Þjónustugjald sett á ökutæki í Skaftafelli

Frá og með 9. ágúst næst­kom­andi mun hvert öku­tæki í Skafta­felli þurfa að borga þjón­ustu­gjald, sam­kvæmt til­kynn­ingu Vatna­jök­uls­þjóð­garðs.

Jökulsárlón í Vatnajökulsþjóðgarði.
Jök­ulsár­lón í Vatna­jök­uls­þjóð­garði. Mynd: Úr safni

Vatna­jök­uls­þjóð­garður mun inn­heimta þjón­ustu­gjald í Skafta­felli frá og með 9. ágúst. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu þjóð­garðs­ins og inn­heimtu­fyr­ir­tæk­is­ins Computer Vision í dag.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að tekj­unum verði varið til a styrkja helstu inn­viði þessa fjöl­sótta ferða­manna­staðar með því til dæmis að við­halda bíla­stæðum, leggja göngu­stíga, efla gæslu og auka öryggi gesta.

[adspot]

Gjald verður inn­heimt á hvert skráð öku­tæki sem leggur í þjóð­garð­inum, en gjald­skráin er eft­ir­far­andi:

  • 600 kr. algeng­ustu heim­il­is­bílar, 5 manna eða færri
  • 900 kr. stærri fólks­bílar og jeppar, 6-9 manna
  • 1.800 kr. minni rútur, 10-18 manna
  • 3.600 kr. stærri rútur, 19 manna eða fleiri
  • 300 kr. bif­hjól

Inn­heimta verður í höndum fyr­ir­tæk­is­ins Computer Vision ehf. sem hannar, setur upp og rekur sjálf­virka inn­heimtu­kerfið MyP­ark­ing. Samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður í kjöl­far verð­könn­unar Rík­is­kaupa.

Til­kynn­ingu sam­tak­anna má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár