Sveitarfélög megi rukka fyrir bílastæði á ferðamannastöðum

Aðeins má inn­heimta bíla­stæða­gjöld í þétt­býli, sam­kvæmt núgild­andi lögum. Stjórn­völd ætla að breyta þessu, og heim­ila bíla­stæða­gjöld í dreif­býli, til að fjár­magna upp­bygg­ingu ferða­manna­staða. Gæti haf­ist í sumar.

Jón Gunn­ars­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, kynnti í morgun frum­varp um bíla­stæða­gjöld fyrir rík­is­stjórn­inni. Með frum­varp­inu á að gefa ráð­herra og sveit­ar­fé­lögum auknar heim­ildir til þess að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í dreif­býli.

Sveit­ar­fé­lög munu þannig geta lagt á bíla­stæða­gjöld á vin­sælum ferða­manna­stöðum og munu fá óskertar tekjur af þeim, en þeim yrði skylt að verja tekj­unum í upp­bygg­ingu á þjón­ustu sem teng­ist við­kom­andi stað, sam­kvæmt því sem Jón hefur sagt. Með þessum hætti gætu sveit­ar­fé­lög inn­heimt tals­verðar tekjur. Samkvæmt núgild­andi lögum er aðeins hægt að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í þétt­býli.

Laga­breyt­ingin er talin nauð­syn­leg til að sveit­ar­fé­lög­unum verði heim­iluð gjald­taka á bíla­stæðum utan þétt­býlis en í dag er þeim aðeins heim­ilt að inn­heimta gjöldin í kaup­stöðum og kaup­túnum. Breyt­ingin mun einnig ná til þess að heim­ila ráð­herra gjald­töku á land­svæðum í eigu rík­is­ins.

„Vegna auk­ins fjölda ferða­manna er talið brýnt að koma upp bíla­stæðum við vin­sæla ferða­manna­staði og veita þar ákveðna þjón­ustu svo sem bíla­stæða­vörslu og sal­ern­is­að­stöðu. Þannig er í breyt­ing­unni lagt til að sveit­ar­stjórnum verði heim­ilt að setja reglur um gjald­töku í þessu skyni og ráð­herra verði heim­ilað að ákveða slíkt gjald með reglu­gerð á svæðum í eigu rík­is­ins,“ segir í kynn­ingu á mál­inu á vef ráðu­neyt­is­ins.

Gert er ráð fyrir því að lögin taki gildi um leið og þau eru sam­þykkt í þing­inu, og því gæti gjald­taka haf­ist í sumar ef frum­varpið nær fram að ganga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár