Í þá tíð… Milljónir fórust í flóðum í Gulafljóti

Gulafljót er oft kallað vagga kín­verskrar menn­ingar. Flóð í Gulafljóti hafa þó valdið ómældum skaða í gegnum tíð­ina, en aldrei í lík­ingu við það sem gerð­ist í þremur flóðum á um hálfrar aldar tíma­bili frá 1887 til 1938 þegar millj­ónir manna lét­ust.

Flóðin 1931 höfðu í för með sér skelfilegar hörmungar fyrir tugi milljóna Kínverja. Hundruð þúsunda drukknuðu þegar vatnselgurinn flæddi yfir Mið-Kína og á næstu mánuðum létust hátt í fjórar milljónir manna vegna sjúkdóma og vannæringar.
Flóðin 1931 höfðu í för með sér skelfi­legar hörm­ungar fyrir tugi millj­óna Kínverja. Hundruð þús­unda drukkn­uðu þegar vatns­elg­ur­inn flæddi yfir Mið-Kína og á næstu mán­uðum lét­ust hátt í fjórar millj­ónir manna vegna sjúk­dóma og vannær­ingar.

Skammt er stórra högga á milli í nátt­úru­ham­förum um allan heim þessa dag­ana. Skemmst er að minn­ast felli­bylj­anna Irmu og Harveys sem hafa valdið gríð­ar­legri eyði­legg­ingu við Mexík­óflóa og í Karí­ba­hafi, og jarð­skjálft­ans sem skók Mexíkó. Í öllum þessum til­fellum hafa tugir látið lífið og millj­ónir hafa hrak­ist frá heim­ilum sínum.

Þrátt fyrir að ótækt sé að tala niður þá harm­leiki og þján­ingar sem fórn­ar­lömb síð­ustu vikna hafa liðið, þá bliknar mann­fallið engu að síður í sam­an­burði við mann­skæð­ustu atvik sög­unnar.

[adspot]Þar trjóna á toppi, merki­legt nok, tvö flóð í Gulafljóti í Kína sem gætu hafa kostað millj­ónir manna lífið.

Vagga kínverskrar menningar

Gulafljót (Huang He) er annað lengsta fljót Kína, á eftir Jangtse (Bláá). Það á upp­tök sín á hásléttum Tíbet og liggur svo um tæp­lega 5.500 km leið niður í Gulahaf í norð­ur­hluta lands­ins.

Fljótið dregur nafn sitt af gul­leitum fram­burði þess, sem nemur um 1,6 millj­arði tonna árlega, en líkt og Níl í Egypta­landi hefur Gulafljót oft verið kallað „vagga kín­verskrar menn­ingar“ þar sem sam­fé­lög mynd­uð­ust víða eftir far­vegi þess í fyrnd­inni. Nú séð það á annað hund­rað millj­ónum manna fyrir vatni og á vatna­svæði fljóts­ins búa um 400 millj­ónir manna.

Fljótinu hefur um aldir alda verið hætt við flóðum með til­heyr­andi ógnum við menn, mann­virki og rækt­ar­land og hafa íbúar og stjórn­völd lagt mikið í að byggja upp stíflur, skurði og flóð­garða til að koma böndum á þetta mikla ólík­inda­tól.

Þær aðgerðir, og raunar hinn gríð­ar­legi fram­burður sem byggir upp nátt­úru­lega garða, hefur hins vegar haft þær afleið­ingar að víða stendur fljótið upp fyrir nær­liggj­andi land­svæði, sem býður flóða­hætt­unni enn frekar heim. Gulafljót gengur enda stundum undir nafn­inu „Sorg­ar­fljótið“, sem er skilj­an­legt miðað við hvað hefur gengið á.

Þrjú hamfaraflóð á um hálfri öld

Saga Gulafljóts gerir ráð fyrir um það bil einu ham­fara­flóði á öld, en árin frá 1887 til 1938 voru sér­lega slæm að þessu leyti þar sem ekki færri en þrjú meiri­háttar flóð áttu sér stað með gríð­ar­lega alvar­legum afleið­ingum.

Hið fyrsta af þessum þremur átti sér stað í sept­em­ber árið 1887. Þá hafði mikil úrkoma orðið þess vald­andi að miklir vatna­vextir urðu í fljót­inu. Eins og svo oft áður, rofn­aði flóð­garður, að þessu sinni nálægt borg­inni Sjengsú í Henan-hér­aði. Vatnið og aur­inn sem því fylgdi, dreifð­ust fljótt um nær­liggj­andi svæði, alls um 130.000 fer­kíló­metra, sem er tals­vert meira en Ísland að flat­ar­máli. Millj­ónir manna misstu heim­ili sín og um 900.000 lét­ust. Enn fleiri fór­ust á næstu mán­uðum, þar sem rækt­ar­land skemmd­ist og far­sóttir geisuðu.

Flóðið 1938 var að öðrum meiði þar sem það var af manna völdum. Japanski her­inn réð­ist inn í Kína árið 1937 og lagði fljótt undir sig stór land­svæði. Yfirvöld, undir stjórn Chiang Kai-shek, afréðu að rjúfa flóð­garð Gulafljóts (aftur nálægt Sjengsú) til að hamla yfir­reið inn­rás­ar­hers­ins. Afleið­ing­arnar voru fyr­ir­séðar, tugs­þús­undir fer­metra rækt­ar­lands fóru undir vatn, millj­ónir hrökt­ust frá heim­ilum sínum og gríð­ar­legur fjöldi fólks lést. Að vísu ber heim­ildum ekki saman um hversu margir lét­ust þar sem komm­ún­ista­stjórnin sem síðar tók við, vildi meina að um 800-900.000 hefðu lát­ist, en lík­legra er að talan hafði verið nokkru lægri, e.t.v. um 400-500.000 manns, sem er engu að síður með verri ham­förum síð­ustu aldar. Þessi aðgerð hafði ann­ars lítil áhrif á fram­gang Japana, en varð aldeilis vatn á myllu komm­ún­ista sem nýttu sér óánægju íbúa með stjórn­völd sem fórn­uðu lífum fjöl­skyldu­með­lima og nágranna, og fundu mál­stað sínum auð­ugan jarð­veg á flóða­svæð­unum með vel kunnum afleið­ingum.

Versta flóðið varð þó árið 1931.

Aðstæður voru hinar verstu í aðdrag­and­anum. Í tvö ár hafði ríkt mik­ill þurrkur um ger­vallt Kína og far­vegir stærstu ánna höfðu þornað upp að miklu leyti. Þá gengu yfir stór­kost­legar rign­ingar á upp­töku­svæðum þriggja stærstu fljót­anna í Kína, Jangtse, Gulafljóts og Huaí, og vatna­vextir voru for­dæma­lausir. Flóð­garðar rofn­uðu víða og vatn og aur­fram­burður flæddi yfir mik­inn hluta Mið-Kína Flóðin rén­uðu hins vegar ekki í marga mán­uði þannig að búsetu­svæði um 50 millj­óna manna, sem jafn­gilti um 170.000 fer­kíló­metrum, voru meira eða minna undir vatni.

Eins og gefur að skilja er erfitt að henda reiður á hversu margir lét­ust í þessum hörm­ungum, meðal ann­ars þar sem átök geisuðu milli komm­ún­ista og stjórn­valda, en áætlað er að í flóð­unum hafi á fjórðu milljón manna látið lífið þetta sumar, og líf tug millj­óna fór úr skorðum.

Eftir að borg­ara­styrj­öld­inni í Kína lauk með sigri komm­ún­ista og stöð­ug­leiki komst á stjórn lands­ins var loks lagt í umbætur á flóða­vörnum við Gulafljót og hafa því ekki orðið nein meiri­háttar mann­skæð flóð síð­ustu ára­tug­ina. Þó er aldrei hægt að úti­loka að meiri­háttar ofan­koma og flóð geti valdið usla, og allan árs­ins hring er unnið að því að hreinsa fram­burð Gulafljót til að fyr­ir­byggja upp­söfnum þess og þær hörm­ungar sem gætu fylgt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íþátíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár