Ráðherra opinn fyrir sértækum aðgerðum á veikum svæðum

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, segir að hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu sé í sam­ræmi við prinsippið um fækkun und­an­þága í kerf­inu. Hún er miklu frekar opin fyrir sér­tækum aðgerðum ef ein­hver svæði verða illa úti.

Þróunin í ferðaþjónustunni hefur verið svo hröð að íslenskt samfélag hefur á ýmsum sviðum átt fullt í fangi með að reyna að halda í við þróunina.
Þróunin í ferða­þjón­ust­unni hefur verið svo hröð að íslenskt sam­fé­lag hefur á ýmsum sviðum átt fullt í fangi með að reyna að halda í við þró­un­ina. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ferða­þjón­ustan er stóra ástæðan fyrir þeim efna­hags­bata sem orðið hefur á Íslandi eftir hrun. Ef spár ganga eftir verða erlendir ferða­menn 2,3 millj­ónir á þessu ári, og fimmta hver mann­eskja á land­inu í sumar verður ferða­maður. Árið 2016 komu 1,8 millj­ónir til lands­ins en árið 2010 voru þeir undir 500 þús­und.

Ferða­þjón­usta er orðin stærsta atvinnu­grein lands­ins á mjög skömmum tíma, og hún hefur haft mikil efna­hags­leg og sam­fé­lags­leg áhrif.

Þessi ótrú­lega aukn­ing hefur verið gríð­ar­lega hröð, og í raun svo hröð að sam­fé­lagið hefur á ýmsum sviðum átt fullt í fangi með að reyna að halda í við þró­un­ina. Einn stærsti þátt­ur­inn þar er skortur á inn­viða­upp­bygg­ingu, og hvernig hægt er að fá ferða­menn til að greiða stærri skerf fyrir að nýta auð­lindir lands­ins með þessum hætti. Gjald­taka af ferða­mönnum er einnig talin nauð­syn­leg til þess að reyna að stýra álag­inu á ferða­manna­stöðum og dreif­ingu um landið.

Málefni ferða­þjón­ust­unnar voru til umfjöll­unar í þriðja sjón­varps­þætti Kjarnans, sem er á dag­skrá Hring­brautar á mið­viku­dags­kvöldum. Þórunn Elísabet Boga­dóttir og Þórður Snær Júl­í­us­son eru stjórn­endur þátt­ar­ins, og þau ræðu gjör­breyttu stöðu sem er uppi í ferða­þjón­ust­unni, og greinin stendur frammi fyrir. Gestur þátt­ar­ins er Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála.

Gríðarleg andstaða við virðisaukaskattshækkun

Stjórn­völd hafa ekki neinar áætl­arnir um að end­ur­vekja nátt­úrupass­ann, sem átti að setja á lagg­irnar á síð­asta kjör­tíma­bili en mikil and­staða var við. Komu­gjöld hafa ekki verið inni í mynd­inni, en eins og fram hefur komið er hækkun á virð­is­auka­skatti í ferða­þjón­ustu í áætl­unum stjórn­valda, og hefur mætt mik­illi gagn­rýni.

Samtök ferða­þjón­ust­unnar kalla þetta reið­ar­slag og eru þeirrar skoð­unar að hærri virð­is­auka­skattur muni ganga sér­stak­lega af litlum fyr­ir­tækjum úti á landi dauðum.

Ferða­þjón­ustan á að fær­ast upp í efra virð­is­auka­skatts­þrep árið 2018 og ári síðar á að lækka það þrep úr 24 pró­sentum í 22,5 pró­sent. Sú lækkun verður mögu­leg vegna þess að ferða­þjón­ustan verður færð upp, sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun.

[adspot]

Þórdís Kolbrún er meðal ann­ars spurð út í gagn­rýn­ina á virð­is­auka­skatts­hækk­un­ina í þætt­inum, en gagn­rýnin hefur ekki síst komið úr hennar eigin flokki. Þórdís seg­ist hafa búist við gagn­rýn­inni og hún komi ekki á óvart. Ef hún hefði haldið að hún gæti farið í póli­tík til að taka bara vin­sælar og skemmti­legar ákvarð­anir hefði hún átt að finna sér eitt­hvað annað að gera.

Fjár­mála­á­ætl­unin geri ráð fyrir hækkun á virð­is­auka­skatti á ferða­þjón­ust­una á næsta ári og ekk­ert hafi komið fram um annað en að það eigi að standa. Þetta sé bara ein af mörgum for­sendum í fjár­mála­á­ætl­un­inni. Svo muni koma fram frum­varp um hækk­un­ina sér­stak­lega seinna á árinu með nán­ari útfærslu á þess­ari breyt­ingu, með gild­is­tíma og annað. „Það verður þá auð­vitað bara að koma í ljós hvernig það fer,“ segir Þórdís. „Ég hef enga trú á öðru en að þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins muni standa og styðja fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar,“ segir hún engu að síður, og seg­ist ekki vita til ann­ars en að þeir muni styðja áætl­un­ina. Annað væri „í meira lagi baga­legt finnst mér per­sónu­lega.“

Hún segir að í grunn­inn snú­ist hækk­unin um það prinsipp að fækka und­an­þágum í virð­is­auka­skatts­kerf­inu. „Ég skil þessa gagn­rýni en í prinsipp­inu er þetta almenn aðgerð og kerf­is­breyt­ing. Ef við sjáum að ein­hver svæði eru veik­ari fyrir þess­ari breyt­ingu en önnur þá finnst mér skyn­sam­legra að fók­usera sér­stak­lega á þau, og það er það sem við höfum verið að gera að und­an­förnu, og er stefna stjórn­valda. Þá er ég að tala um lands­byggð­ina. Að dreifa ferða­mönnum betur um landið, og að þar séu seglar.“ Mark­miðið sé það almennt að koma fleiri ferða­mönnum út á land. „Við plöntum þeim ekk­ert þar sem okkur sýn­ist en þetta gengur út á að umhverfið sé þannig og mark­aðs­setn­ingin, að ferða­menn fari víðar en á Suð­vest­ur­hornið.“

Uppbygging ekki endilega á Suðvesturhorninu

Kefla­vík og Hvassa­hraun eru ekki einu mögu­leik­arnir þegar kemur að upp­bygg­ingu í flugi á Íslandi, segir ráð­herr­ann einnig. Það er til dæmis hægt að skoða upp­bygg­ingu alþjóða­flug­vallar á Egils­stöð­um, sem gæti orðið flug­völlur fyrir vöru­flutn­inga og þá einnig mið­stöð fyrir flug yfir Atl­ants­haf­ið. „Mér finnst ekki meit­lað í stein að öll upp­bygg­ing sé á Suð­vest­ur­horn­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár