3,5% verðhjöðnun á matvöru

Vísitala Arion banka á matar- og drykkj­ar­vöru hefur lækkað um 3,5% á síð­ustu 12 mán­uðum. Þetta eru fyrstu tölur þess efnis frá opnun Costco.

Opnun Costco virðist hafa leitt til lægra matvöruverðs, samkvæmt Arion banka.
Opnun Costco virð­ist hafa leitt til lægra mat­vöru­verðs, sam­kvæmt Arion banka. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Verðlag á mat­vöru hefur lækkað um 3,5% á síð­ustu 12 mán­uðum, sam­kvæmt reikn­ingum Arion banka. Þetta eru fyrstu verð­bólgu­tölur eftir að Costco kom á markað.

Í nýjum Mark­aðs­punkti grein­ing­ar­deildar Arion banka kemur fram að vísi­tala neyslu­verðs hafi staðið í stað í júní. Með engri verð­lags­breyt­ingu hafi árs­verð­bólgan því lækkað úr 1,7% niður í 1,5%.

Líkt og und­an­farna mán­uði vegur hús­næð­islið­ur­inn þyngst í vísi­tölu neyslu­verðs, en ef litið er fram hjá honum mælist verð­breyt­ingin um -3,1%.

Áhrifa­mest var hækkun á húsa­leigu, en verð á hót­elgist­ingu, veit­inga­stöðum og flugi til útlanda hækk­aði einnig. Enn frekar hækk­aði verð á fötum og skóm, eins og venjan hefur fyrir sum­ar­út­sölu und­an­farin ár.Á móti vó hins vegar vísi­tala á matar- og drykkj­ar­vöru, en hún lækk­aði um 1,2% milli mán­aða og um 3,5% á liðnum 12 mán­uðum. Aðrar vörur sem lækkað hafa lít­il­lega í verði voru hús­gögn, heim­il­is­bún­aður og elds­neyti. Þetta eru fyrstu verð­bólgu­tölur eftir að Costco opn­aði, en sam­kvæmt grein­ing­ar­deild Arion virð­ast áhrif opn­un­ar­innar á smá­sölu­mark­að­inn vera ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár