Samkomulag um Háholt legið fyrir frá því í desember 2013

Málefni Háholts hafa verið mikið í umræð­unni unda­farna daga eftir að Frétta­blaðið greindi frá því á mánu­dag að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hygg­ist gera 500 millj­óna króna samn­ings til þriggja ára um rekstur með­ferð­ar­heim­il­is­ins, sem er stað­sett í Skaga­firði, þrátt fyrir að Barna­vernd­ar­stofa sé ein­dregið á móti end­ur­nýjun slíks samn­ings.

Kjarninn greindi frá því í útgáfu sinni 16. jan­úar 2014 að til stæði að gera slíkan þjón­ustu­samn­ing og að sam­komu­lag þess efn­ist hefði verið und­ir­ritað 6. des­em­ber árið áður. Þar kom einnig fram að kostn­að­ur­inn yrði allt að 500 millj­ónir króna og að sam­komu­lagið væri gert þvert á vilja flestra sér­fræð­inga. Sam­komu­lagið má lesa hér.

Sökum þess að mál­efni Háholts eru komin aftur í umræð­una gefur Kjarninn ákveðið að birta frétta­skýr­ingu sína frá því í jan­úar aftur í heild sinni.

Frétta­skýr­ing Kjarnans frá 16. jan­úar 2014:


Háholt fær ungu glæpa­menn­ina

Félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra hefur ákveðið að með­ferð­ar­heim­ilið Háholt í Skaga­firði verði sá staður þar sem fangar undir aldri sem dæmdir hafa verið til óskil­orðs­bund­innar refs­ingar verði vistaðir næstu þrjú ár. Sam­komu­lag þess efnis var und­ir­ritað 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn og nú er unnið að gerð þjonustu­samn­ings til að inn­sigla málið. Kostn­aður vegna samn­ings­ins er áætl­aður 400 til 500 millj­ónir króna.

Þessi nið­ur­staða er athygl­is­verð fyrir margar sakir, sér­stak­lega þá að eng­inn þeirra sér­fræð­inga sem Kjarninn ræddi við, og starfa með þessum hópi ungra brota­manna, taldi Háholt hent­ugan stað til að vista þá á. Með­ferðar­heim­ilið þykir of fjarri þeirri stoð­þjón­ustu sem brota­menn­irnir þurfa á að halda, þjón­ustu sál­fræð­inga og geð­lækna sem lang­flestir eru stað­settir á höf­uð­borgar­svæð­inu. Auk þess eru fjöl­skyldur og rætur brota­mann­anna nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust einnig þar.

[caption id="attachment_8962" align="aligncenter" width="1024"] Eygló Harð­ar­dóttir,
félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, tók ákvörðun um að fram­lengja samn­ing­inn við Háholt.[/caption]

Illa undirbúin innleiðing


Þörf Íslend­inga til að finna við­un­andi lausn á vistun dæmdra brota­manna undir lög­aldri er knýj­andi vegna þess að vel­ferðar­ríki á auð­vitað að geta boðið upp á við­un­andi úrræði í þessum mála­flokki. En hún er líka knýj­andi vegna þess að íslenska ríkið hefur leitt í lög barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem skikkar okkur til þess að leysa málið.

Þrátt fyrir að Barna­sátt­mál­inn hafi verið sam­þykktur á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna árið 1989 hafði hann aldrei verið inn­leiddur í íslensk lög. Það gerð­ist hins vegar, frekar snögg­lega, haustið 2012 að þing­menn úr öllum flokkum lögðu fram þing­manna­frum­varp um inn­leið­ingu hans. Sú aðgerð var mjög þörf en frekar illa und­ir­búin, þar sem um þing­manna­frum­varp var að ræða en ekki stjórn­ar­frum­varp. Þegar sátt­mál­inn var síðan loks lög­festur hinn 20. febr­úar 2013 stóð Barna­vernd­ar­stofa til dæmis frammi fyrir því að þurfa að fram­fylgja laga­á­kvæði um vistun ungra afbrota­manna án þess að til væri stofnun hér­lendis sem hægt væri að nýta til þess.

Stofnun á höfuðborgarsvæðinu


Árið 2011 hafði Barna­vernd­ar­stofa lagt fram mjög ítar­lega grein­ar­gerð til þáver­andi vel­ferð­ar­ráð­herra þar sem lagt var til að komið yrði á fót stofnun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem yrði sér­stak­lega hönnuð fyrir ung­menni sem ættu við mjög alvar­legan vímu­efna- og/eða afbrota­vanda að stríða og fyrir þá sem þyrftu að afplána óskil­orðs­bundna dóma. Þessi til­laga rataði inn í fram­kvæmda­á­ætlun stjórn­valda í barna­vernd­ar­málum sem Alþingi sam­þykkti árið 2012. En eins og oft vill verða með sam­þykkt íslensk vil­yrði voru aldrei neinir pen­ingar settir í að byggja þessa stofnun.

Með inn­leið­ingu Barna­sátt­mál­ans vof­andi yfir sér stóð Barna­vernd­ar­stofa frammi fyrir því að þurfa að finna ein­hverja aðra stofnun sem gæti leyst hlut­verkið, að minnsta kosti til bráða­birgða. Eftir yfir­legu lagði hún til í mars 2013 að Háholti í Skaga­firði yrði falið þetta hlut­verk.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið, sem þá var undir stjórn Ögmundar Jón­as­sonar, lagð­ist hins vegar gegn þessu. Helstu rökin voru þau að lausnin væri úti á landi, langt frá allri nauð­syn­legri stoð­þjón­ustu.

Innanríkisráðuneyti snýst hugur


Háholt hefur starfað sem með­ferð­ar­heim­ili í 15 ár. Um er að ræða einka­rekstur sem hvílir á þjón­ustu­samn­ingi við Barna­vernd­ar­stofu. Samn­ingur Háholts átti að renna út um síð­ustu ára­mót og um mitt ár 2013 ákvað Barna­vernd­ar­stofa að fram­lengja hann ekki, meðal ann­ars vegna þess að inn­an­rík­is­ráðu­neytið, sem fer með fang­els­is­mál, hafði vorið 2013 hafnað heim­il­inu sem lausn. Saga Háholts virt­ist því vera komin á enda­stöð og öllu starfs­fólki var sagt upp í lok sept­em­ber 2013.

Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, segir að nán­ast á sama tíma og upp­sagn­irnar voru fram­kvæmdar hafi það hins vegar gerst að inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, nú undir stjórn Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, hafi snú­ist hugur í mál­inu. „Þetta gerð­ist í sept­em­ber­lok. Ég kann ekki að skýra nánar frá því af hverju þetta var. En á þessum tíma var Barna­vernd­ar­stofa komin á þá skoðun að það væri ekki rétt að fram­lengja þjón­ustu­samn­ing við Háholt vegna skorts á eft­ir­spurn. Þróunin und­an­farin ár hefur verið sú að það hefur jafnt og þétt verið að draga úr stofn­ana­með­ferð. Á síð­ari hluta árs­ins 2013 dróst eft­ir­spurn eftir rýmum á Háholti veru­lega saman. Það bara barst ekki umsókn. Við töldum því ein­ing­una varla rekstr­ar­hæfa.“

[caption id="attachment_8959" align="aligncenter" width="600"] Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, sagði það hafa legið fyrir að finna þyrfti lausn á vistun fanga undir lög­aldri.[/caption]

Kjarninn ræddi einnig við sér­fræð­inga sem starfa með þeim hópi ung­menna sem lík­leg­ast verður vistaður á Háholti. Þeir vildu ekki koma fram undir nafni en gagn­rýni þeirra allra var sam­hljóma: stofnun sem vistaði þessi ung­menni þyrfti að vera á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að tryggja þeim þá þjón­ustu sem þau þurftu á að halda. Auk þess væru þau nán­ast án und­an­tekn­inga af höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nálægð við fjöl­skyldur og rætur þeirra væru æski­leg til að auka líkur á bata. Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar, tal­aði á svip­uðum nótum. Í sam­tali við Kjarnann sagði hann að ef þessi lausn tryggði aðgengi þess­ara ein­stak­linga að sér­fræð­ingum gæti Háholt gengið. Slíkt yrði hins vegar að tryggja.

Nauðsynlegt að finna lausn


Bragi segir að það hafi hins vegar legið fyrir að finna þyrfti lausn á vistun fanga undir lög­aldri. Vel­ferð­ar­ráðu­neytið taldi síð­ast­liðið haust rétt að leita sjón­ar­miða allra barna­vernd­ar­nefnda á land­inu á þessu, en þær eru 27 tals­ins. Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið segir meðal ann­ars: „Mat ráðu­neyt­is­ins var að afstaða barna­vernd­ar­nefnd­anna gagn­vart þjón­ustu Háholts væri almennt mjög jákvæð. Þrátt fyrir að sumar nefndir til­greindu nokkra ann­marka á stað­setn­ingu og öðrum atriðum, var það túlkun ráðu­neyt­is­ins að jákvæðu atriðin sem dregin voru fram vægju þyngra, auk þess sem barna­vernd­ar­nefnd­irnar veittu upp­lýs­ingar um all­mörg börn sem líkur bentu til að sótt yrði um með­ferð fyrir í Háholti á næstu mán­uðum og miss­erum.“

Í kjöl­farið tók Eygló Harð­ar­dóttir, sem fer með félags- og hús­næðis­mál í vel­ferðar­ráðu­neyt­inu, ákvörðun um að fram­lengja samn­ing­inn við Háholt.

Bragi seg­ist líta svo á að vistun fanga á Háholti hljóti að vera bráða­birgða­lausn. „Það hefur ekk­ert komið fram í mál­inu sem bendir til þess að önnur áform séu uppi en að byggja þessa stofnun sem þarf á höf­uð­borgar­svæð­inu. Við verðum hins vegar að geta tekið á móti þessum ein­stak­lingum. Það getur fallið dómur á morgun eða hinn. Ráð­herr­ann stóð frammi fyrir því að velja ein­hverja þeirra stofn­ana sem við rekum í dag til að sinna þessu. Hann tekur ákvörðun um að velja Háholt. Ég geri mér grein fyrir því að ákvörð­unin er umdeil­an­leg en það þurfti að ráða fram úr þessu.“ Hann segir heild­ar­kostnað vegna þriggja ára samn­ings við Háholt lík­lega vera á bil­inu 400 til 500 millj­ónir króna.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ing­una í PDF-formi hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár