Farsímagögn varpa nýju ljósi á hegðun ferðamanna á Íslandi

Gögn um erlenda far­síma á reiki frá Símanum gefa nýjar tölur um dreif­ingu ferða­manna eftir lands­hlutum og árs­tíðum.

Ferðamenn halda sér í borginni að vetri til.
Ferða­menn halda sér í borg­inni að vetri til. Mynd: Birgir Þór

Grein­ing­ar­deild Arion banka birti í gær gögn um dreif­ingu ferða­manna, en gögnin voru byggð á stað­setn­ingu erlendra sím­tækja sem eru í reiki hjá Símanum. Stað­setn­ing tækj­anna er skráð tvisvar á sól­ar­hring, klukkan 03:00 og klukkan 15:00 ,og ná frá júní 2016 til febr­úar 2017. 

Gögnin sýna að munur milli árs­tíða eykst eftir því sem fjær dregur Kefla­vík­ur­flug­velli og höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í miðbæ Reykja­víkur og á Suð­ur­nesjum er lít­ill munur á með­al­fjölda erlendra sím­tækja á dag eftir árs­tíðum en í hinum lands­hlut­unum, sér­stak­lega á Norður- og Aust­ur­landi, koma mjög fáir ferða­menn á vet­urna.

Þar sem far­síma­notkun er skoðuð að degi og nóttu til gefa gögnin einnig vís­bend­ingu um hversu langt ferða­menn fara frá gisti­stöðum sínum. Í ljós kemur að þeir eyða nótt­inni frekar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en nýta dag­inn til að skoða sig um og ferð­ast út á land, en 45% sím­tækja eru stað­sett á höf­uð­borg­ar­svæð­inu miðað við 35% um eft­ir­mið­dag­inn.

[adspot]

Hins vegar er einnig minnst á það í kynn­ingu Arion banka að gögnin séu tak­mörkuð að ýmsu leyti. Þar sem þau eru ein­ungis frá einu sím­fyr­ir­tæki end­ur­spegli þau hugs­an­lega ekki hegðun allra ferða­manna á Íslandi. Tak­mark­an­irnar má sjá þegar far­síma­gögn eftir þjóð­erni eru borin saman við gögn Hagstofu og Ferða­mála­stofu um gistinætur eftir þjóð­erni, en þar gætir mik­ils mis­ræmis. Til að mynda eru 26% ferða­manna frá Norður-Ameríku sam­kvæmt Hagstofu, en sam­kvæmt far­síma­gögn­unum eru ein­ungis 9% ferða­manna þaðan.

Þrátt fyrir van­kanta telur grein­ing­ar­deildin umrædd gögn vera „kær­komna við­bót“ við þá flóru upp­lýs­inga sem nú þegar er til staðar um ferða­menn, sér­stak­lega í ljósi þess að önnur gögn séu einnig tak­mörkuð að ýmsu leyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár