Er Reykjavík meðal dýrustu borga heims?

Samkvæmt hag­sjá Lands­bank­ans sem birt var í gær lítur út fyrir að Reykja­vík sé í flokki dýr­ustu borga heims. Aðrar grein­ingar sýna sömu nið­ur­stöðu, en hátt verð­lag hér­lendis er aðal­lega vegna sterks gengis krón­unnar.

Samkvæmt gagnagrunni Expatistan er Reykjavík fjórða dýrasta borg í heimi.
Samkvæmt gagna­grunni Expatistan er Reykja­vík fjórða dýrasta borg í heimi. Mynd: Elvar Palsson 7774849

Verðlag í Reykja­vík telst með því hæsta í heimi, sam­kvæmt þremur alþjóð­legum mæli­kvörðum á verð­lag eftir borgum. Hins vegar er sam­an­burður á verð­lagi milli gjald­miðla og tíma vara­samur þar sem miklar breyt­ingar á nafn­gengi skekkja mynd­ina.

Greint var frá því í hag­sjá Lands­bank­ans í dag að Reykja­vík sé orðin hlut­falls­lega dýr­ari en áður. Borgin er dýr­ust allra á Norð­ur­löndum og meira að segja dýr­ari en New York.

[links]Í grein­ing­unni var not­ast við gagna­grunn Numbeo sem skoðar ýmsar hag­stærðir í 6.500 borgum og ber þær saman. Samkvæmt gagna­grunn­inum þá er Reykja­vík í 8. sæti yfir borgir eftir fram­færslu­kostn­aði. Matvara og veit­inga­húsa­þjón­usta virð­ist einnig vera dýr, en borgin er í 8. sæti ef litið er á mat­ar­verð og í 4. sæti ef horft er til verð á veit­inga­húsum.

Eins og segir í grein­ing­unni ber að taka eft­ir­far­andi tölum með fyr­ir­vara, þar sem mis­mun­andi aðferðir eru oft not­aðar til þess að bera saman verð­lag milli tveggja staða. Samt sem áður virð­ast aðrir grein­ing­ar­að­ilar vera sam­mála um að Reykja­vík sé meðal dýr­ustu borga heims.

[adspot]

Aðrar greiningar sammála

Vefurinn Expatistan heldur úti svip­uðum gagna­grunni fyrir verð­lag á milli borga. Þar er verð­lag hverrar borgar áætlað út frá fastri neyslukörfu vöru og þjón­ustu. Neyslukarfan er sögð sér­hæfð fyrir útlend­inga sem hyggj­ast flytja til lands­ins og gefur því ágæta mynd af því hversu ákjós­an­leg borgin er fyrir hugs­an­lega inn­flytj­endur. Samkvæmt þeim gagna­grunni er Reykja­vík í 4. sæti yfir dýr­ustu borgir heims­ins, einu borgir sem telj­ast dýr­ari en hún eru Zurich, Grand Cayman og Genf.

Grein­ing­ar­deild tíma­rits­ins The Economist heldur einnig úti verð­lagskönnun milli borga, en þar eru verð á yfir 160 vörum í hverri borg borin saman og kostn­að­ur­inn met­inn í Banda­ríkja­dölum. Samkvæmt könn­un­inni fyrir árið 2017 er Reykja­vík 16. dýrasta borg heims­ins. Borgin var meðal þeirra sem varð vitni að mestri verð­hækkun milli ára, en hún stökk upp um 13 sæti frá síð­asta ári.

Ekki fullkominn kvarði

Greining þess­ara þriggja gagna­grunna er nyt­sam­leg að mörgu leyti. Þótt þær séu fram­kvæmdar af einka­að­ilum og ekki alþjóð­legum sam­tökum geta þær gefið góða mynd af verð­lags­breyt­ingum milli landa. Hins vegar inni­halda kostn­að­ar­körf­urnar geng­is­breyt­ingar hverrar heima­myntar þar sem allur kostn­aður er birtur í Banda­ríkja­dölum. Því gagn­ast mæli­kvarð­inn best þeim sem fá tekjur sínar í erlendum gjald­eyri, helst doll­urum.

Eins og segir í hag­sjá Lands­bank­ans er eng­inn sam­an­burður full­kom­inn og því nær alltaf hægt að benda á atriði sem orka tví­mælis. Þar sem umrædd verð­hækkun sem átt hefur sér stað í Reykja­vík á síð­asta ári er að mestu leyti vegna geng­is­styrk­ingar finna íslenskir laun­þegar ekki fyrir henni. Verð­bólga hefur verið lág, kaup­máttur launa auk­ist og verð­lag á mat­vöru­mark­aði lækkað hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðlag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár