Spá verðhjöðnun í júlí

Vísitala neyslu­verðs mun lækka um 0,3% í júlí, gangi spár grein­inga­deildar Arion banka eftir.

Sumarútsölur standa nú yfir í mörgum fatabúðum.
Sum­ar­út­sölur standa nú yfir í mörgum fata­búðum. Mynd: Pexels

Arion banki spáir því að vísi­tala neyslu­verðs lækki um 0,3% milli mán­aða í júlí. Þetta kemur fram í nýjum mark­aðs­punkti grein­ing­ar­deildar bank­ans í dag.

Verð­lækk­unin er að mestu leyti vegna lægra verðs á fötum og skóm, en sum­ar­út­sölur eru í gangi í mörgum fata­versl­unum nú líkt og síð­ustu ár. Gangi spáin eftir mun árs­verð­bólgan standa í 1,6%. Enn fremur spáir grein­ing­ar­deildin áfram­hald­andi verð­lækkun á elds­neyti, mat og drykk ásamt tóm­stundum og menn­ingu, en að lækkun verði tölu­vert minni en í síð­asta mán­uði.

[adspot]

Fast­eigna­liður vísi­töl­unnar er sem áður drif­kraftur verð­bólgu, en einnig er talið að flug­far­gjöld til útlanda muni hækka tölu­vert í mán­uð­inum. Talið er að hægja muni á hækk­unum á hús­næð­is­verði næstu mán­uð­ina, en grein­ing­ar­deildin telur að fram­boð íbúða sé að aukast þar sem hús­næð­is­aug­lýs­ingum hefur byrjað að fjölga aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðlag

Mest lesið undanfarið ár