Gera heimildarmynd um Íslendingasamfélagið á Kanarí

Magnea Björk Valdi­mars­dóttir og Marta Sigríður Pét­urs­dóttir vinna nú að gerð heim­ild­ar­myndar um Íslend­inga­sam­fé­lagið á Kanarí. Þær safna fyrir mynd­inni á Karolina fund.

Magnea Björk Valdi­mars­dóttir og Marta Sigríður Pét­urs­dóttir vinna að gerð heim­ilda­myndar um Íslend­inga­sam­fé­lagið á Kanarí um þessar mundir. Magnea Björk er leik­stjóri og leik­kona sem starfar sjálf­stætt við heim­ilda­mynda­gerð og hefur gert mynd­irnar „Hverf­is­götu“ og „Bónus­konur“. Marta er menntuð í menn­ingar- og kynja­fræði og hefur feng­ist við texta­skrif og alls kyns störf sem tengj­ast menn­ingu og mann­eskjum. Kjarninn hitti Magneu og Mörtu og tók þær tali.

Hvaðan spratt hugmyndin að verkefninu Kanarí – into the sun?

Magnea: Marta kom til mín með þessa frá­bæru hug­mynd fyrir jól og svo skemmti­lega vildi til að ég var nýbúin að panta far til Kanarí fyrir fjöl­skyld­una mína. Ég er að vinna að eigin heim­ilda­myndum en stökk á hug­mynd­ina því mér finnst hún vera svo frá­bær og marglaga.

Marta: Ég fór fyrst til Kanarí árið 2008 að heim­sækja vin­konu mína Valý sem var að vinna sem far­ar­stjóri og heill­að­ist strax eyj­unni og nátt­úru­feg­urð­inni og en líka af túrista­bænum við Playa Inglés sem er ein­hvers­konar fantasíu­land sól­strand­ar­ferða­langs­ins og kitsch himna­ríki. Besta vin­kona mín fór líka til Kanarí þegar við vorum börn og hún sagði mér frá Harry frá Indlandi sem tal­aði reiprenn­andi íslensku og seldi öllum Íslend­ing­unum raf­tæki.

Það var svo á síð­asta ári að fleiri sögur frá Kanarí bár­ust til eyrna minna, í þetta sinnið frá vinnu­fé­laga sem skrapp þangað í frí með mann­inum sínum og sagði mér frá sam­söngs­stundum og minigolf­mótum Íslend­ing­anna. Ég hafði heyrt svo oft um Klörubar á Kanarí að fyrir mér er þetta staður sem er mik­il­vægur í íslenskri menn­ing­ar­sögu. Ég lauk masters­námi í London fyrir nokkrum árum en var byrjuð á fyrstu önn í sál­fræði í HÍ í ein­hvers­konar til­vist­ar­kreppu síð­asta haust. Menn­ing­ar­fræði­gyðjan lét mig hins vegar ekki í friði og ég var and­vaka í nokkrar nætur að hugsa um að Íslend­inga­sam­fé­lagið á Kanarí væri kjörið efni í heim­ilda­mynd. Ég var ekki í rónni fyrr en ég var búin að fá Magneu til liðs við þetta verk­efni og við komnar út til Kanarí að taka upp efni og ég löngu hætt í sál­fræð­inni.

Haldið þið að það sé bara kuldinn sem rekur fólk til heitra landa eins og Kanarí eða er það eitthvað fleira sem dregur það að?

Magnea: Þó að myrkrið og kuld­inn heima á Íslandi á vet­urna spili stóran þátt af hverju Íslend­ingar sækja svona mikið í sól­ina komumst við því þegar við fórum að ræða við fólkið á Kanarí að eldra fólk og öryrkjar hafa margir hverjir öðl­ast mun bætt­ara heilsu­far þar. Þar að auki þá upp­lifa margir eldri borg­ar­anna sig minna ein­angr­aða úti á Kanarí heldur en heima á Íslandi. Íslend­inga­sam­fé­lagið er þétt­heldið og náið og það er mjög líf­legt félags­líf.

Marta: Ferða­manna­iðn­að­ur­inn á heims­vísu er risa­vaxið fyr­ir­bæri og er virki­lega áhuga­vert rann­sókn­ar­efni út fyrir sig að skoða af hverju við ferð­umst okkur til afþrey­ingar. Almenn­ingur í hinu hnatt­ræna norðri tekur því nán­ast sem gefnu að geta farið erlendis í frí eftir að ódýrar flug­sam­göngur komu til sög­unnar. Það að hafa efni á að fara í frí og að geta ferð­ast er að ein­hverju leyti stöðu­tákn og það hvort/hvert við förum getur sagt ótal­margar sögur um það hver við erum og hver okkar þjóð­fé­lags­staða er.

Hvað hefur reynst skemmtilegast við gerð þessarar myndar?

Marta: Fyrir okkur báðar þá hefur það verið skemmti­leg­ast að kynn­ast öllu fólk­inu og fá þetta tæki­færi til þess að skyggn­ast inn í þennan heim. Klara tók okkur strax opnum örmum og er bæði aðal­per­sóna mynd­ar­innar nán­ast með­fram­leið­andi vegna þess hvað hún hefur aðstoðað okkur mikið. Svo erum við búnar að kynn­ast Maríu Sig­urð­ar­dóttur (Marý á Kirkjubæ) gít­ar­leik­ara og söng­stjóra, Harry og hans starfs­fólki, Feldísi vin­konu Klöru, Kristínu Tryggva far­ar­stjóra, Andreu sem starfar sem fóta­að­gerða­fræð­ingur og eig­in­manni hennar Jón Ottó bíl­stjóra sem að starf­rækir tösku­geymslu fyrir vetr­ar­far­fugl­ana. Það hefur verið gaman að sjá hvað flestir sem við höfum nálg­ast hafa tekið vel í þetta verk­efni og verið til í að tala við okkur. Mörgum af okkar við­mæl­endum finnst það vera gleði­efni að fólkið heima fái að sjá hvað það er við Kanarí sem trekkir sumt fólk að ár eftir ár, jafn­vel í ára­tugi. Svo erum við báðar for­fallnir aðdá­endur fjöl­skrúð­ugu og fjöl­þjóð­legu undra­heimanna sem búa í versl­unar- og afþrey­ing­ar­mið­stöðv­unum Yumbo center og Cita Mall.

Hvert eruð þið komnar í ferlinu?

Magnea: Við erum búnar að fara í tvær ferðir til Kanarí í rann­sókna­vinnu og heim­ilda­öflun og við höfum hingað til lagt alveg sjálfar út fyrir öllum kostn­aði. Við eigum eftir að fara aftur út til þess að taka upp meira efni og svo er það eft­ir­vinnslan sem er tíma­frek og kostn­að­ar­söm; klipp­ing, hljóð­vinnsla, lit­grein­ing og svo fram­vegis. Þess vegna hrintum við af stað söfnun á Karolina­fund. Ef að allt gengur að óskum stefnum við á að frum­sýna mynd­ina snemma árs 2018 og þeir sem leggja fram 15 € eða meira fá miða á frum­sýn­ing­una, fyrir hærri upp­hæðir fást DVD diskar og mögu­leik­inn á að vera titl­aður sem með­fram­leið­andi.

Verk­efnið má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár