Íslendingar lifa lengur og betur en áður

Ung­barna­dauði er hvergi lægri í Evrópu en á Íslandi og íslenskir karlar verða evr­ópskra karla elstir. Fram­farir lækna­vís­inda og bætt heilsu­m­eð­vit­und hafa þar mikið að segja.

Meðalævi Íslendinga aldrei verið hærri.
Meðalævi Íslend­inga aldrei verið hærri. Mynd: Chris Craymer / Getty Images

Með­al­ævi­lengd íslenskra kvenna hefur auk­ist um rúm fjögur ár síðan 1986 og geta þær vænst þess að lifa í rúm 83 ár. Þetta kemur fram á vef Hag­stof­unnar. Með­al­ævi­lengd íslenskra karla hefur auk­ist meira á sama tíma eða um rúm sex ár. Þótt að með­al­ævi­lengd karla hafi lengst lifa þeir þó að með­al­tali styttra en kon­urnar en geta þó átt vona á því að verða rúm­lega 80 ára.

Samkvæmt með­al­tali síð­ustu tíu ára var með­al­ævi­lengd íslenskra karl­manna 80,4 sem er hæsti meðal aldur þess tíma í Evrópu. Næst á eftir eru sviss­neskir karl­menn sem lifa að með­al­tali í 80,2 ár. Þeir lifa þó ekki eins lengi og kon­urnar en spænskar og franskar konur verða kvenna elstar 85,3 ára.

Dóra Guðrún Guð­munds­dóttir svið­stjóri yfir áhrifa­þáttum heil­brigðis hjá Embætti land­læknis segir að þessa þróun megi meðal annar rekja til fram­fara lækna­vís­ind­anna. „Við höfum náð góðum tökum á þeim smit­sjúk­dómum sem að fyrri kyn­slóðir dóu úr. Við deyjum því frekar úr ósmit­bærum sjúk­dómum sem að herja á okkur seinna á ævinni. Samt erum við líka að ná betri tökum á þeim þannig að, hver kyn­slóð lifir lengur en sú sem kom á undan.“

Í þessu sam­hengi má benda á að árið 1846 lét­ust 3.293 ein­stak­lingar á Íslandi. Það ár geis­aði misl­inga­far­aldur á Íslandi og fækk­aði þeim um 370 á milli ára og voru 57.718 ári seinna. Flest dauðs­föll það árið voru í júní en þá lét­ust 741 ein­stak­lingur sem var fjór­falt fleiri dauðs­föll en búast hefði mátt við. 

Dauðs­föll árið 2016 voru færri í heild­ina en árið 1846 þrátt fyrir að Íslend­ingar væru árið 2016, sam­kvæmt tölum hag­stof­unnar, 335.439 tals­ins. Helsta dán­ar­or­sök það árið voru sjúk­dómar tengdir blóð­rás­ar­kerfi og hjarta svo sem kransæða­stíflur, hjarta­á­föll eða æða­þreng­ingar. 

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar var fjöldi þeirra sem lét­ust yfir 90 ára á Íslandi í fyrra 473 tals­ins og 20 pró­sent þeirra sem lét­ust það ár. Hundrað árum áður 1916 var hlut­fall þeirra sem lét­ust yfir 90 ára 1,28 pró­sent þeirra sem lét­ust eða 17 sam­tals. 

Heilsuvitund hjálpar mikið til

Dóra segir það ekki aðeins lækna­vís­ind­unum að þakka að við lifum lengur. „Ef við myndum bara bíða eftir því að lækna­vís­indin lækni sjúk­dómana þá væri það ekki nóg.“ Hún segir að ekki dugi að ein­stak­lingar leiti sér bara lækn­is­að­stoðar þegar þeim er farið að líða illa, það sé ekki síður mik­il­vægt að gera það sem hægt er til að efla heils­una og fyr­ir­byggja vanda­málin. „Ef við ætlum að ná enn betri árangri þá þarf að huga að þáttum eins og hreyf­ingu, nær­ingu, áfengi, tóbaki og streitu“.

Dóra segir að heilsu­vit­und Íslend­inga hafi batnað á und­an­förnum árum. „Við erum orðin með­vit­aðri og gerum kröfur t.d. með mat í skólum, við viljum að hann sé hollur og setjum kröfur um það. Við vitum að við þurfum að hreyfa okkur og við gerum meira af því.“ Hún bendir á að það hafi orðið aukn­ing í þátt­töku í átökum á borð við Hjólað í vinn­una og að Íslend­ingar gangi eða hjóli meira til og frá vinnu en áður.

„Á milli 2007 og 2012 var tvö­földun á því sem við köllum virkan ferða­máta að hjóla eða ganga í vinn­una á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Samkvæmt rann­sóknum þá lifa þeir lengur sem hreyfa sig dag­lega eins og t.d. að hjóla eða ganga í vinn­una og ekki bara að þeir lifi lengur heldur við betri lífs­gæði. Við viljum nefni­lega ekki bara bæta árum við lífið heldur einnig lífi við árin, Ekki bara tóra heldur búa við lífs­gæði meðan við lifum.“ Segir Dóra

Ekki bara á ábyrgð einstaklinga

Dóra leggur áherslu á að það sé mik­il­vægt að stjórn­völd leggi ekki bara ábyrgð á heilsu í hendur ein­stak­linga heldur að þau taki virkan þátt í að skapa umhverfi sem hvetji ein­stak­linga til heilsu­sam­legra líf­ernis. „Við [hjá emb­ætti land­læknis] leggjum áherslu á að stjórn­völd sýni ábyrgð og geri holla valið auð­velt og geri þannig öllum kleift að bæta heilsu sína og hlúa að henni. Að það sé ekki bara fyrir ein­hverja for­rétt­inda­hópa að lifa heilsu­sam­legu lífi. Við erum að vinna að þessu með sveit­ar­fé­lögum í land­inu undir yfir­skrift­inni Heilsu­efl­andi sam­fé­lag- vellíðan fyrir alla“.

Það sem stjórn­völd geta gert er til dæmis að tryggja aðgengi að þeim þáttum sem hafa áhrif á heilsu. „Það er ekki nóg að maður viti hvaða matur er hollur heldur þarf að vera gott aðgengi að honum, hann þarf að vera á við­ráð­an­legu verði og í boði í skólum og vinnu­stöðum. Svo þurfa að vera til göngu- og hjóla­stígar svo við getum hjólað og gengið í öruggu umhverfi. Það er því mik­il­vægt að huga að þeim þáttum í sam­fé­lag­inu sem styðja við holla valið og heil­brigðar lífs­venjur.

Embætti land­læknis hefur þróað og komið á lagg­irnar vefnum heilsu­hegdun.is.. „Við viljum vinna með heilsu­gæsl­unni að því að hjálpa fólki að gera líf sitt heilsu­sam­legra og bæta heilsu­hegðun sína og myndum gjarnan vilja sjá heilsu­efl­andi mót­tökur um allt land. Við byrj­uðum á þessu með vefnum reyk­laus.is sem var vefur til að hjálpa fólki að hætta að reykja en við erum búin að útvíkka þetta fyrir fleiri þætti sem hafa áhrif á heilsu ekki bara tóbakið. Það hefur náðst góður árangur í að draga úr reyk­ingum og við viljum nýta þessa reynslu og fara sömu leiðir varð­andi aðra áhrifa­þætti til að bæta líf fólks.“

Lægsti ungbarnadauði í Evrópu

Ung­barna­dauði er hvergi lægri í Evrópu en á Íslandi eða 0,7 af hverju eitt þús­und lif­andi fæddra barna. Dóra segir eina aðal­á­stæð­una fyrir lágri tíðni ung­barna­dauða vera gæði mæðra- og ung­barna­verndar á Íslandi og að hún standi öllum til boða óháð efna­hag. 

„Við erum með mjög góða þjón­ustu fyrir verð­andi mæður og mjög góða ung­barna­vernd, við fylgj­umst mjög vel með fyrir fæð­ingu og eftir fæð­ingu það er alveg til fyr­ir­myndar hér á íslandi og við mættum gjarnan nota þá nálgun í heilsu­vernd út lífið með heilsu efl­andi mót­tökum þá myndum við ná enn betri árangri“

Ung­barna­dauði er tíð­astur í Tyrk­landi þar sem hann er 13,8 af hverju eitt þús­und lif­andi fæddra. Árið 2016 var hlut­fall þeirra sem lét­ust á íslandi undir 4 ára aldri 0,3 pró­sent. Hundrað árum áður var hlut­fallið hins vegar 22 pró­sent. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagstofa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár