Sósíalistaflokkurinn verði til 1. maí

Gunnar Smári Egilsson hefur hætt öllum afskiptum af Frétta­tím­anum, en aðrir hlut­hafar, starfs­menn og kröfu­hafar útg­fé­lags­ins reyna nú að bjarga rekstr­inum. Gunnar Smári er kom­inn á fullt í að stofna stjórn­mála­flokk.

Eitt þeirra atriða sem Sósíalistaflokkur Gunnars Smára ætlar að berjast fyrir eru „mannsæmandi kjör fyrir alla landsmenn“.
Eitt þeirra atriða sem Sós­í­alista­flokkur Gunnars Smára ætlar að berj­ast fyrir eru „mann­sæm­andi kjör fyrir alla lands­menn“. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Gunnar Smári Egilsson, fyrr­ver­andi útgef­andi og stærsti eig­andi Frétta­tím­ans, seg­ist horfa til þess að stofna Sós­í­alista­flokk Íslands 1. maí. Á vef­síðu flokks­ins hefur nú verið útbúið skrán­ing­ar­form þar sem fólk getur skráð sig í flokk­inn.

[links]Gunnar Smári hefur staðið í ströngu að und­an­förnu vegna rekstr­ar­erf­ið­leika útgáfu­fé­lags Frétta­tím­ans, en hann er stærsti ein­staki hlut­haf­inn í félag­inu sam­kvæmt vef Fjöl­miðla­nefndar með 46 pró­sent hlut. Fram hefur komið að hlut­hafar, kröfu­hafar og stjórnefndur leiti nú leiða til að bjargar rekstri félags­ins, en ekki er útséð með það enn. Rekst­ur­inn stendur illa, og hefur ekki tek­ist ennþá að greiða öllum starfs­mönnum laun vegna síð­asta mán­aðar.

Gunnar Smári er horf­inn á braut, og er nú tek­inn við að stofna sjórna­mála­flokk. Hann seg­ist leggja áherslu á að vald verði fært til fólks­ins og að almanna­hags­munir fái alltaf að ráða för, ekki „auð­valdið“.

Orðrétt segir á vef flokks­ins, að hann leggi áherslu á mál­efni launa­fólks og stétta­bar­áttu. „Sós­í­alista­flokkur Íslands er flokkur launa­fólks og allra þeirra sem búa við skort, ósýni­leika og valda­leysi. And­stæð­ingar Sós­í­alista­flokks Íslands eru auð­valdið og þeir sem ganga erindi þess. Vett­vangur Sós­í­alista­flokks Íslands er breið stétta­bar­átta sem hafnar mála­miðl­unum og falskri sam­ræðu.

[adspot]

Í starfi sínu leggur Sós­í­alista­flokkur Íslands áherslu á það sem sam­einar fólkið í land­inu; órétt­lætið sem það mætir og vilj­ann til að losna undan því. Öllum lands­mönnum er vel­komið að ganga til liðs við flokk­inn, óháð kyni, upp­runa, trú eða kyn­hneigð,“ segir á vef Sós­í­alista­flokks­ins.

Eins og fram kom á vef Kjarnans í gær, þá horfir Gunnar Smári sér­stak­lega til fimm upp­hafs­mála þegar kemur að starfi Sós­í­alista­flokks­ins.

Eftirfarandi atriði eru upphafsmál Sósíalistaflokksins

  1. Mann­sæm­andi kjör fyrir alla lands­menn, hvort sem þeir eru launa­menn, atvinnu­laus­ir, bóta­þeg­ar, náms­menn eða heima­vinn­andi.
  2. Aðgengi án tak­mark­ana að öruggu og ódýru hús­næði.
  3. Aðgengi án tak­mark­ana að gjald­frjálsu heil­brigð­is­kerfi, að gjald­frjálsri menntun á öllum skóla­stigum og að gjald­frjálsu vel­ferð­ar­kerfi sem mætir ólíkum þörfum fólks­ins í land­inu.
  4. Stytt­ing vinnu­vik­unn­ar, til að bæta lífs­gæði fólks­ins í land­inu og auð­velda því að ger­ast virkir þátt­tak­endur í mótun sam­fé­lags­ins.
  5. End­ur­upp­bygg­ing skatt­kerf­is­ins svo auð­stéttin greiði eðli­legan hlut til sam­neysl­unnar en álögum sé létt af hinum verst stæð­u.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár