Hagvöxtur fyrsta ársfjórðungs 2017 mældist um 5%, samkvæmt tilkynningu Hagstofu fyrr í dag. Er það mesti vöxtur á fyrsta ársfjórðungi frá 2008. Hagvöxturinn er að mestu leyti drifinn áfram af einkaneyslu, sem jókst um 7%, og útflutningi, sem jókst um 5% á sama tímabili.
Í greiningu Arion Banka kemur fram að þrátt fyrir mikinn hagvöxt hafi fjárfesting og utanríkisverslun verið undir væntingum. Litla fjárfestingu má að mestu leyti rekja til samdráttar í atvinnuvegafjárfestingu á tímabilinu sem var um 2%. Mikill vöxtur í byggingu íbúða dugði ekki til að halda uppi væntri fjárfestingu, en íbúðafjárfesting jókst um 29% á tímabilinu. Einnig hafi verið búist við meiri utanríkisverslun, en innflutningur og útflutningur var minni en spáð var.
[adspot]Samdrátt atvinnuvegafjárfestingar má alfarið rekja til minni fjárfestingar í skipum og flugvélum, sem dróst saman um 36% milli ára. Útlit er fyrir því að skipafjárfesting muni falla til á þessu ári en minna er um fjárfestingar í flugvélum. íbúðafjárfesting hefur aukist um 40% á síðustu tveimur árum, en talið er að mikill vöxtur hennar muni halda áfram, líkt og innflutningur, sementsala og áætlanir benda til.
[links]Líkt og á síðustu misserum stendur ferðaþjónustan undir útflutningsvextinum, en þjónustuútflutningur jókst um 19,2% sem er mesti vöxtur á fyrsta ársfjórðungi frá árinu 2007. Vöxturinn helst í hendur við mikla fjölgun ferðamanna sem komu til landsins, en fjöldi þeirra á fyrsta ársfjórðungi í ár var 452 þúsund, sem er um 54% aukning frá sama tíma í fyrra. Hins vegar hafi vöruútflutningur dregist saman, en verkfall sjómanna gæti hafa spilað stórt hlutverk þar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir