Í þá tíð... Sonur Sáms og illvirki hans

David Berkowitz hélt New York-búum í helj­ar­g­reipum í rúmt ár þegar hann drap sex ung­menni og særði önnur sjö. Hann sagð­ist hafa verið að hlýða skip­unum frá hundi nágranna síns.

David Berkovitz
David Berkovitz Mynd: Getty

Sumir ill­virkjar reyna, þegar þeir eru teknir höndum, að kenna einu eða öðru um gerðir sínar, eða alla­vega um að hafa veitt sér inn­blástur. Einn þeirra er David Berkowitz, einn alræmd­asti raðmorð­ingi síð­ustu aldar.

En meira um það síðar. Byrjum á upp­haf­inu.

Erfið æska og áfallið stóra

Berkowitz þessi fædd­ist árið 1953. Móðir hans gaf hann til ætt­leið­ingar þegar dreng­ur­inn var nokk­urra daga gam­all, senni­lega tengd­ist það því að faðir hans var giftur annarri konu. Hvað sem því líður, var hann ætt­leiddur af mið­aldra hjónum í Bronx, sem hafði ekki orðið barna auðið.

David var frekar ódæll sem barn. Hann þótti nokkuð vel gef­inn, en fann sig ekki í námi og leidd­ist út í smá­þjófn­aði og íkveikjur. Þegar hann var fjórtán ára lést fóst­ur­móðir hans og olli það honum miklu hug­ar­víli og sam­bandið milli hans og föður hans varð sífellt stirð­ara, sér­stak­lega eftir að sá síð­ar­nefndi gift­ist aftur.

Átján ára gam­all gekk Berkowitz í her­inn og þjón­aði bæði heima í Banda­ríkj­unum og í her­stöðvum í Suður Kóreu áður en hann lauk þjón­ustu þremur árum seinna. Hann gat sér gott orð í hernum, sér­stak­lega þar sem hann þótti afbragðs­skytta.

Þá hafði hann upp á raun­móður sinni, sem sagði honum frá því hvernig fað­erni hans var háttað. Þessar upp­lýs­ingar voru honum mikið áfall og ollu honum mik­illi van­líðan. Eru and­legir brestir hans síðar á ævinni raktir aftur til þessa.

Morðæðið hefst

Næstu árin varð David Berkowitz sífellt ein­rænni. Hann hafði fengið vinnu sem örygg­is­vörður, en and­legri líðan hans fór sífellt hrak­andi og árið 1975 fór hann að taka upp á því að kveikja elda víða um New York, en hann náð­ist aldrei.

Hann fór að heyra raddir sem hann sagði að væru djöflar sem skip­uðu honum að vinna ýmis konar ódæði, jafn­vel morð. Það var svo á aðfanga­dags­kvöld þetta ár sem hann lét undan kröfu radd­anna og réð­ist á 15 ára gamla stúlku og særði hana alvar­lega með veiði­hníf.

Í árs­byrjun 1976 flutti Berkowitz til Yonkers í New York þar sem hann gerð­ist sann­færður um að hundar nágranna sinna væru að skipa honum að myrða ungar aðlað­andi konur. Hann flutti, enda ekki við slíkt búandi, nema í nýja hús­inu bjó full­orð­inn maður, Sam Carr að nafni, sem átti Labrador að nafni Harvey, en Berkowitz var viss um að Carr þessi væri eins konar ári sem beindi til hans skip­unum um að myrða konur, í gegnum hund­inn Harvey.

Berkowitz framdi fyrsta morðið á aðfara­nótt 26. júlí þessa árs, en þá skaut hann á tvær stúlkur sem sátu í kyrr­stæðum bíl í Bronx, Donna Lauria, sem var 18 ára, og Jody Valenti sem var ári eldri. Lauria, lést sam­stundis en Valenti fékk skot í lærið og lifði af. Berkowitz hvarf út í nótt­ina, eins og átti eftir að ger­ast margoft næstu mán­uði. Við verkn­að­inn not­aði hann .44 kali­bera skamm­byssu.

Í októ­ber lét hann svo aftur til skarar skríða og skaut þá inn um bíl­rúðu á par sem hafði numið staðar í Queens, Carl Denaro og Rosemary Keenan. Þau náðu að leggja á flótta og þrátt fyrir að pilt­ur­inn hafi fengið skot í höf­uðið lifði hann af. Þrátt fyrir að lík­indi væru með þessu atviki og fyrstu árás Berkowitz var ekk­ert sem vakti grun um að sami ger­andi gæti verið þar að verki.

Mun styttri tími leið fram að næstu árás þar sem Berkowitz skaut tvær stúlkur í nóv­em­ber, Donna DeMasi and Joanne Lomino, en þær lifðu af. Næst var það í jan­úar 1977 sem Berkowitz skaut unga konu, Christine Freund að nafni, sem sat í bíl með unnusta sínum John Diel, til bana.

Það var fyrst þá sem lög­regla við­ur­kenndi að rann­sóknin mið­aði að því að málin tengd­ust öll. Meðal ann­ars þar sem árás­armað­ur­inn, eða -menn­irnir, virt­ust leggj­ast sér­stak­lega á ungar lag­legar konur með sítt, dökkt og liðað hár.

Í mars réð­ist Berkowitz svo að enn einni stúlkunni, Virginia Voskerichian, nítján ára háskóla­nema sem bar skóla­bæk­urnar sínar fyrir sig, en hann skaut hana í höf­uðið í gegnum bæk­urnar svo hún lést strax.

Þegar þarna var komið við sögu hafði gripið um sig mikið fár í tengslum við morðin. Fjöl­miðlar um allan heim sögðu frá ógn­inni sem vom­aði yfir borg­ar­búum í New York. Blöðin voru farin að tala um „The .44 caliber killer“.

Sonur Sáms


Í kjöl­far morðs­ins á Voskerichian setti lög­reglan á fót sér­staka sveit, „Omega Task force“ sem var helguð því að hafa uppi á raðmorð­ingj­anum sem hafði haldið borg­inni í helj­ar­g­reipum.

Skömmu síðar dró enn til tíð­inda þegar Berkowitz skaut til bana ungt par sem var að kyss­ast í bíl sínum. Þau hétu Alex­ander Esau og Val­ent­ina Suriani . Á vett­vangi glæps­ins fannst orð­send­ing frá Berkowitz, ætluð yfir­manni rann­sókn­ar­hóps­ins. Bréfið var sam­heng­is­laust þvaður að miklu leyti, en boð­aði áfram­hald á morð­unum og þar sagði meðal ann­ars: „I am the Son of Sam“, sem fjöl­miðlar tóku fljótt upp og fóru að kenna morðin við the Son of Sam.

Skömmu síðar, heima í Yonkers, tók Berkowitz upp á því að skjóta Harvey, svarta hund­inn sem hann taldi að Sam, nágranni sinn, væri að nota til að koma til sín skip­unum. Hann hafði áður sent Sam hót­un­ar­bréf varð­andi hund­inn (sem lifði skotið að vísu af).

Berkowitz lét ekki staðar numið þar heldur tók að senda bréf víða um hverfið, þannig að við­tak­endur fór að gruna að þarna gætu verið tengsl við skotárás­irnar. Lögregla brást hins vegar ekki við ábend­ingum, enda flæddu slíkar inn um lúgu lög­reglu í miklu magni.

Næsta árás, var gerð hinn 26. júní þar sem hann skaut enn á ný á par í bíl utan við diskó­tek í Queens. Þau Sal Lupo og Judy Placido særð­ust, en komust lífs af.

Berkowitz var aftur á ferð­inni hinn 31. júlí þegar hann skaut á par í bíl í Brooklyn. Stúlkan, Stacy Moskowitz lést af sárum sínum, en pilt­ur­inn, Robert Violante, missti annað augað og var nær sjón­laus á hinu.

Þegar þarna var komið við sögu höfðu morðin hel­tekið sam­fé­lagið í New York þar sem aðsókn á skemmti­staði borg­ar­innar hafði dreg­ist veru­lega saman og ungar konur með dökkt sítt hár, létu klippa hár sitt stutt, eða jafn­vel lita það ljóst.

Stöðumælasekt varð morðingjanum að falli

Eftir rúm­lega ár hafði lítið dregið til tíð­inda í rann­sókn máls­ins, nema að teg­und skot­vopns­ins lá fyrir og talið var öruggt að einn maður væri þarna að verki.

Þá kom loks­ins að því að vitni gaf sig fram og gat gefið grein­ar­góða lýs­ingu á manni sem það hafði séð með byssu rétt áður en síð­asta árásin var gerð í Brooklyn. Það rifj­aði svo upp fyrir tveimur lög­reglu­mönnum að þeir höfðu verið að sekta bíla fyrir stöðu­brot í göt­unni þessa sömu örlaga­ríku nótt.

Þegar farið var yfir sekt­ar­mið­ana beindust böndin að Berkowitz, en á sama tíma bár­ust lög­reglu enn fleiri kvart­anir vegna ofsókna hans og bréfa­skrifa til nágranna sinna.

Hinn tíunda ágúst var Berkowitz svo hand­tek­inn þegar hann sett­ist inn í bíl fyrir utan heim­ili sitt. Hann ját­aði und­an­bragða­laust, með bros á vör, að vera Sonur Sáms og lög­regla fann svo í bílnum skamm­byssu sem reynd­ist vera morð­vopnið.

Heim­ildir herma að orða­skipti Berkowitz og lög­reglu­manns­ins Johns Falotico hafi verið eitt­hvað á þessa leið:

Berkowitz: „Loksins náðuð þið mér. Hvað tók ykkur svo langan tíma?“

Falotico: „Nú fyrst ég er búinn að ná þér, hver er það sem ég er búinn að ná?“

B: „Þú veist það“

F: „Nei. Segðu mér það.“

B: „Ég er Sam.“

F: „Sam? Hvaða Sam?“

B: „Sam. David Berkowitz“

Áhöld voru um hvort Berkowitz ætti að telj­ast sak­hæfur vegna and­legra veik­inda, en árið 1978 dró hann til baka yfir­lýs­ingu sína þess efnis að hann væri veikur á geði og lýsti sig sekan um morðin sex. Hann hlaut fyrir það sex dóma sem hver um sig hljóð­aði upp á 25 ár til lífs­tíð­ar­fang­elsi.

David Berkowitz er nú 64 ára gam­all og situr enn í fang­elsi, en hefur fyrir nokkru tekið kristna trú. CBS-sjón­varps­stöðin birti nú fyrir helgi einka­við­tal við Berkowitz í til­efni af því að 40 ár eru síðan hann var hand­samaður.

Í við­tal­inu seg­ist hann sjá mikið eftir ódæð­unum og vildi óska þess að hann gæti breytt því sem gerð­ist. Hann hafi þarna látið undan illum öflum sem hrærð­ust innra með honum. Aðspurður hvort það sé eitt­hvað sem hann vildi geta sagt sjálfum sér þegar hann var 23ja ára segir Berkowitz að hann myndi biðja sjálfan sig um að „snúa af þess­ari braut áður en það verður of seint því að hún leiði aðeins til tor­tím­ingar“.

Hér má sjá umræddan þátt þar sem er meðal ann­ars við­tal við Berkowitz og fórn­ar­lömb hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íþátíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár