Færri jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum

Jákvæðni gagn­vart erlendum ferða­mönnum hefur lækkað um fimmt­ung á tveimur árum, sam­kvæmt nýrri könnun MMR.

Viðhorf gagnvart ferðamönnum er lægst meðal Framsóknarmanna.
Viðhorf gagn­vart ferða­mönnum er lægst meðal Fram­sókn­ar­manna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jákvæðni gagn­vart erlendum ferða­mönnum ferð minnk­andi milli ára, en á tveimur árum hefur hlut­fall jákvæðra lækkað um fimmt­ung og hlut­fall nei­kvæðra hækkað um þriðj­ung. Þetta kemur fram í nýbirtri könnun MMR. 

Samkvæmt MMR voru 64,1% svar­enda jákvæðir gagn­vart erlendum ferða­mönnum, á meðan 10,4% voru nei­kvæðir gagn­vart þeim og 25,5% þeirra voru hvorki nei­kvæðir né jákvæðir. Hlutfall jákvæðra hefur farið lækk­andi á síð­ustu tveimur árum sam­hliða hærra hlut­falli nei­kvæðra, en árið 2015 var við­horf 80% Íslend­inga jákvætt gagn­vart erlendum ferða­mönnum á meðan 7,5% voru nei­kvæðir gagn­vart þeim. Nið­ur­stöð­urnar má sjá á mynd hér að neðan:

Frjálslyndir jákvæðari

Mikill munur var á við­horfi gagn­vart ferða­mönnum eftir stjórn­mála­skoð­unum, en stuðn­ings­menn Sam­fylk­ing­ar­innar, Bjartrar fram­tíðar, Pírata og Við­reisnar mæld­ust jákvæð­astir í garð ferða­mann­anna. Hlutfall jákvæðra var minna meðal stuðn­ings­manna Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins, en aðeins 47,6% Fram­sókn­ar­manna sögð­ust jákvæðir gagn­vart erlendum ferða­mönnum. Munur sást líka eftir búsetu, en við­horf höf­uð­borg­ar­búa var jákvæð­ara en þeirra sem búa utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

[adspot]

Lítill munur var á ald­urs­flokkum, en nokkuð sterk jákvæð fylgni var milli heim­il­is­tekna og jákvæðs við­horfs gagn­vart ferða­mönnum. Einnig var munur milli kynja, en við­horf karla gagn­vart erlendum ferða­mönnum var lík­legra til að vera jákvætt en kvenna.

Spurt var: „Almennt séð, hversu jákvæð(ur) eða nei­kvæð(ur) ert þú gagn­vart erlendum ferða­mönnum á Íslandi?“ Alls svör­uðu 909 ein­stak­lingar könn­un­inni, en þeir voru allir valdir með slembivali úr hópi álits­gjafa MMR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár