Kostar milljarða að gera við rakaskemmdir í Orkuveituhúsinu

Vest­ur­hús Orku­veitu­húss­ins er mjög illa farið af raka­skemmdum. Þegar áfall­inn kostn­aður er um hálfur millj­arður króna og við­gerðir kosta á bil­inu 1,5-3 millj­arða króna.

Vest­ur­hús höf­uð­stöðva Orku­veitu Reykja­víkur er illa farið af raka­semdum og það kostar millj­arða króna að gera við það. Málið var rætt á stjórn­ar­fundi í Orku­veit­unni í gær en ákvörðum um til hvaða aðgerða verði gripið liggur ekki fyrir. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Orku­veit­unni. Reykja­vík­ur­borg á 93,5 pró­sent hlut í Orku­veit­unni.

Þar segir að sex leiðir hafi verið skoð­aðar til að leysa málið. Áætlaður kostn­aður þeirra er á bil­inu 1.500-3.020 millj­ónir króna. Sá kostn­aður bæt­ist við þegar áfall­inn kostnað vegna skemmd­anna sem er 460 millj­ónir króna.

Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur, segir að þetta séu vond tíð­indi. „Við verðum þó að takast á við þann veru­leika sem við okkur blasir. Okkur liggur ekki á að ákveða okkur og getum þess vegna gefið okkur tíma í gott sam­tal um hvernig er best að ráða fram úr stöð­unni. Vest­ur­húsið stendur autt í dag og það truflar ekki grunn­þjón­ustu við við­skipta­vini.“

[adspot]Starfs­menn Orku­veit­unnar urðu fyrst varir við raka­skemmdir á inn­an­verðum veggjum vest­ur­húss höf­uð­stöðva fyr­ir­tæk­is­ins í sept­em­ber 2015. Húsið stendur nú autt og til­raun­við­gerðir hófust um mitt ár 2016. Hinn áfallni kostn­aður er til­kom­inn vegna þeirra. Í frétta­til­kynn­ing­unni segir: „Mat á eðli og umfangi skemmd­anna leiddi í ljós að skemmdir eru ekki bundnar við ákveðin svæði í hús­inu heldur eru allir útveggir skemmdir. Önnur hús OR á lóð­inni eru í ágætu ástandi. Þau eru öll byggð með öðrum hætti en vest­ur­húsið.“

Fór langt fram úr áætlun

Bygging höf­uð­stöðva Orku­veit­unnar var gríð­ar­lega umdeild á sínum tíma. Í skýrslu úttekt­ar­nefndar um Orku­veit­una, sem birti nið­ur­stöður sínar í októ­ber 2012. Bygg­inga­kostn­aður varð á end­anum langt umfram áætlun. Upp­runa­lega átti bygg­ingin að kosta 2,3 millj­arða króna en hún kost­aði á end­anum 5,3 millj­arða króna á verð­lagi hvers fram­kvæmda­árs, eða 8,5 millj­arða króna á verð­lagi árs­ins 2010.

Í úttekt­ar­skýrsl­unni seir að hluti skýr­ing­anna fyrir auknum bygg­inga­kostn­aði hafi verið rak­inn til þess að um eitt þús­und fer­metrar bætt­ust við á bygg­inga­tím­anum og að ekki hafi verið gert ráð fyrir ýmsum öðrum stórum liðum í áætl­unum. „Þessi atriði voru ekki borin undir stjórn Orku­veitu Reykja­víkur eða um þau fjallað meðan á bygg­ingu húss­ins stóð, og ekki verður séð að athygli stjórn­ar­innar hafi verið vakin sér­stak­lega á þessum atriðum á bygg­ing­ar­tíma húss­ins. Svo virð­ist að auki sem mik­ill hraði hafi ein­kennt verkið, enda var unnið kapp­sam­lega að því að koma rekstri fyr­ir­tæk­is­ins undir eitt þak, og má hluta af auknum kostn­að­ar­út­gjöldum meðal ann­ars rekja til þess[...]Ekki verður heldur fram hjá því litið að Orku­veita Reykja­víkur hefur í dag ekki þörf fyrir svo mikið hús­næði, enda stendur nú einn hluti hús­næð­is­ins nær auður. Hér er í senn um að ræða veru­legar fjár­hæðir og fjár­fest­ingu fyr­ir­tækis í opin­berri eigu, sem ekki nýt­ist nema að hluta til í rekstri þess. Að mati úttekt­ar­nefnd­ar­innar hefði verið rétt að kynna stjórn fram­vindu bygg­ing­ar­innar og áfallandi kostnað, og jafn­framt hvort rétt væri að draga úr bygg­ing­ar­magni eða minnka kostnað á meðan á bygg­ingu stóð, til þess að upp­haf­legar áætl­anir stæð­ust. Svo var ekki gert, og vekur það sér­staka athygli að end­an­legur kostn­aður vegna húss­ins virð­ist ekki hafa legið fyrir fyrr en í lok árs 2005, og að á tím­anum hafi komið upp liðir sem gleymst hafi að gera ráð fyrir í hönnun verks­ins.“

Hægt er að lesa úttek­ar­skýrsl­una um Orku­veit­una frá árinu 2012 hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár