Fimm upphafsatriði í Sósíalistaflokki Gunnars Smára

Gunnar Smári Egilsson, blaða­maður og útgef­andi, er nú kom­inn á fullt í að stofna stjórn­mála­flokk og er þegar far­inn að leggja lín­urnar með grund­vall­ar­at­riðum í flokks­starf­inu.

Gunnar Smári Egilsson.
Gunnar Smári Egilsson. Mynd: Skjáskot: RÚV

Gunnar Smári Egilsson, fyrr­ver­andi útgef­andi og rit­stjóri Frétta­tím­ans, er kom­inn á fullt við að stofna Sós­í­alista­flokk Íslands, að því er hann segir á Facebook síðu sinni, og nefnir sér­stak­lega til sög­unnar fimm áherslu­mál í upp­hafi. 

„Fyrstu bar­áttu­mál Sós­í­alista­flokks Íslands eru þessi:

1. Mann­sæm­andi kjör fyrir alla lands­menn, hvort sem þeir eru launa­menn, atvinnu­lausir, bóta­þegar, náms­menn eða heima­vinn­andi.

2. Aðgengi án tak­mark­ana að öruggu og ódýru hús­næði.

3. Aðgengi án tak­mark­ana að gjald­frjálsu heil­brigð­is­kerfi, að gjald­frjálsri menntun á öllum skóla­stigum og að gjald­frjálsu vel­ferð­ar­kerfi sem mætir ólíkum þörfum fólks­ins í land­inu.

4. Stytting vinnu­vik­unnar, til að bæta lífs­gæði fólks­ins í land­inu og auð­velda því að ger­ast virkir þátt­tak­endur í mótun sam­fé­lags­ins.

5. End­ur­upp­bygg­ing skatt­kerf­is­ins svo auð­stéttin greiði eðli­legan hlut til sam­neysl­unnar en álögum sé létt af hinum verst stæðu,“ segir Gunnar Smári.

[adspot]

Gunnar Smári var áður stærsti eig­andi útgáfu­fé­lags Frétta­tím­ans með 46 pró­sent, og var enn fremur útgef­andi, en hann hefur yfir­gefið Frétta­tím­ann, á meðan unnið er að end­ur­skipu­lagn­ingu hans. Útgáfan stendur höllum fæti og fram­hald útgáfu óljós, en hluti starfs­manna blaðs­ins fékk ekki greidd laun sín um síð­ustu mán­að­ar­mót.

Gunnar Smári segir í pistli á Facebook síðu Sós­í­alista­flokks­ins að hann vilji að Sós­í­alista­flokkur Íslands leggi áherslu á að færa „valdið til fólks­ins“ og jafna rétt og kjör í sam­fé­lag­inu. „Sós­í­alista­flokkur Íslands er stjórn­mála­flokkur almenn­ings á Íslandi. Markmið hans er sam­fé­lag frelsis, jöfn­uðar, menn­helgi og sam­kenndar. Þessi mark­mið nást ein­göngu með því að færa völdin í hendur fólks­ins í land­inu.

Sós­í­alista­flokkur Íslands er flokkur launa­fólks og allra þeirra sem búa við skort, ósýni­leika og valda­leysi. And­stæð­ingar Sós­í­alista­flokks Íslands eru auð­valdið og ráða­stéttin. Vett­vangur Sós­í­alista­flokks Íslands er breið stétta­bar­átta sem hafnar mála­miðl­unum og falskri sam­ræðu.

Í starfi sínu leggur Sós­í­alista­flokkur Íslands áherslu á það sem sem­einar fólkið í land­inu: órétt­lætið sem við mætum og vilja okkar til að losna undan því. Við bjóðum alla lands­menn, óháð kyni, upp­runa, trú, eða kyn­hneigð vel­komna til nýrrar og breiðrar bar­átt­ur­hreyf­ingar.

Sós­í­alista­flokkur Íslands vill að fram­þróun sam­fé­lags­ins stýr­ist af hags­munum almenn­ings. Þess vegna þarf almenn­ingur að ná völdum, ekki aðeins yfir opin­berum stofn­unum heldur einnig nærum­hverfi sínu. Vinnu­stað­ur­inn, verka­lýðs­fé­lagið, skól­inn, hverfið, sveit­ar­fé­lagið, þorpið – öll þessi svið eiga að vera undir vald­d­eifðri stjórn þar sem hags­munir fólks­ins eru í fyr­ir­rúmi,“ segir Gunnar Smári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár