Verðlag á Íslandi 53% hærra en í ESB

Verðlag á Íslandi hefur sam­kvæmt Eurostat hækkað mikið og er 53% hærra en að með­al­tali í ESB. Ísland er orðið sjö pró­sentum dýr­ara en Noregur og lítið vantar upp á til að verða dýr­ara en Sviss.

Verðlag á Íslandi sam­kvæmt Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins, hefur hækkað mikið frá 2015 og er nú 53% hærra en að með­al­tali í Evr­ópu­sam­bands­ríkj­unum. Enn fremur er verð­lag á Íslandi orðið sjö pró­sentum hærra en í Noregi, og aðeins fjórum pró­sentum frá því að verða dýr­ara en Sviss.

Á þetta bendir grein­ing­ar­deild Arion banka í grein­ingu í morgun. Í grein­ing­unni er fjallað um styrk­ingu krón­unnar, sem nemur nú 17 pró­sentum frá byrjun árs­ins, og bent er á það sem dæmi að krónan hefur styrkst gagn­vart evru í 135 vikur í röð. „Á suma mæli­kvarða má segja að Íslend­ingar séu ein allra rík­asta þjóð í heimi og krónan sé sterkasti gjald­mið­ill í heimi. Stóra spurn­ingin er því hvað það sé eitt­hvað sem getur stað­ist til lengri tíma.“

Þessi hraða geng­is­styrk­ing hefur mjög nei­kvæð áhrif á afkomu útflutn­ings­fyr­ir­tækja og stuðlar að mik­illi aukn­ingu inn­flutn­ings á sama tíma. Þá er jafn­væg­is­raun­gengi lík­lega tals­vert hærra vegna stór­bættrar skulda­stöðu við útlönd og ann­arrar hag­stæðrar þró­unar hér á landi. Arion banki telur að raun­gengi krón­unnar sé í dag um 10 til 12 pró­sentum hærra en getur stað­ist til lengri tíma. Grein­ing­ar­deildin veltir upp spurn­ing­unni hvort þjóð­ar­bú­skap­ur­inn hafi efni á svona sterku gengi.

Ísland mjög dýrt í samanburðinum

Grein­ing­ar­deildin fjallar um kenn­ing­una um kaup­mátt­ar­jöfnuð, en sam­kvæmt henni eiga allar vörur að kosta það sama í öllum löndum á hverjum tíma. Bent er á að aug­ljós­lega haldi sú kenn­ing ekki í sinni tær­ustu mynd, en ef leið­rétt er fyrir öðrum þáttum sem hafa áhrif á raun­gengi þá haldi þessi kenn­ing yfir löng tíma­bil.

Því skoðar bank­inn hlut­falls­legt verð­lag milli nokk­urra landa miðað við mis­mun­andi mæli­kvarða. Myndin hér að neðan á við um mæl­ingar Eurostat á hlut­falls­legu verð­lagi.

Þegar málið er skoðað út frá mati Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins var Sviss dýrasta land í heimi miðað við mis­mun á lands­fram­leiðslu í doll­urum á nafn­virði og leið­rétt fyrir kaup­mátt­ar­jöfn­uði. „Frá miðju ári 2015 hefur íslenska krónan styrkst um 22% gagn­vart sviss­neskum franka svo að ef við miðum við kaup­mátt­ar­leið­rétt gengi gjald­miðla skv. IMF frá 2015, þá er Ísland nú komið upp fyrir Sviss og að lík­indum orðið dýrasta land í heimi á þeim mæli­kvarða.“

Þá er einnig skoðað mat Efnahags- og fram­fara­stofnun Evrópu (OECD), þar sem skoðuð er yfir- eða und­ir­verð­lagn­ing landa og gjald­miðla gagn­vart Banda­ríkj­unum miðað við það hvert gengi gagn­vart banda­ríkja­dal hefði þurft að vera svo að kaup­mátt­ar­jöfn­uður myndi halda árið 2015. Þar er nið­ur­staðan einnig að Ísland sé dýr­ast, og krónan þyrfti að veikj­ast um 27% til að verð­lag væri sam­bæri­legt við Banda­ríkin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár