Vongóð um eflingu innanlandsflugs frá Keflavíkurflugvelli

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, seg­ist von­góð um að flogið verði frá Keflavík til ann­arra inn­an­lands­flug­valla, þá helst Egils­staði og Ísafjörð.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í ljósi jákvæðra við­bragða við vetr­ar­flugi milli Kefla­víkur og Akur­eyrar seg­ist Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, binda vonir við að flogið verði frá Keflavík til ann­arra inn­an­lands­flug­valla, þá helst Egil­staði og Ísafjörð. „Slíkt myndi gjör­breyta for­sendum varð­andi heils­árs­ferða­þjón­ustu á þessum stöðum”, segir Þórdís í við­tali á vef Túrista.

[adspot]

Undir lok febr­ú­ar­mán­aðar hóf Air Iceland Connect áætl­un­ar­flug milli Kefla­vík­ur­flug­vallar og Akur­eyrar, í fyrsta skipti utan sum­ar­tíma. Viðbrögð flug­leið­ar­innar hafa verið jákvæð, en heild­ar­fjöldi far­þega flug­leið­ar­innar fyrstu tvo mán­uð­ina var 2700. Umrædd aukn­ing var helm­ingur far­þega­aukn­ingar á Akur­eyr­ar­flug­velli fyrstu fjóra mán­uði árs­ins. Þórdís Kolbrún segir jákvæðu við­brögðin vera vís­bend­ingu um að inn­an­lands­flugið geti eflst.

[links]Ráð­herr­ann hefur talað fyrir betri dreif­ingu ferða­manna um landið, en í við­tali við Kjarnann nefndi hún gjald­töku ferða­manna og mögu­leik­ann á upp­bygg­ingu alþjóða­flug­vallar á Egils­stöðum sem mögu­leg tæki til dreif­ingar. Í við­tali við Túrista nefndi ráð­herra einnig mik­il­vægi þess að hafa öfl­ugt inn­an­lands­flug: „..Helst vildum við sjá öfl­ugt flug á heils­árs­grund­velli. Áfanga­staðir eru í mjög mörgum til­fellum fram­boðs­drifnir m.t.t. flugs og því er mik­il­vægt að opna fleiri áfanga­staði á Íslandi, hvort heldur með beinu milli­landa­flugi eða greiðum teng­ingum við Kefla­vík­ur­flug­völl”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár