Kauphöllin birtir upplýsingar um heildarveðsetningu

Samkvæmt til­kynn­ingu Kaup­hall­ar­innar mun hún birta mán­að­ar­leg gögn um heild­ar­veð­setn­ingu á íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum héðan í frá.

Baldur Thorlacius, forstöðumaður eftirlitssviðs Nasdaq Iceland.
Baldur Thorlacius, for­stöðu­maður eft­ir­lits­sviðs Nasdaq Iceland. Mynd: Photographer: Ingolfur Juliusson

Kaup­höllin til­kynnti í dag að frá og með deg­inum í dag muni hún í sam­starfi við Nasdaq verð­bréfa­mið­stöð birta opin­berar upp­lýs­ingar um heild­ar­veð­setn­ingu íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins. Upp­lýs­ingar verða birtar mán­að­ar­lega með mark­aðstil­kynn­ingu. 

Í til­kynn­ing­unni segir að upp­lýs­ingar um veð­setn­ingu geti veitt ákveðnar vís­bend­ingar um umfang skuld­setn­ingar á hluta­bréfa­mark­aði, eða hversu mikið fjár­festar hafa fengið að láni til að kaupa í skráðum félögum. Hækkandi skuld­setn­ing upp að vissu marki gæti verið jákvæður fyr­ir­boði þar sem hún geti táknað aukna bjart­sýni á meðal fjár­festa. Hins vegar geti of mikil skuld­setn­ing verið litin nei­kvæðum augum, meðal ann­ars vegna gruns um bólu­myndun á mark­aði. Einnig geti mikil skuld­setn­ing ýtt undir áhrif nei­kvæðra atburða á hluta­bréfa­verð.

[adspot]

„Með birt­ingu upp­lýs­inga um veð­setn­ingu á íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum er stigið enn eitt skrefið í átt að auknu gagn­sæi á mark­aði, sem er einn af horn­steinum hans.“ segir Baldur Thorlacius, for­stöðu­maður eft­ir­lits­sviðs Nasdaq Iceland.

Upp­lýs­ingar um veð­setn­ingu mark­að­ar­ins má finna í Mark­aðstil­kynn­ingum á vef Kaup­hall­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár