Einn fangi var vistaður í Háholti

For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu segir að þær 500 millj­ónir króna sem fóru í þjón­ustu­samn­ing við með­ferð­ar­heim­ilið Háholt, og í fólst að ungir fangar yrðu vistaðir þar, hafi verið skelfi­leg með­ferð á opin­beru fé.

Háholt er meðferðarheimili í Skagafirði fyrir ungmenni sem eiga við alvarlegan hegðunarvanda að stríða.
Háholt er með­ferð­ar­heim­ili í Skaga­firði fyrir ung­menni sem eiga við alvar­legan hegð­un­ar­vanda að stríða. Mynd: Feykir.is

Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, segir að þær 450-500 millj­ónir króna sem fóru í að greiða með­ferð­ar­heim­il­inu Háholti fyrir þjón­ustu­samn­ing á árunum 2014 til 2017 hafi verið skelfi­leg með­ferð á opin­beru fé. Þjón­ustu­samn­ing­ur­inn var rök­studdur með því að finna þyrfti stað til að vista fanga undir aldri sem dæmdir höfðu verið til óskil­orðs­bund­innar refs­ingar. Frá því að samn­ing­ur­inn var gerður hefur einn slíkur fangi verið vistaður í Háholti, sem er stað­sett í Skaga­firði. Allt í allt hafa að jafn­aði 1-3 ein­stak­lingar verið vistaði í Háholti að jafn­aði.

Ákvörðun um að gera þjón­ustu­samn­ing­inn var tekin af Eygló Harð­ar­dóttur, fyrr­ver­andi félags- og hús­næð­is­mála í rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks.

Rík­is­stjórnin hefur nú ákveðið að setja upp nýtt með­ferð­ar­úr­ræði nær höf­uð­borg­ar­svæð­inu með það að mark­miðið að tryggja börnum nauð­syn­leg með­ferð­ar­úr­ræði og auka vægi gagn­reyndra aðferða í stofn­ana­með­ferð og stuðla þannig að fram­kvæmd samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barna.

Rekstr­ar­að­ilar Háholts sendu því nýverið vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu bréf þar sem þeir ósk­uðu ekki eftir því að end­ur­nýja þjón­ustu­samn­ing­inn sem gerður var í tíð síð­ustu rík­is­stjórnar, og rennur út 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Rekstur heim­il­is­ins hættir í lok júní.

Finna þurfti stað fyrir unga fanga

Árið 2011 lagði Barna­vernd­ar­stofa fram mjög ítar­lega grein­ar­gerð til þáver­andi vel­ferð­ar­ráð­herra þar sem lagt var til að komið yrði á fót stofnun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem yrði sér­stak­lega hönnuð fyrir ung­menni sem ættu við mjög alvar­legan vímu­efna- og/eða afbrota­vanda að stríða og fyrir þá sem þyrftu að afplána óskil­orðs­bundna dóma. Þessi til­laga rataði inn í fram­kvæmda­á­ætlun stjórn­valda í barna­vernd­ar­málum sem Alþingi sam­þykkti árið 2012. Eins og oft vill verða með sam­þykkt íslensk vil­yrði voru hins vegar aldrei neinir pen­ingar settir í að byggja þessa stofn­un.

Haustið 2012 gerð­ist það síðan, nokkuð skyndi­lega, að þing­menn úr öllum flokkum á þingi lögðu fram þing­manna­frum­varp um að inn­leiða Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna í íslensk lög. Það var þarft verk, en frekar seint í rass­inn gripið, enda hafði hann verið sam­þykktur á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna árið 1989.

Inn­leið­ingin var mjög illa und­ir­búin. Þegar sátt­mál­inn var síðan loks lög­festur hinn 20. febr­úar 2013 stóð Barna­vernd­ar­stofa frammi fyrir því að þurfa að fram­fylgja laga­á­kvæði um vistun ungra afbrota­manna án þess að til væri stofnun hér­lendis sem hægt væri að nýta til þess.

Með inn­leið­ingu Barna­sátt­mál­ans vof­andi yfir sér stóð Barna­vernd­ar­stofa frammi fyrir því að þurfa að finna ein­hverja aðra stofnun sem gæti leyst hlut­verk­ið, að minnsta kosti til bráða­birgða. Eftir yfir­legu lagði hún til í mars 2013 að Háholti í Skaga­firði yrði falið þetta hlut­verk. Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­ið, sem þá var undir stjórn Ögmundar Jón­as­son­ar, lagð­ist hins vegar gegn þessu. Helstu rökin voru þau að lausnin væri úti á landi, langt frá allri nauð­syn­legri stoð­þjón­ustu.

Ný ríkisstjórn skiptir um skoðun

Háholt hafði starfað sem með­ferð­ar­heim­ili í 15 ár á þessum tíma. Rekst­ur­inn var einka­rekstur sem hvíldi á þjón­ustu­samn­ingi við Barna­vernd­ar­stofu. Samn­ing­ur­inn átti að renna út í lok árs 2013 og í ljósi þess að eft­ir­spurnin eftir plássi þar var nær engin var ein­ingin ekki talin rekstr­ar­hæf. Starfs­fólk­inu var því öllu sagt upp í lok árs 2013 og við blasti að rekstr­ar­sögu þessa með­ferð­ar­heim­ilis væri lokið.

Áður en að því kom tók ný rík­is­stjórn við í land­inu, rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks. Og þann 8. nóv­em­ber 2013 fól vel­ferð­ar­ráðu­neytið, sem nú var stýrt af Eygló Harð­ar­dóttur, Barna­vernd­ar­stofu að ganga til við­ræðna um nýjan samn­ing um rekstur með­ferð­ar­heim­ilis í Háholti þar sem gert yrði ráð fyrir að heim­ilið fengi það tíma­bundna hlut­verk að vista fanga undir 18 ára aldri sem dæmdir væru til óskil­orðs­bund­innar refs­ingar.

Sam­komu­lagið sem um ræðir var fyrst og fremst rök­stutt með því að vista ætti fanga undir aldri sem dæmdir höfðu verið til óskil­orðs­bund­innar refs­ingar á Háholti. Það yrði nokk­urs konar fang­elsi fyrir unga glæpa­menn, enda kveði Barna­sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna á um að börn megi ekki afplána með full­orðnum. Sam­komu­lagið var und­ir­ritað 6. des­em­ber 2013 og í kjöl­farið var gerður þjón­ustu­samn­ingur sem gildir til 1. sept­em­ber 2017.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Barna­vernd­ar­stofu hefur einn ein­stak­lingur verið vistaður á Háholti í kjöl­far dóms frá því að þjón­ustu­samn­ing­ur­inn var gerður. Sú vist stóð yfir í nokkra mán­uði.

[links]Þjón­ustu­samn­ing­ur­inn við Háholt kost­aði um og yfir 150 millj­ónir króna á ári, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Barna­vernd­ar­stofu. Sam­an­lagt kost­uðu árin þrjú sem hann náði yfir því á milli 450-500 millj­ónir króna.

Á þeim tíma hafa að jafn­aði 1-3 ein­stak­lingar verið vistaðir á Háholti að jafn­aði. Inn­rit­aðir ein­stak­lingar voru sex á árinu 2014, þrír árið 2015 og sex á árinu 2016. Til sam­an­burðar má nefna að 112 ein­stak­lingar voru inn­rit­aðir í með­ferð­ar­úr­ræði Barna­vernd­ar­stofu á árinu 2016 til við­bótar við 47 sem nutu með­ferðar á árinu, en höfðu inn­rit­ast 2015.

Enginn sérfræðingur taldi Háholt hentugan stað

Kjarninn skrif­aði tölu­vert um þjón­ustu­samn­ing­inn sem gerður var við Háholt snemma árs 2014. Þá var rætt við fjölda sér­fræð­inga sem starfa með hópi ungra brota­manna og barna sem lenda á glap­stigum. Enginn þeirra taldi Háholt hent­ugan stað til að vista slík börn á. Með­ferð­ar­heim­ilið þótti of fjarri þeirri stoð­þjón­ustu sem börnin þurftu á að halda, þjón­ustu sál­fræð­inga og geð­lækna sem lang­flestir eru stað­settir á höf­uð­borg­ar­­svæð­inu. Auk þess eru fjöl­skyldur og rætur brota­mann­a nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust einnig þar.

Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, segir að gerð þjón­ustu­samn­ings­ins hafi ekki verið góð aðgerð. „Þetta er skelfi­leg með­ferð á opin­beru fé,“ segir Bragi aðspurður um hvort það væri rétt­læt­an­legt að eyða nálægt hálfum millj­arði króna í þjón­ustu fyrir þá fáu ein­stak­linga sem vistaðir voru á Háholti.

Hann segir enn fremur að Háholt hafi verið komið á tíma 2013. Eft­ir­spurn eftir með­ferð­ar­rýmum á borð við þau sem eru í boði í Skaga­firði hafi verið arfa­slök árum saman. „Áherslan er nú á svo­nefnda Fjöl­kerfa­með­ferð, MST, og sam­hliða hefur dregið úr þörf á stofn­ana­með­ferð. Þeir sem vistaðir eru á stofn­unum nú eru að takast á við fjöl­þættan og flókin vanda sem krefst aðkomu sér­fræð­inga sem er fyrst og síð­ast að finna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár