Dyggir lesendur muna líklega eftir, og tóku vonandi þátt í, plastlausum júlí nú í sumar. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skiptið sem slíkt átak er sett á laggirnar en átakið verður alltaf stærra og stærra með hverju árinu og þátttakendum fjölgar ár hvert.
Nú hafa átta íslenskar konur, sem tóku þátt í átakinu, tekið sig saman um að halda plastleysinu á lofti og ýtt úr vör, plastlausum september. Eins og nafnið gefur til kynna snýst verkefnið um að draga úr plastnotkun í september.
Þetta frábæra framtak er innblásið af hinu alþjóðlega framtaki Plastic free July. Í báðum tilfellum er tilgangurinn að vekja okkur neytendur til umhugsunar um allt plastið sem við notum í daglegu lífi og gætum svo vel verið án. Stór partur af plastinu sem við notum er einungis notað í nokkrar mínútur, má þar nefna plastglös eða rör, sem við svo vel sleppt.
Átök eins og plastlaus september er tilvalin tími til að líta aðeins í eigin barm, og út fyrir rútínu-rammann, til að skoða hvar við getum dregið úr notkun á þessum skaðvaldi náttúrunnar. Það er svo auðvelt að breyta bara pínulítið útúr hefðbundinni rútinu og með litlum skrefum getum við búið til stóran þrýstihóp sem ýtir framleiðendum í átt að minni óþarfa plastnotkun.
Á heimasíður átaksins plastlausseptember.is er hægt að kynna sér verkefnið, aðstandendur þess og síðast en ekki síst hvernig er hægt að taka þátt. En við hvetjum að sjálfsögðu alla til þess.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir