árið 2011, með sam­þykki afkom­enda hans, voru jarð­neskar leifar Hess grafnar upp, brenndar og dreift á ótil­teknum stað.

Hvað gekk honum til?

Sagan af örlaga­för Rudolfs Hess hefur allt frá upp­hafi vakið upp fjöl­margar kenn­ingar um ástæð­una að baki henni. Vilja margir meina að Hitler hafi sjálfur staðið á bak við ferð­ina og í raun og veru viljað segja Winston Churchill frá yfir­vof­andi inn­rás í Sov­ét­ríkin og jafn­vel að kanna jarð­veg­inn fyrir hugs­an­legu and­bol­sé­vísku banda­lagi. Þá segir sagan að Stalín sjálfur hafi lengi vel verið sann­færður um að Hess hafi flúið að und­ir­lagi Breta.

Hvað sem því líður varð víst lítið úr áætlun Hess. Hann slas­að­ist, var hand­tek­inn og eyddi 46 árum á bak við lás og slá, lengst af inni­lega óham­ingju­samur og væni­sjúkur, og end­aði á því að takast loks­ins eitt­hvað sem hann ætl­aði sér, sem var að binda enda á sitt eigið líf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íþátíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár