Umsóknum um vernd enn að fjölga

Fjölgun umsókna veldur töfum hjá Útlend­inga­stofnun.

Fjórðungur þeirra umsókna um vernd sem Útlendingastofnunn afgreidddi í mars voru samþykktar.
Fjórð­ungur þeirra umsókna um vernd sem Útlend­inga­stofn­unn afgreidddi í mars voru sam­þykktar. Mynd: AFP

Umsóknum hæl­is­leit­enda um vernd á Íslandis hefur fjölgað um 571 pró­sent frá árinu 2015. 263 ein­stak­lingar hafa sótt um vernd á Íslandi síðan um ára­mót, að því er kemur fram í frétt á vef Útlend­inga­stofn­unar.

Í umfjöllun Kjarnans um fjölgun umsókna um vernd fyrri hluta árs 2016 kom fram að fjöldi umsókna hafði fjór­fald­ast miðað við sama tíma árið 2015. Þessi fjölgun heldur áfram og var fjöldi umsókna fyrstu þrjá mán­uði árs­ins rúm­lega 60 pró­sent miðað við sama tíma í fyrra. 

Afgreiðslutími lengist

Það hefur tekið lengri tíma að afgreiða þær umsóknir sem borist hafa á árinu en á sama tíma í fyrra. Meðal afgreiðslu­tími fyrsta árs­fjórð­ung 2017 var 122 dagar en var ekki nema 104 dagar árið 2016. Lenging afgreiðslu­tím­ans skýrist fyrst og fremst af þeim fjölda umsókna sem bár­ust á síð­ustu fjórum mán­uðum síð­asta árs, að því er fram kemur í frétt á vef Útlend­inga­stofn­unar.

Vegna auk­ins fjölda mála hjá for­gangsteymi Útlend­inga­stofn­unar þurfti að flytja starfs­fólk milli teyma innan stofn­un­ar­innar. Þessar til­færslur juku afgreiðslu­tíma hefð­bund­inna mála. Ný útlend­inga­lög tóku einnig gildi um ára­mótin og olli inn­leið­ing þeirra og til­heyr­andi breyt­ingar á verk­lagi töfum. Einnig setti það strik í reikn­ing­inn að algengt var að umsóknir væru dregnar til baka skömmu áður en nið­ur­stöður feng­ust í mál­unum.

Sótt um og horfið á brott

Í mars­mán­uði feng­ust nið­ur­stöður í 141 máli. Rúmlega helm­ingur umsókn­anna var ekki tekin til efn­is­legrar með­ferðar. Í flestum þeim til­fellum sem umsókn hlaut ekki efn­is­lega með­ferð var hún dregin form­lega til baka eða umsækj­andi lét sig hverfa. Þá voru 32 umsóknir afgreiddar á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og tveir umsækj­endur höfðu þegar fengið vernd ann­ars staðar.

Fjöldi þeirra sem fengu vernd eða dval­ar­leyfi á Íslandi í mars­mán­uði var 22 sem er um 35 pró­sent þeirra mála sem teknar voru til efn­is­legrar með­ferðar og 15,6 pró­sent þeirra umsókna sem afgreiddar voru í þeim mán­uði. Flestir þeir umsækj­endur sem voru sam­þykktir eru frá Afganistan og Írak.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár