Púertó Ríkó í algjöru myrkri eftir fellibylinn Maríu

Mikil felli­byla­hrina hefur gengið yfir Karí­ba­hafið und­an­farið og valdið miklum usla. Felli­byl­ur­inn María fór þar yfir fyrr í vik­unni og heldur áfram að valda miklu tjóni og mann­falli.

Drengur á ferð í Catano í Púertó Ríkó eftir að fellibylurinn María fór fyrir landið.
Drengur á ferð í Catano í Púertó Ríkó eftir að felli­byl­ur­inn María fór fyrir landið. Mynd: EPA

Raf­magns­leysi var algjört í Púertó Ríkó eftir að felli­byl­ur­inn María fór þar yfir í gær­morgun. Afleið­ing­arnar eru miklar en hvass­virði og úrkoma hefur valdið gríð­ar­legu tjóni. Óljósar fréttir eru af mann­falli en talið er að í það minnsta 19 hafi lát­ist af völdum felli­byls­ins á eyjum Karí­ba­hafs­ins og margra er enn saknað.

Rík­is­stjóri Púertó Ríkó, Ricardo Rossello, gaf út úti­vist­ar­bann sem mun gilda í kvöld og fram á laug­ar­dag­inn. Hann segir felli­byl­inn vera versta óveður sem skolið hefur á í heila öld á svæð­inu en talið er að upp­bygg­ing muni taka marga mán­uði. Ekki liggur enn fyrir nákvæm­lega hver eyði­legg­ingin er en ljóst er að hún er mikil. Felli­byl­ur­inn nálg­ast nú Turks- og Caicos-eyj­arn­arnar.

Kalla eftir hjálp frá alþjóðasamfélaginu

Felli­byl­ur­inn fór yfir kar­ab­íska ríkið Dóminíku og olli miklu tjóni og stór­skemmdum seint á mánu­dag­inn síð­ast­lið­inn. Minnst 15 manns lét­ust og 20 er saknað. For­sæt­is­ráð­herr­ann, Roosevelt Skerrit, greindi frá því í sjón­varps­við­tali að krafta­verk væri að ekki hafi farið verr og að fleiri hefðu ekki dáið. Frá þessu er greint á BBC.

Skerrit segir að hann hafi aldrei fyrr séð slíka eyði­legg­ingu en fjöldi húsa, heim­ila og skóla hefur verið lagður í rúst. Fjar­skipti eru í ólagi og sam­kvæmt nýj­ustu fréttum er stærsti spít­ali eyj­unnar enn án raf­magns. Hann segir jafn­framt að nú þurfi eyja­skeggjar á hjálp frá alþjóða­sam­fé­lag­inu að halda.

Þriðji fellibylurinn á jafnmörgum vikum

Fólk hefur verið dug­legt að deila myndum og frá­sögnum á sam­fé­lags­miðlum undir myllu­merk­inu #hurricaneMaria.

Þetta er þriðji kar­ab­íski felli­byl­ur­inn sem skellur á eftir jafn­margar vikur og er María næst­stærstur af þeim. Í byrjun sept­em­ber fór felli­byl­ur­inn Irma yfir svæðið en hægt er að lesa nánar um hann á Kjarn­anum.

María fór á fjórða stig yfir skala frá einum og upp í fimm þegar stóð sem hæst. Mikil flóð hafa orðið, tré rifnað upp með rótum og meira en 10.000 manns leitað skjóls Púertó Ríkó í sér­stökum skýlum á mið­viku­dags­kvöldið. Þetta er stærsti felli­byl­ur­inn til að fara yfir banda­ríska jörð í um 90 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

náttúruhamfarir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár