Í þá tíð... Roswell og FFH-fræðin

Dul­ar­fullt brak fannst í Roswell í Nýju Mexíkó og hefur síðan verið upp­spretta kenn­inga um til­vist fljúg­andi furðu­hluta.

Bærinn Roswell er ekki þekktur fyrir nokkuð annað en FFH-málið, en bæjarbúar skammast sín ekkert fyrir það. Í Roswell má nú t.d. finna safn um FFH.
Bærinn Roswell er ekki þekktur fyrir nokkuð annað en FFH-málið, en bæj­ar­búar skamm­ast sín ekk­ert fyrir það. Í Roswell má nú t.d. finna safn um FFH.

Um þessar mundir eru 70 ár síðan maður einn í Nýju Mexíkó, W.W. Brazel að nafni, sem gekk í leit að sauðum sem hann ótt­að­ist um í kjöl­far óveð­urs nótt­ina áður, fann málm­brak á víð og dreif um land­ar­eign sína, sem og nýtil­kom­inn grunnan skurð sem var tugi metra á lengd. Þessi fundur, sem var stutt frá bænum Roswell, átti svo sann­ar­lega eftir að draga dilk á eftir sér og má segja að hann hafi markað kafla­skil í mál­efna­flokknum sem má kenna við „fljúg­andi furðu­hluti“ (eða FFH, eins og þeir köll­uð­ust í Andr­és­blöðum á síð­ustu öld).

Það var sum sé í Júlí 1947 þegar Brazel, eða Mack eins og hann var jafnan kall­aður, afhenti skerfar­anum í Roswell fund­inn og sá kom þeim áfram til yfir­manna hjá flug­hernum sem áttu bæki­stöðvar þar stutt frá. Þeir gáfu stuttu seinna frá sér litla til­kynn­ingu þar sem fram kom að þeim hefði borist rústir ein­hvers konar „fljúg­andi disks“. Og þar með var viftan úr mál­tæk­inu fræga komin í yfir­vinnu, því að eftir að stað­ar­blöðin sögðu frá tíð­ind­unum komust landsmiðlar á sporið og smá­bær­inn Roswell var í einni svipan orð­inn mið­dep­ill í nýupp­sprottnum áhuga almenn­ings á mögu­legum lend­ingum geim­vera hér á jörð.

Nokkrum dögum síðar sendi flug­her­inn út aðra til­kynn­ingu þar sem fram kom að þarna hafi ekki verið neinn Fljúg­andi diskur heldur aðeins veð­ur­at­hug­un­ar­loft­belgur sem hafi hrapað til jarðar. Á kynn­ing­ar­fundi voru dregin fram nokkur af brot­unum sem fund­ust. Skila­boðin voru skýr og und­ir­orpin sönn­unum. Ekkert hér að sjá. Haldið áfram.

Áhuginn á Roswell-atvik­inu fór fljótt dvín­andi og lá í dróma um áraraðir þar til á átt­unda ára­tugnum þegar aftur fóru á flug sögur um það sem fund­ist hafi þessa örlaga­nótt.

Einn af þeim fyrstu sem hófu nafn Roswell aftur upp til frægðar var kjarneðl­is­fræð­ing­ur­inn Stanton Friedman, sem hafði þá um nokk­urra ára skeið helgað starf sitt leit­inni að sönn­unum fyrir til­vist og komu geim­vera til jarðar (og er raunar enn „fram­ar­lega á því sviði“ ef svo mætti að orði kom­ast).

Í mynd sinni UFO´s are real frá árinu 1979 birti Friedman meðal ann­ars við­tal við Jesse Marcel, majór í flug­hernum. Það var einmitt sá sem skerfar­inn í Roswell hafði látið vita af fund­inum á sínum tíma og Marcel var einn af þeim fyrstu sem kom á brot­lend­ing­ar­stað­inn. Marcel sagð­ist í við­tal­inu vera sann­færður um að það sem hann sá þar og flutti til baka á her­stöð­ina, hafi ekki verið neinn veð­ur­belgur, heldur rústir geim­fars. Þessa sögu hélt hann sig við, í aðal­at­riðum, allt til dauða­dags.

Þessi mynd ásamt ýmsum greinum og bókum sem voru skrif­aðar á svip­uðum tíma, héldu fram svip­uðum kenn­ingum, að yfir­völd hafi reynt að villa um fyrir fjöl­miðlum og almenn­ingi um hina raun­veru­legu atburði í Roswell. Geimfar hafi brot­lent þar, yfir­völd hafi tekið brakið – og jafn­vel „jarð“neskar leifar stjörnu­ferða­langa – og geymt á „Svæði 51“, hinu ann­ál­aða örygg­is­svæði sem er nú eins konar sam­nefn­ari fyrir meintar yfir­hylm­ingar banda­rískra stjórn­valda. Þar séu geymdir þeir hlutir sem ekki þoli dags­ins ljós.

Kenn­ingar þessar hittu svo sann­ar­lega í mark og skoð­ana­kann­anir frá þeim tíma sýna glögg­lega að almenn­ingur var almennt á þeirri skoðun að geim­verur væru til og hefðu haft við­komu hér.

Flug­her­inn ákvað loks að kveða kjafta­sög­urnar í kút í eitt skipti fyrir öll og gaf út tvær skýrslur um málið á tíunda ára­tugnum. Sú fyrri var 1.000 blað­síðna doðrantur sem kom út árið 1994, en þar kom fram að hlut­ur­inn sem fannst í Roswell var sann­ar­lega tæki sem hékk í veð­ur­loft­belg, en það var ekki hefð­bundið veð­ur­at­hug­un­ar­tæki, heldur leyni­legur til­rauna­tækja­bún­aður sem átti að geta numið merki um kjarn­orku­til­raunir Sov­ét­manna.

Ekki varð hún þó til þess að sefa huga þeirra sem trúðu, og heldur bætti í ári síðar þegar fyrir augu almenn­ings komu mynd­skeið sem áttu að sýna krufn­ingu á lík­ömum geim­ver­anna sem áttu að hafa fund­ist í Roswell.

Seinni skýrslan kom svo út árið 1997 og átti að slá á grun­semdir fólks í eitt skipti fyrir öll. Yfir­skrift hennar var: Case Closed, eða „Málalok” og þar var tekið fram að ekk­ert í gögnum varn­ar­mála­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna gæfi til kynna að nokk­urs konar líf­verur hefðu fund­ist ítngslum við atburð­ina í Roswell á sínum tíma. Ekki væri heldur um neins konar yfir­hylm­ingu að ræða af hálfu yfir­valda.

Merki­legt nok hefur skýrslu­gerð opin­berra stofn­ana ekk­ert slegið á þá bjarg­föstu trú margra að geim­skip hafi brot­lent við Roswell árið 1947. Þeir benda á ýmis konar mis­ræmi í skýr­ingum, en hafa þó ekki sannað sitt mál með óyggj­andi hætti. Hvort þeim tak­ist það einn dag­inn er ómögu­legt um að spá, en sagði ekki ein­hver frómur maður ein­hvern­tíma að sann­leik­ur­inn leynd­ist ein­hvers­staðar þarna úti?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íþátíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár